Erlent

Stað­festa bann á með­ferð trans barna

Samúel Karl Ólason skrifar
Úrskurðurð Hæstaréttar mun líklega hafa mikil áhrif víða um Bandaríkin.
Úrskurðurð Hæstaréttar mun líklega hafa mikil áhrif víða um Bandaríkin. AP/Rick Bowmer

Hæstiréttur Bandaríkjanna komst í dag að þeirri niðurstöðu að heimilt sé að meina börnum að gangast kynleiðréttingu og fá tengd lyf og tengda læknisþjónustu. Meðferðin felur að mestu í sér notkun lyfja til að stöðva kynþroska eða annarskonar hormónameðferð.

Þrír trans táningar, foreldrar þeirra og læknar í Tennessee höfðuðu mál gegn ríkinu vegna laganna árið 2023. Það var gert á þeim grundvelli að lögin færu gegn jafnréttisákvæði stjórnarskrár Bandaríkjanna.

Úrskurðinn féll eftir flokkslínum eða 6-3, þar sem dómarar sem skipaðir voru í embætti af forseta úr Repúblikanaflokknum voru í meirihluta. Þeir voru sammála um að lög Tennessee færu ekki gegn stjórnarskrá.

Samkvæmt AP fréttaveitunni eru 26 önnur ríki með sambærileg lög og Tennessee. Um mikið bakslag í réttindabaráttu trans fólks er um að ræða en ríkisstjórn Donalds Trump hefur gripið til margskonar aðgerða gegn því.

Undanfarin ár hafa ríkisþingmenn flestra ríkja þar sem Repúblikanar halda í stjórnartaumana samþykkt lög sem heimila trans konum og stúlkum að keppa í kvennadeildum í íþróttum. Auk þess er búið að setja lög í um helmingi þessara ríkja sem meina trans fólki að nota klósett í skólum sem eru ekki ætluð því kyni sem það fæddist í.

Sjá einnig: Sækja WorldPride í skugga bakslags í réttindum hinsegin fólks

John Roberts, forseti Hæstaréttar, skrifaði dómsorð meirihlutans en þar segir að málið sé mjög umdeilt og felir í sér mörg álitamál. Mikið sé um það deilt og umræðan sé áhrifamikil. Hann segir hins vegar að ekki sé hægt að notast við stjórnarskrána til að útkljá hana. Best væri að löggjafinn kæmi að því.

Sonia Sotomayor skrifaði andsvar minnihlutans en hún sagði lögin klárlega brjóta gegn stjórnarskránni. Sakaði hún meirihlutann um að yfirgefa trans börn og foreldra þeirra og gera þau berskjölduð fyrir pólitískum duttlungum.

Trump áhrifamikill

Dómsmál hafa verið höfðuð vegna þessara laga í mörgum þeirra ríkja þar sem þau hafa verið samþykkt. Líklegt er að úrskurður Hæstaréttar muni koma niður á þeim lögsóknum en hve mörgum liggur ekki fyrir enn.

Sum þessara mála byggja ekki á stjórnarskrá Bandaríkjanna heldur ákvæðum í stjórnarskrá tiltekinna ríkja eða öðrum grundvelli.

Í ríkjum þar sem Demókratar stjórna hafa verið gerðar tilraunir til að festa rétt trans barna til meðferðar í lög. Hvort meðferðin verði áfram í boði mun þó, samkvæmt AP fréttaveitunni, velta á fjármagni.

Þar skipta ákvarðanir Trumps miklu máli en hann hefur gefið út þá skipun að ekkert alríkisfé verði notað til þessarar meðferðar og að stofnanir þar sem meðferð er veitt fá sömuleiðis enga peninga.

Þess vegna hafa meðferðir verið stöðvaðar víða um Bandaríkin í ríkjum þar sem hún er leyfileg.


Tengdar fréttir

Óskýrt hvort loftbyssuskot að hinsegin fólki hafi verið hatursglæpur

Hópur hinsegin og trans fólks var að stíga út úr leigubíl á Laugaveginum í gær þegar skotið var að honum úr loftbyssu. Samskipta- og kynningarstýra Samtakanna 78 segir óskýrt hvort um hatursglæp hafi verið að ræða en tilkynnir málið engu að síður til lögreglu. 




Fleiri fréttir

Sjá meira


×