Uppgjörið: FH - Vestri 2-0 | Upp um fjögur eftir magnað mark og skalla Sesselja Ósk Gunnarsdóttir skrifar 22. júní 2025 13:15 Sigurður Bjartur Hallsson, hér á ferð gegn sínu gamla liði KR, skoraði stórkostlegt mark í dag. vísir/Anton FH-ingar komu sér úr fallsæti og upp í 7. sæti Bestu deildar karla í fótbolta í dag, að minnsta kosti tímabundið, með 2-0 sigri gegn Vestra í Kaplakrika, í 11. umferð. Sigurður Bjartur Hallsson skoraði fyrra mark FH og var það stórglæsilegt eins og sjá má hér að neðan. Björn Daníel Sverrisson bætti svo við seinna markinu með skalla í seinni hálfleik. Vestramenn sitja áfram í 3. sæti með 19 stig, fimm stigum meira en FH, en gætu nú misst Stjörnuna og Val upp fyrir sig. FH hefur verið að sækja góð úrslit í Kaplakrika og hélt því áfram í dag með sigri á Vestra. Fyrri hálfleikur var að miklu leyti jafn þar sem bæði lið reyndu að gera sér mat úr sóknum sínum. Fyrsta markið kom á 32. mínútu þegar Björn Daníel Sverrisson fann Sigurð Bjart Hallsson sem gerði sér lítið fyrir og vippaði boltanum yfir vörn Vestra og nelgdi boltanum svo í netið, eins og sjá má hér að ofan. Diego Montiel leikmaður Vestra komst í ansi gott færi á 40. mínútu eftir afleita sendingu Ísaks Óla Ólafssonar en Mathias Rosenörn varði glæsilega. Staðan því 1-0 fyrir heimamenn í fyrri hálfleik. FH-ingar komu út af krafti í seinni hálfleik og náðu að pressa vel á Vestra sem átti erfitt með að komast upp völlinn. Það tók FH þrjár mínútur að bæta við öðru marki en Björn Daníel Sverrisson stangaði boltann í netið eftir fyrirgjöf frá Kjartani Kára Halldórssyni. Davíð Smári Lamude þjálfari Vestra ákvað að bíða ekki lengur með það að gera breytingar og gerði þrjár skiptingar á liði sínu á 55. mínútu. Vestri náði að lyfta sér ögn hærra á völlinn eftir skiptingarnar en náði ekki að skapa sér nein hættuleg færi. Atvik leiksins Fyrsta mark leiksins stendur upp úr hjá mér, Sigurður Bjartur Hallsson var með frábæra afgreiðslu. Endilega kíkið á það hér að ofan. Stjörnur og skúrkar Björn Daníel Sverrisson var mjög öflugur og sýndi hér í dag hversu mikilvægur hann er fyrir FH liðið. Mark og stoðsending niðurstaða dagsins hjá Birni. Sóknarlega voru Kjartan Kári Halldórsson og Sigurður Bjartur Hallsson góðir fyrir FH. Stemning og umgjörð Virkilega góð stemning hérna í Kaplakrika og vel mætt á leikinn. Dómarar Jóhann Ingi Jónsson, Ragnar Þór Bender og Þórður Arnar Árnason stóðu sig með prýði, ég hef svosem ekkert út á dómgæsluna að setja í dag. Heimir Guðjónsson sá sína menn vinna góðan sigur í dag.Vísir / Anton Brink Heimir: Þurfum að bæta árangur okkar á útivöllum „Mér fannst leikskipulagið ganga upp, mér fannst við spila góðan leik á móti gríðarlega vel skipulögðu Vestra liði. Það sem skiptir máli er að komast yfir og Siggi skoraði frábært mark fyrir okkur. Eftir það vorum við með öll tök á vellinum og vorum klaufar að vinna ekki stærra,“ sagði Heimir Guðjónsson, þjálfari FH. „Framlag leikmannanna var til fyrirmyndar og við höfum verið góðir hérna á þessum velli og við þurfum að halda því áfram. Við þurfum að fara bæta árangur okkar á útivöllum ef við ætlum að gera eitthvað.“ FH-ingar hafa náð ágætis úrslitum á heimavelli en ólíkt mörgum öðrum liðum í deildinni leika þeir á grasi. Úrslitin hafa ekki verið eins góð á gervigrasi og var Heimir þá spurður að því hvort FH væru hreinlega betri á grasi? „Já, þannig er staðan í dag, við erum betri á grasi heldur en gervigrasi. Við þurfum að breyta því og fá úrslit á útivöllum og á gervigrasi.“ Sigurður Bjartur: Ég fór beint í klippuna „Þetta var geðveik frammistaða, eins og alltaf í Kaplakrika. Við þurfum að finna leið til þess að flytja Kaplakrika frammistöðurnar á útivöll. Þá förum við að safna stigum að alvöru,“ sagði markaskorarinn Sigurður Bjartur Hallsson. „Við í raun og veru leyfum þeim að hafa boltann og stýra leiknum. Mér fannst þeir í raun ráðalausir ef þeir þurftu að stýra honum og við reyndum að beita skyndisóknum þegar við unnum boltann hátt á vellinum sem gekk mjög vel,“ sagði Sigurður Bjartur og fór yfir frábært mark sitt: „Mér fannst varnarmaðurinn loka á snertinguna inná völlinn þannig ég lyfti boltanum yfir hann, boltinn skoppaði svo frekar hátt þannig ég fór beint í klippuna.“ Davíð Smári hefur verið að gera stórkostlega hluti með Vestra í sumar en liðið mátti sætta sig við tap í dag.Vísir/Anton Davíð Smári: Vil að leikmenn sýni fyrir hvað við stöndum „Þetta var lélegur fótboltaleikur heilt yfir, léleg frammistaða frá Vestra liðinu, ólíkt Vestra liðinu. Unnum enga seinni bolta, unnum lítið af návígum og það var eins og það vantaði ástríðu í liðið. Það er eitthvað sem við höfum ekki staðið fyrir hingað til og eitthvað sem ég er gríðarlega ósáttur með,“ sagði Davíð Smári Lamude, þjálfari Vestra. „Heilt yfir eða fram að því þegar FH skorar markið gerist nánast ekki neitt í leiknum. FH vildi varla snerta boltann og vildi ekki stíga á okkur og voru eitthvernveginn að bíða eftir eitthverjum momenti eða mistökum eða þess háttar.“ „Við mætum svo mögulega ekki til leiks eða vel stilltir fyrir seinni hálfleikinn og fáum á okkur mark í raun strax eftir að flautað er til leiks og þar með er leikurinn nánast farinn. Mér fannst orka í þeim leikmönnum sem komu inn hjá okkur og það er kannski það eina sem ég get tekið úr þessum leik, við börðumst allt til enda og menn voru að reyna.“ Hvernig horfir þú til næsta leiks? „Ég vill fá svar, ég vill fá kraft og ég vill fá orku. Ég vill að leikmenn sýni fyrir hvað við stöndum og höfum gert hingað til fram að þessum leikjum. Ég myndi segja að það hefur ekkert lið spilað í gegnum okkur og haft jafn lítið fyrir þremur stigum og það er eitthvað sem ég sætti mig ekki við.“ Besta deild karla FH Vestri