Upp­gjörið: FH - Valur 1-2 | Valur nældi sér í of­boðs­lega langþráðan sigur

Hjörvar Ólafsson skrifar
Fanndís Friðriksdóttir og stöllur hennar í Val geta loks leyft sér að fagna. 
Fanndís Friðriksdóttir og stöllur hennar í Val geta loks leyft sér að fagna.  Vísir/Anton

Valur fór með sigur af hólmi þegar liðið sótti FH heim á Kaplakrikavöll í 10. umferð Bestu-deildar kvenna í fótbolta í dag. Gengi Valsliðsins hefur verið slæmt upp á síðkastið og sigurinn því vel þeginn.

Eftir tíðindalitlar fyrstu mínútur leiksins vakti Elísa Lana Sigurjónsson, miðjumaður FH, áhorfendur með langskoti sínu sem small í þverslánni þegar um það til tíu mínútur voru liðnar af leiknum.

Stöllurnar Maya Lauren Hansen og Jordyn Rhodes fengu svo báðir fín færi til þess að brjóta ísinn sem Thelma Karen Pálmadóttir og Ragnheiður Þórunn Jónsdóttir en inn vildi boltinn ekki og staðan markalaus í hálfleik.

Seinni hálfleikur hófst fjörlega en áfram voru Thelma Karen og Ragnheiður Þórunn aðgangsharðar upp við mark andstæðinga sinna. Hvorug náði þó að finna netmöskvana.

Það var svo téð Ragnheiður Þórunn sem skoraði markið sem skildi liðin af eftir rúmlega klukkutíma leik. Ragnheiður Þórunn skoraði með skoti af stuttu færi eftir hornspyrnu Helenu Óskar Hálfdánardóttur.

Helena Ósk var svo sjálf á skotskónum þegar skammt var eftir af leiknum en skot hennar utan vítateigs hafnaði þá í fjærhorninu og staðan 2-0 Val í vil. Ingibjörg Magnúsdóttir sem kom inná vinstri vænginn í hálfleik strengdi líflínu fyrir FH með marki sínu skömmu síðar. 

Lengra komust heimakonur í FH ekki og Valur innbyrti stigin þrjú sem í boði voru .

Valur hafði fyrir þennan leik spilað sex leiki í deildinni án sigur en liðið hafði tapað fjórum af þeim leikjum og gert tvö jafntefli. Þessi sigur var því allt í senn langþráður, kærkominn og nauðsynlegur til þess að mjaka liðinu upp töfluna.

Valur klifrar upp í fimmta sæti deildarinnar með þessum sigri en liðið hefur 12 stig líkt og Stjarnan sem er sæti neðar þar sem liðið hefur lakari markatölu. FH er hins vegar í þriðja sæti með sín 22 stig en Þróttur og Breiðablik sem lagði Stjörnuna að velli í dag eru á toppnum með 25 stig hvort lið.

Atvik leiksins

Fögnuður Valskvenna í leikslok var innilegur og ástríðufullur enda langt síðan þær fundu fyrir sigurtilfinningunni að loknum deildarleik. Stiginn var hæfilega trylltur sigurdans. 

Stjörnur og skúrkar

Sandra Sigurðardóttir varði nokkrum sinnum vel í leiknum og nærvera hennar færir ró í varnarlínu FH fyrir framan hana. Elísa Lana Sigurjónsdóttir átti góðan leik inni á miðsvæðinu hjá FH. Thelma Karen ógnaði sífellt með hraða sínum og krafti. Ingibjörg Magnúsdóttir kom vel inn á vinstri kantinn hjá FH-liðinu í háfleik.

Tinna Brá Mangnúsdóttir kom Valsliðinu nokkrum sinnum bjargar með góðum markvörslum. Ragnheiður Þórunn var hættulegust í sóknarleik Vals en hún skoraði svo sigurmark gestanna frá Hlíðarenda Fanndís Friðriksdóttir var mikið í boltanum að reyna að skapa fyrir samherja sína. Elísa Viðarsdóttir var góð bæði í bakvarðarstöðunni sem og djúp á miðjunni.

Dómarar leiksins

Dómarar leiksins, þeir Jens Elvar Sævarsson, Arnþór Helgi Gíslason, Kristófer Bergmann og Atli Björn E Levy höfðu einkar góð tök á þessum og bara ekkert upp á þá að klaga. Af þeim sökum fá þeir níu í einkunn fyrir vel unninn störf.

Stemming og umgjörð

Fínasta stemming í Kaplakrika í dag og flöturinn á grasvellinum sjálfum skartaði sínu fegursta. Ljóst er að veðurbrigði síðustu daga með sól og rigningu í bland við natni Sigmundar Péturs Ástþórssonar, vallarstjóri FH-inga, hefur orðið til þess að völlurinn er í sínu bestu ásigkomulagi. Völlurinn var rakur og aðstæður til fótboltaiðkunar nánast fullkomnar.

Bein lýsing

Leikirnir






    Fleiri fréttir

    Sjá meira