Þetta kemur fram í umfjöllun bandaríska slúðurmiðilsins Page Six. Eins og fram hefur komið sáust þau úti að borða í London í febrúar. Þá spruttu upp sögusagnir um meintar ástir þeirra á milli. Sögðu heimildarmenn slúðurmiðlunum hinsvegar að þau hefðu skellt sér út að borða með umboðsmönnum sínum og að verið væri að ræða framtíðarmöguleika þeirra á samstarfi, enga rómantík.
Nú segir Page Six frá því að þau hafi skellt sér í þyrluferð saman yfir London. Papparassar náðu svo myndum af þeim á flugvellinum þar sem þau voru bæði skælbrosandi. Þau hoppuðu svo upp í leigubíl saman. Miðillinn segir að ekki hafi tekist að fá nein viðbrögð frá talsmönnum leikarana. Meint ástarsamband því enn á huldu þó þyrluferðin þyki skjóta stoðum undir þá kenningu.
Hinn 62 ára gamli Tom Cruise var síðast með rússnesku samfélagsmiðlastjörnunni Elsina Khayrova. Slúðurmiðlar sögðu hinsvegar frá því að slitnað hefði upp úr sambandi þeirra þar sem Cruise þótti þau hafa farið of geyst með sambandið. Hann hefði auk þess verið varaður við Khayrova af fyrrverandi eiginmanni hennar og orðið efins um allt heila klabbið.
Fátt hefur að sama skapi verið að frétta af ástarlífi hinnar 36 ára gömlu Önu de Armas. Hún sást leiða samlanda sinn og tengdason forseta Kúbu, Manuel Anido Cuesta í desember. Síðan hefur ekkert sést til þeirra saman en áður var de Armas að hitta Paul Boukadakis framkvæmdastjóra Tinder og þar áður stórstjörnuna Ben Affleck.
Tom Cruise, 62, and Ana de Armas, 36, touch down in London together after helicopter ride https://t.co/EYiO2ZqlRM pic.twitter.com/S6nsP6UKVs
— Page Six (@PageSix) March 16, 2025