Upp­gjörið: Stjarnan - Kefla­vík 4-2 | Mörkum í öllum regn­bogans litum rigndi í Garða­bæ

Hjörvar Ólafsson skrifar
stjarnan diego
vísir/Diego

Stjarnan lagði Keflavík að velli 4-2 þegar liðin áttust við í feykilega fjörugum leik í átta liða úrslitum Mjólkurbikars karla í fótbolta á Samsung-vellinum í Garðabænum í kvöld.

Stjörnumenn byrjuðu leikinn betur en Jóhann Árni Gunnarsson og Benedikt Warén voru nálægt því að koma heimamönnum yfir á fyrsta stundarfjórðungnum.

Það var því gegn gangi leiksins sem Eiður Orri Ragnsson kom gestunum úr Keflavík eftir korters leik. Kári Sigfússon sendi þá boltann fyrir og Eiður Orri kláraði færið sitt af stakri prýði.

Sóknarþungi Stjörnuliðins bar síðan loksins árangur þegar Emil Atlason jafnaði metin eftir 26 mínútna leik með stórglæsilegu marki. Stjörnumenn fengu þá aukaspyrnu rétt utan vítateigs og Emil gerði sér lítið fyrir og smurði boltann upp í samskeytin fjær.

Keflavík náði forystunni aftur sex mínútum síðar þegar Ásgeir Páll Magnússon skallaði boltann í netið af stuttu færi. Aftur gekk Keflavík illa að halda forskoti sínu þar sem Jóhann Árni var búinn að jafna á nýjan leik tveimur mínútum síðar. Alex Þór Hauksson gerði þá vel að vinna boltann á hættulegum stað og Emil Atlason lagði boltann fyrir fætur Jóhanns Árna sem skoraði með föstu og hnitmiðuðu skoti.

Benedikt Warén kom svo Stjörnunni yfir skömmu fyrir lok fyrir hálfleiks eftir laglegan samleik við Örvar Loga Örvarsson og staðan eftir fjörugan og skemmtilegan fyrri hálfleik var 3-2 Stjörnunni í vil.

Örvar Logi róaði svo taugar stuðningsmanna Stjörnunnar þegar hann kom liðinu í 4-2 í upphafi seinni hálfleiks. Örvar Logi sem skoraði síðast í maí árið 2023 tók boltann á lofti og lét skotið ríða af með hægri fæti. Boltinn þandi netmöskvana og söng í samskeytunum.

Lokatölur 4-2 fyrir Stjörnuna sem er þar af leiðandi komin í undanúrslit keppninnar. 

Atvik leiksins

Það litu kvöldsins ljós tvö mörk úr efstu hillu í þessum bráðskemmtilega bikarleik. Emil og Örvar Logi glöddu báðir auga með stórglæsilegum skotum sínum. Emil er vanari að vera á skotskónum en Örvar Logi dró sína markaskó fram í fyrsta skipti í rúm tvö ár.

Stjörnur og skúrkar

Örvar Logi lagði í púkkinn bæði stoðsendingu og mark. Jóhann Árni átti góðan leik inni á miðsvæðinu, var mikið í boltanum og kórónaði frammistöðu sína með smekklegu marki. Benedikt Warén var sprækur á vinstri kantinum en hann nældi í aukaspyrnuna sem Emil skoraði úr og skoraði svo sjálfur.

Sindri Kristinn Ólafsson varði nokkrum sinnum vel í marki Keflavíkur og verður ekki sakaður um þetta tap. Sindri Snær Magnússon stóð sig svo vel sem akkeri inni á miðsvæðinu. Kári Sigfússon skapaði nokkrum sinnum usla í vörn Stjörnuliðsins

Dómarar leiksins

Dómarar leiksins, Arnar Þór Stefánsson, Egill Guðvarður Guðlaugsson, Patrik Freyr Guðmundsson og Helgi Mikael Jónasson áttu fremur náðugt kvöld og dæmdu leikinn bara prýðilega. Létu leikinn flæða vel og það fór lítið fyrir þeim. Sú dómgæsla færir þeim átta í einkunn fyrir vel unninn störf.

Stemming og umgjörð

Fínasta stemming í Garðabænum í kvöld og bæði lið fengu fínan stuðning úr stúkunni. All tupp á tíu í umgjörð við blaðamenn eins og vanalega hjá Stjörnufólki.

Bein lýsing

Leikirnir






    Fleiri fréttir

    Sjá meira