Sir Alex Ferguson var logandi hræddur Aron Guðmundsson skrifar 2. október 2026 23:15 Ferguson sneri aftur á Old Trafford og þakkar hér fólkinu á leikvanginum fyrir stuðninginn. Vísir/Getty Sir Alex Ferguson, goðsögn í knattspyrnuheiminum og fyrrverandi knattspyrnustjóri Manchester United, segist hafa verið logandi hræddur við að snúa aftur á sinn gamla heimavöll, Old Trafford, eftir að hafa jafnað sig á heilablóðfalli.
Það styttist í 85 ára afmæli þessa sigursæla knattspyrnustjóra og er hann að gefa út bók á næstunni þar sem hann fer yfir 21 af þýðingarmestu leikjum sínum á ferlinum sem bæði leikmaður og knattspyrnustjóri. Þegar Ferguson var 76 ára gamall, árið 2018, fékk hann heilablóðfall og þurfti að gangast undir neyðaraðgerð. Fjórum mánuðum seinna sneri hann aftur á gamla heimavöll sinn með Manchester United, Old Trafford. „Ég var logandi hræddur,“ sagði Ferguson í viðtali við BBC um endurkomu sína í Leikhús draumanna á þessum tíma. Eins og við var að búast risu allir úr sætum sínum á leikvanginum og hylltu þennan sigursæla stjóra. „Eiginkona mín var með mér og hún var næstum því farin að gráta. Þegar við settumst sagði hún: Þetta er frábært.“ Ferguson er þakklátur fyrir að geta sótt fótboltaleiki og talað um leikinn sem hann elskar. „Ég tapaði röddinni eftir aðgerðina. Ég gat ekki talað. Það var ógnvekjandi. Ég man að barnabörnin komu í heimsókn til mín og ég gat ekki talað,“ sagði Ferguson en blessunarlega kom málið aftur.
Enski boltinn Manchester United Fótbolti Mest lesið Sjóðheitur Orri sagður í sigti Everton Enski boltinn Draumurinn að þjálfa Blika Íslenski boltinn „Tek líklega ekki skrefið til Barcelona frá Blackburn“ Enski boltinn Enginn valdi Ísland fyrir næsta EM Handbolti Veigar opnar sig um lyfjamálið: „Ég var ekkert að fela neitt“ Körfubolti Omar Sowe kominn í KR-treyjuna Íslenski boltinn Sjáðu Fleetwood slá út Arsenal og Dowman sjá rautt Enski boltinn „Neyði menn ekki til að vera hérna“ Íslenski boltinn „Úff, hvað er ég búinn að koma mér út í hérna?“ Íslenski boltinn Aron Þórður hættur Íslenski boltinn Fleiri fréttir „Tek líklega ekki skrefið til Barcelona frá Blackburn“ Sjóðheitur Orri sagður í sigti Everton Sjáðu Fleetwood slá út Arsenal og Dowman sjá rautt Raddlaus eftir kraftaverk: Sáum Grimsby slá út Man. Utd og vildum gera eins Arsenal úr leik eftir tap gegn D-deildarliði Stöðvaði leik í drjúga stund vegna drónaflugs Sendi Haaland og fleiri í frí Framherjarnir þurfi að stíga upp Æðið vindur upp á sig og Gudjohnsen-merking ókeypis Stuðningsmennirnir fögnuðu Carrick en bauluðu á leikmennina Hver gæti tekið við af Carrick? Þurfti að sauma 50 spor eftir hundaárás Sakar leikmenn Manchester United um ófagmennsku utan vallar Man. United-stuðningsmaðurinn með hárið algjörlega búinn á því „Guð morning!“ Skaut á Liverpool eftir leikinn: „Aðeins eitt lið reyndi að skapa“ „Þetta snýst ekki um mig“ „Við verðum að líta í eigin barm“ Newcastle vann í London og sanngjarn jafntefli í Hull Liverpool - Brighton 2-0 | Góð byrjun kláraði mávana Manchester United - Bournemouth 0-3 | Niðurlægingin tekur engan endi Bruno settur á bekkinn Sjáðu rauða spjald Palmer og Arsenal jafna Man. City De Zerbi kátur eftir leik: „Nú er þetta fullmótað lið“ Tottenham vann tíu Chelsea-menn á Brúnni Lagði upp jöfnunarmark á sama tíma og hann missti markametið Andri Lucas skoraði tvö mörk í sigri á Hollywood-liðinu Arsenal vann og náði Manchester City að stigum Aston Villa - Manchester City 2-1 | Fyrstu töpuðu stig City í deildinni Verður Arsenal í vandræðum í fjarveru Saka? Sjá meira