Sjáðu Benóný stimpla sig inn hjá stuðningsmönnum Stockport Ingvi Þór Sæmundsson skrifar 2. mars 2025 12:01 Benoný Breki Andrésson varð markakóngur Bestu deildar karla á síðasta tímabili. vísir/hag Benóný Breki Andrésson skoraði sín fyrstu mörk fyrir enska C-deildarliðið Stockport County þegar það sigraði Blackpool, 2-1, í gær.
Benóný kom inn á sem varamaður í hálfleik og var ekki lengi að láta að sér kveða. Mínútu eftir að hafa komið inn á jafnaði hann metin í 1-1 með skoti úr vítateignum eftir sendingu frá Isaac Olaofe. Benóný var ekki hættur og þegar níu mínútur voru til leiksloka skoraði hann sigurmark Stockport með skalla eftir fyrirgjöf frá Callum Camps. Mörk Benónýs má sjá hér fyrir neðan. Fyrra markið er á 06:50 og það síðara á 09:30. Benóný hafði komið við sögu í tveimur leikjum hjá Stockport fyrir leikinn í gær. Hann vonast væntanlega eftir að fá tækifæri í byrjunarliði liðsins í næsta leik þess, gegn Northampton Town á þriðjudaginn. Stockport er í 4. sæti ensku C-deildarinnar með sextíu stig eftir 34 leiki. Efstu tvö liðin fara beint upp í B-deildina en liðin í 3.-6. sæti fara í umspil og keppast um síðasta lausa sætið í B-deildinni. Benóný, sem er nítján ára, gekk í raðir Stockport frá KR um áramótin. Hann skoraði 21 mark í Bestu deildinni á síðasta tímabili en enginn leikmaður hefur skorað fleiri mörk á einu tímabili í efstu deild á Íslandi. Alls skoraði Benóný 35 mörk í 56 leikjum í deild og bikar með KR.
Enski boltinn Mest lesið Býður sig fram á móti Infantino Fótbolti Ísland að beygja út af bakdyraleiðinni á EM? Fótbolti Bæði leikmönnum og áhorfendum í höllinni gert að víkja í miðjum leik Handbolti Næst ekki í Kane og tvísýnt hvort hann komi Körfubolti Komust í þriggja stafa tölu gegn nýliðunum Körfubolti Manchester City-goðsögn hættir við að hætta Fótbolti Áföllin halda áfram að dynja á Russell Formúla 1 Hafnaði Íslandi og er byrjaður með Bandaríkjunum Fótbolti Tarik framlengir við Víking Íslenski boltinn Leikmaður ársins missir af landsleikjum Körfubolti Fleiri fréttir Andar léttar: Skilorðsbundið bann fyrir njósnirnar Arteta framlengir við Arsenal Mun mæta fyrir dóm eftir ofsaakstur Óvæntur meðlimur á liðsmynd Manchester United Dregur sig úr landsliðshópnum Meiddist í Portúgal Sir Alex Ferguson var logandi hræddur Óttast um líf sitt og lætur sig hverfa Uppljóstrarinn í máli City sviptur vernd: „Staða hans er grafalvarleg“ City-menn búnir að áfrýja Annar til að hvolfa bílnum á mánuði Stjórnarformaður City nýtur diplómatískrar friðhelgi Klopp býr sig ekki undir að fá fleiri titla Forsætisráðherrann notið góðs af eigendum City og vill síður missa þá Etihad hótar að kæra ensku úrvalsdeildina Myndi henda öllum medalíum í ruslið Guardiola tjáir sig: „Við komumst í gegnum þetta saman“ Richards niðurbrotinn: „Hringdi grátandi í mig“ „Samsæri ensku úrvalsdeildarinnar gegn City“ Vandræðalegt viðtal við stjórnanda City Harðorð yfirlýsing Manchester City Tjáir sig um City: „Íþróttalegt réttlæti var ekki til staðar“ City sekir: Trufluðu rannsókn og svindl upp á 140 milljarða Fundaði með Sir Alex um að spila á miðjunni með Keane City vissi af dómnum í júlí og eyddi 450 milljónum Viðbrögðum framkvæmdastjóra Manchester City lekið í BBC Lætur Dean og Rooney heyra það: „Ekki séns að ég sætti mig við þetta kjaftæði“ Isak og Gakpo sendir meiddir heim Mancini tjáir sig um City: „Þeirra vandamál, ekki mitt“ Stjórnarformaður Manchester City tjáir sig Sjá meira