Handbolti

Önnur U-beygja og Haf­steinn gæti enn mætt Ís­landi

Sindri Sverrisson skrifar
Hafsteinn Óli Berg Ramos Rocha var valinn í landsliðs Grænhöfðaeyja í fyrsta sinn í vetur.
Hafsteinn Óli Berg Ramos Rocha var valinn í landsliðs Grænhöfðaeyja í fyrsta sinn í vetur. vísir/Bjarni

Strákarnir okkar gætu enn þurft að glíma við landa sinn, Hafstein Óla Berg Ramos Rocha, í fyrsta leiknum á HM í handbolta. Hafsteinn hefur á ný verið kallaður inn í landsliðshóp Grænhöfðaeyja.

Þetta fullyrðir handboltasérfræðingurinn Logi Geirsson á Twitter, en á föstudaginn var sagt frá því að Hafsteinn fengi ekki sæti í 16 manna hópi Grænhöfðaeyja og væri því á heimleið frá Zagreb.

Logi Geirsson segir Hafstein á ný í landsliðshópi Grænhöfðaeyja.Skjáskot/Twitter

Hafsteinn, sem er leikmaður Gróttu í Olís-deildinni, var í fyrsta sinn valinn í landslið Grænhöfðaeyja í nóvember, fyrir leiki við Kúveit, Barein og Túnis. Hann hafði þá verið í sambandi við forráðamenn handknattleikssambands Grænhöfðaeyja í nokkurn tíma:

„Fyrir síðustu jól [fyrir rúmu ári] heyrðu þeir í pabba mínum. Við töluðum svo saman í nokkra mánuði og síðan í sumar fór ég til Grænhöfðaeyja og fékk ríkisborgararéttinn þar. Ég var þar í tíu daga að græja pappíra og allt það. Eftir það kom ég heim og heyrði ég í þjálfaranum. Síðan var maður mættur þarna á mót í Kúveit í byrjun nóvember. Það gekk vel og maður fékk hellings spiltíma, þrjátíu mínútur í leik,“ sagði Hafsteinn aðspurður um hvernig það hefði atvikast að hann var valinn í landslið Grænhöfðaeyja.

Hafsteinn var svo valinn í 18 manna hóp Grænhöfðaeyja fyrir HM og fór með liðinu til Zagreb þar sem liðið spilar sína leiki líkt og íslenska landsliðið. Hann fékk hins vegar óvænt þær fréttir fyrir helgi að hann og annar leikmaður væru á heimleið, en það virðist svo hafa breyst miðað við færslu Loga hér að ofan.

HM hefst í dag en keppni í riðli Íslands hefst á fimmtudaginn þegar liðið mætir Grænhöfðaeyjum klukkan 19:30.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×