Stjórnarformaður City nýtur diplómatískrar friðhelgi Valur Páll Eiríksson skrifar 1. október 2026 12:45 Khaldoon Al Mubarak, stjórnarformaður Manchester City, hefur notið diplómatískrar friðhelgi á Bretlandi frá árinu 2020. Getty Khaldoon Al-Mubarak, stjórnarformaður Manchester City, nýtur diplómatískrar friðhelgi í Bretlandi vegna samstarfsverkefna stjórnvalda Bretlands og Sameinuðu arabísku furstadæmanna. Bresk yfirvöld gætu því ekki kært hann vegna brota City á reglum ensku úrvalsdeildarinnar, kæmi til þess.
Í ljósi geigvænlegra og áralangra brota Manchester City á fjárhagsreglum ensku úrvalsdeildarinnar og UEFA hafa ýmsir aðilar kallað eftir sakamálarannsókn gagnvart stjórnendum enska félagsins fyrir svik. Khaldoon Al-Mubarak er stjórnarformaður enska félagsins en jafnframt háttsettur embættismaður frá Abú Dabí. Hann er einn af traustustu ráðgjöfum forseta Sameinuðu arabísku furstadæmanna og er einnig forstjóri ríkisfjárfestingasjóðs Abú Dabí, Mubadala. Hann var settur á opinberan lista Bretlands yfir viðurkennda diplómata árið 2020. Það veitir honum sjálfkrafa friðhelgi gegn hvers kyns sakamálarannsókn og verndar hann einnig fyrir flestum einkamálum. Enska úrvalsdeildin tilkynnti á þriðjudag að óháð nefnd hefði fundið City sekt um öll ákæruatriði sem tengjast alvarlegum brotum á fjármálareglum deildarinnar, í kjölfar rannsóknar sem hófst árið 2018. Óháða nefndin komst að því að City notaði einkafyrirtæki sem var stjórnað af eigandanum Sheikh Mansour bin Zayed al-Nahyan, sem einnig gegnir háttsettum embættum í ríkisstjórn Sameinuðu arabísku furstadæmanna, til að greiða félaginu um 900 milljónir punda dulið sem fé frá styrktaraðilum. Félagið, sem hefur verið í eigu meðlims konungsfjölskyldunnar í Abú Dabí síðan 2008, „faldi raunverulega stöðu fjármála sinna fyrir endurskoðendum sínum og eftirlitsaðilum knattspyrnunnar“ til að komast hjá útgjaldatakmörkunum á árunum 2009 til 2018, að sögn deildarinnar. City neitar ásökununum staðfastlega og mun áfrýja úrskurðinum. Gæti opnað á einkamál eða sakamál Niðurstöðurnar, ef þær verða staðfestar, gætu opnað fyrir frekari málaferli samkvæmt Financial Times. Það gæti falið í sér einkamál frá öðrum félögum í ensku úrvalsdeildinni sem telja sig hafa orðið af árangri á vellinum vegna aðgerða City. Einnig er möguleiki á sakamálarannsóknum af hálfu efnahagsbrotadeildar bresku lögreglunnar. Financial Times hefur eftir Tom Forster, lögmanni sem sérhæfir sig í fjármálaglæpum, að „ef sannanir eru fyrir hendi um kerfisbundið rangt bókhald og önnur brot á félagalögum þá er veruleg hætta á að bæði fyrirtækið og einstaklingar eigi yfir höfði sér sakamálarannsókn og saksókn“. Opinber störf eða einkastörf? Diplómatísk friðhelgi Mubarak gæti flækt frekari lagalegar aðgerðir gegn félaginu, að sögn lögfræðinga, þar sem hún verndar einstakling að mestu leyti gegn því að vera lögsóttur eða ákærður í sakamálarannsókn í landinu þar sem hann eða hún er sendifulltrúi. Samkvæmt frétt Financial Times hefði Mubarak friðhelgi gegn einkamálum sem tengjast „opinberum störfum hans.