Lífið

Will Ferrell ætlar með Husavik á Broadway

Oddur Ævar Gunnarsson skrifar
Will Ferrell og Rachel McAdams í hlutverkum sínum í Eurovision myndinni sem tekin var upp hér á landi.
Will Ferrell og Rachel McAdams í hlutverkum sínum í Eurovision myndinni sem tekin var upp hér á landi.

Bandaríski leikarinn Will Ferrell ætlar að umbreyta Eurovision kvikmyndinni sem sló í gegn árið 2020 í söngleik á Broadway. Hann segist einfaldlega ekki geta slitið sig frá Eurovision.

Þessu greindi leikarinn frá í spjallþætti breska sjónvarpsmannsins Graham Norton um helgina. Eurovision myndin var gefin út á Netflix og hverfðist um íslensku Eurovision keppendurna Lars Erickssong og Singrit Ericksdottir. Will Ferrell fór með hlutverk Lars og Rachel McAdams með hlutverk Singritar auk þess sem Ferrell átti hugmyndina og skrifaði handritið.

Aðalsögusvið myndarinnar á Íslandi var heimabær persónanna í Húsavík auk þess sem samnefnda lagið Husavik naut gríðarlegra vinsælda. Íbúar í bænum sögðu í samtali við fréttastofu í kjölfar frumsýningar myndarinnar í júní hafa fundið fyrir auknum áhuga ferðamanna á bænum. Nú er búið að koma þar fyrir álfabyggð og Eurovision safni og ljóst að áhuginn mun ekki minnka eftir að söngleikur verður settur á svið.

Í rannsóknarvinnu í Malmö

Í þætti spjallþáttastjórnandans Graham Norton sem einmitt sjálfur lýsir keppninni í Bretlandi sagðist Will Ferrell hafa verið viðstaddur Eurovision í Malmö í Svíþjóð á síðasta ári. Það er ekki fyrsta keppnin sem hann er viðstaddur enda mikill aðdáandi.

„Við erum að reyna að þróa þetta í Broadway söngleik. Við fórum með lagahöfundi og leikstjóra [á Eurovision] þar sem þeir höfðu aldrei séð keppnina. Það vill svo til að konan mín er sænsk, þannig að Malmö Svíþjóð, Eurovision og hér erum við!“

Husavik var meðal annars tilnefnt til Óskarsverðlauna. Sænska söngkonan Molly Sanden mætti til Húsavíkur þar sem sérstakt myndband var tekið upp af því tilefni með Húsvíkingum. 

Ferrell hefur áður sagt að þegar hann hafi fyrst séð keppnina hafi hann einfaldlega setið þögull í þrjá tíma. Hann hafi verið gjörsamlega gáttaður og yfir sig hrifinn.

„Þetta fór úr stórkostlegum atriðum til algjörlega fáránlegra og ég man ég sat á þessari stundu og hugsaði bara: „Þetta væri frábær bíómynd en ég bjóst við því að einhver í Evrópu hefði þegar gert þetta.“

Kristján Már Unnarsson fréttamaður Stöðvar 2 heimsótti Húsavík stuttu eftir frumsýningu Eurovision myndarinnar árið 2020. 


Tengdar fréttir

Gefa út íslenska útgáfu af laginu Húsavík

„Signý Gunnarsdóttir samdi íslenskan texta við Husavik - My Hometown og skoraði á okkur Ödda í hljómsveitinni Kókos að taka lagið. Við að sjálfsögðu tókum áskoruninni og smelltum í smá gigg.“






Fleiri fréttir

Sjá meira


×


Tarot dagsins

Dragðu spil og sjáðu hvaða spádóm það geymir.