Leik lokið: Stjarnan - Tindastóll 82-90 | Tindastóll tyllti sér á toppinn Ágúst Orri Arnarson skrifar 2. febrúar 2025 18:30 Stólarnir eru á toppnum eftir sigur kvöldsins. Vísir/Jón Gautur Tindastóll vann sterkan átta stiga sigur er liðið heimsótti Stjörnuna í toppslag Bónus-deildar karla í körfubolta í kvöld, 82-90. Stjörnustemning í upphafi leiks Stjörnumenn byrjuðu af gríðarlegum krafti, Orri Gunnarsson setti fyrstu stigin með þriggja stiga skoti og Shaquille Rombley tróð svo af alefli í næstu sókn. Stúkan tók strax við sér og stemningin var öll Stjörnumegin fyrstu mínúturnar. Á voru meðan Stólarnir í vandræðum sóknarlega en gátu sem betur fer treyst á Adomas Drungilas, sem setti fyrstu átta stigin, áður en aðrir leikmenn tóku við sér. Stólarnir stóðu varnirnar vel Eftir afar öfluga byrjun fjaraði hins vegar fljótt út hjá Stjörnunni og liðið lenti undir í baráttunni. Tindastóll nýtti tækifærið og tók eins stigs forystu áður en fyrsta leikhluta lauk. Stólarnir héldu svo áfram að keyra á Stjörnumenn og stækkuðu forystuna í öðrum leikhluta, staðan 37-46 þegar flautað var til hálfleiks. Stólarnir héldu áfram að standa öfluga vörn í seinni hálfleik, Stjarnan fann engar lausnir og stemningin í húsinu dvínaði með hverri mínútunni sem Stólarnir færðust nær sigrinum. Stutt áhlaup heimamanna undir lokin Það var ekki fyrr en í fjórða leikhluta sem Stjörnumenn sýndu aftur almennilega að þeim langaði til að vinna leikinn. Shaquille Rombley og Hilmar Smári kveiktu í húsinu með troðslu og þriggja stiga skoti, Adomas Drungilas var svo vikið af velli eftir fimmtu villuna í næstu sókn Tindastóls. Stjarnan minnkaði muninn niður í sex stig í næstu sókn og virtist ætla að snúa leiknum við. Sigtryggur stakk rýtingnum Það gerðist hins vegar ekki, Sigtryggur Arnar svaraði fyrir Stólana, setti niður gríðarmikilvægan þrist sem breikkaði bilið í átta stig og svo gott sem tryggði sigurinn. Síðustu tvær mínútur leiksins settu Stjörnumenn snögg skot og sendu Stólana á línuna, en tókst ekki að minnka muninn. Lokatölur 82-90. Staðan í deildinni Tindastóll tók toppsætið með þessum sigri. Liðin eru jöfn með 26 stig en Tindastóll hefur unnið báðar innbyrðis viðureignirnar. Njarðvík er sex stigum neðar en á leik til góða. Leikurinn fór fram fyrr en aðrir í sautjándu umferð vegna anna Benedikt Guðmundssyni, þjálfara Tindastóls, með kvennalandsliði Íslands. Hvað er framundan? Bæði lið fá nú fínt frí, þar til fimmtudagsins 13. febrúar þegar Stjarnan heimsækir Hött og Tindastóll tekur á móti Þór Þorlákshöfn. Fimm umferðir eru eftir óspilaðar í deildinni. Tindastóll á eftir leiki við Þór Þorlákshöfn (H), Álftanes (Ú), Keflavík (H), Njarðvík (Ú) og Val (H). Stjarnan á eftir leiki við Hött (Ú), Þór Þorlákshöfn (Ú), Álftanes (H), Keflavík (Ú) og Njarðvík (H). Bónus-deild karla Stjarnan Tindastóll
Uppgjörið: Höttur - Tindastóll 85-97 | Tindastóll eltir Stjörnuna áfram á toppnum eftir sigur á Egilsstöðum