“ Þá liggur hins vegar á reiki hvar mörkin liggja og hvort aðskilja megi störf hans fyrir City og opinbera fjárfestingarsjóðsins Mubadala. Það sé vafamál hvort sú starfsemi teljist sem hluti opinberru starfanna eða sé alfarið einkamál. Mikil efnahagsleg tengsl Niðurstöður nefndar ensku úrvalsdeildarinnar gætu reynt á samskipti Bretlands og Sameinuðu arabísku furstadæmanna. Árið 2021 hófu löndin tvö samstarf um ríkisfjárfestingar þar sem Mubadala (þar sem Mubarak er forstjóri) var aðalfjárfestirinn. Samningurinn hefur síðan skilað 30 milljarða punda fjárfestingarskuldbindingum frá Sameinuðu arabísku furstadæmunum til Bretlands, undir eftirliti Mubaraks. Því er haldið fram að umrætt samstarf ríkjanna hafi stutt við 48.000 störf í Bretlandi „og búist er við 280.000 til viðbótar fyrir árið 2030.“
Manchester City Fjármál Manchester City til rannsóknar Enski boltinn Sameinuðu arabísku furstadæmin Bretland England Mest lesið Sjóðheitur Orri sagður í sigti Everton Enski boltinn Draumurinn að þjálfa Blika Íslenski boltinn Enginn valdi Ísland fyrir næsta EM Handbolti „Tek líklega ekki skrefið til Barcelona frá Blackburn“ Enski boltinn Veigar opnar sig um lyfjamálið: „Ég var ekkert að fela neitt“ Körfubolti Omar Sowe kominn í KR-treyjuna Íslenski boltinn Sjáðu Fleetwood slá út Arsenal og Dowman sjá rautt Enski boltinn Arnar spenntur og „no komment“ frá Magnúsi Íslenski boltinn „Neyði menn ekki til að vera hérna“ Íslenski boltinn „Úff, hvað er ég búinn að koma mér út í hérna?“ Íslenski boltinn Fleiri fréttir „Tek líklega ekki skrefið til Barcelona frá Blackburn“ Sjóðheitur Orri sagður í sigti Everton Sjáðu Fleetwood slá út Arsenal og Dowman sjá rautt Raddlaus eftir kraftaverk: Sáum Grimsby slá út Man. Utd og vildum gera eins Arsenal úr leik eftir tap gegn D-deildarliði Stöðvaði leik í drjúga stund vegna drónaflugs Sendi Haaland og fleiri í frí Framherjarnir þurfi að stíga upp Æðið vindur upp á sig og Gudjohnsen-merking ókeypis Stuðningsmennirnir fögnuðu Carrick en bauluðu á leikmennina Hver gæti tekið við af Carrick? Þurfti að sauma 50 spor eftir hundaárás Sakar leikmenn Manchester United um ófagmennsku utan vallar Man. United-stuðningsmaðurinn með hárið algjörlega búinn á því „Guð morning!“ Skaut á Liverpool eftir leikinn: „Aðeins eitt lið reyndi að skapa“ „Þetta snýst ekki um mig“ „Við verðum að líta í eigin barm“ Newcastle vann í London og sanngjarn jafntefli í Hull Liverpool - Brighton 2-0 | Góð byrjun kláraði mávana Manchester United - Bournemouth 0-3 | Niðurlægingin tekur engan endi Bruno settur á bekkinn Sjáðu rauða spjald Palmer og Arsenal jafna Man. City De Zerbi kátur eftir leik: „Nú er þetta fullmótað lið“ Tottenham vann tíu Chelsea-menn á Brúnni Lagði upp jöfnunarmark á sama tíma og hann missti markametið Andri Lucas skoraði tvö mörk í sigri á Hollywood-liðinu Arsenal vann og náði Manchester City að stigum Aston Villa - Manchester City 2-1 | Fyrstu töpuðu stig City í deildinni Verður Arsenal í vandræðum í fjarveru Saka? Sjá meira