Orri Steinn og félagar steinlágu í Katalóníu Runólfur Trausti Þórhallsson skrifar 2. mars 2025 14:46 Orri Steinn í leik dagsins. LLUIS GENE / AFP Barcelona valtaði yfir Real Sociedad í La Liga, spænsku efstu deild karla í knattspyrnu. Lokatölur í Katalóníu 4-0 og Barcelona er komið á toppinn. Orri Steinn var í byrjunarliði Sociedad sem var orðið manni færri eftir aðeins 17 mínútur þegar hinn þrítugi Aritz Elustondo fékk beint rautt spjald í liði gestanna. Það nýttu heimamenn sér en Dani Olmo lagði upp tvö mörk áður en fyrri hálfleikur var úti. Gerard Martin skoraði fyrra markið og Marc Casado að síðara. Staðan 2-0 í hálfleik. Ronald Araújo bæti við þriðja markinu og Robert Lewandowski því fjórða eftir undirbúning Araújo. Staðan því 4-0 þegar Orri Steinn var tekinn af velli á 77. mínútu. Lokatölur leiksins 4-0 og Barcelona komið á toppinn með 57 stig. Þar á eftir kemur Atlético Madríd með 56 stig og Real Madríd með 54 stig. Orri Steinn og félagar eru í 9. sæti með 34 stig. Spænski boltinn Fótbolti