Körfubolti

Forðað frá gosi um miðja nótt og sáu hraunið flæða yfir húsin á pílumóti

Sindri Sverrisson skrifar
Morten Szmiedowicz og Guðríður Hanna Sigurðardóttir fylgdust með þegar glóandi hraun rann inn í götuna þeirra í Grindavík, í beinni útsendingu.
Morten Szmiedowicz og Guðríður Hanna Sigurðardóttir fylgdust með þegar glóandi hraun rann inn í götuna þeirra í Grindavík, í beinni útsendingu. Stöð 2 Sport/Grindavík

Í þriðja þætti heimildaþáttaraðarinnar Grindavík er meðal annars farið yfir daginn örlagaríka fyrir sléttu ári síðan, þegar hraun rann inn í bæinn. Guðríður Hanna Sigurðardóttir og Morten Szmiedowicz voru á meðal þeirra sem sáu húsið sitt verða hrauninu að bráð í beinni sjónvarpsútsendingu.

Þann 14. janúar fyrir ári síðan opnaðist sprunga við Grindavík, fyrir innan varnargarðinn sem verið var að reisa. Áhrifaríkar lýsingar Grindvíkinga og annarra á því sem gerðist má sjá í nýjasta þætti Grindavíkur-seríunnar, sem finna má meðal annars á Stöð 2+.

Um leið og þetta nýja eldgos hófst, 14. janúar, var öllum sem dvöldu í Grindavík komið í burtu og auk þess tókst með naumindum að forða dýrum vinnutækjum af vettvangi, sem notuð höfðu verið til að reisa varnargarðinn nærri Grindavík.

„Í þessu tilviki voru menn að tefla djarft“

„Ég veit að það var það mikill hiti á tækjunum að það var rúða þarna í jarðýtu sem var nánast bráðnuð af hita. Það er eins gott að öll tæki fóru í gang og menn komust í burtu. Í þessu tilviki voru menn að tefla djarft,“ segir Jón Gunnar Margeirsson, framkvæmdastjóri Jóns og Margeirs. Brot úr þættinum má sjá hér að neðan.

Klippa: Grindavík - Þegar hraun flæddi inn í bæinn

Sprunga opnaðist fyrir innan varnargarðinn og hraun rann inn í Grindavík.

„Þetta er GALIÐ. Það er galið að sitja við sjónvarp og horfa á eldgos renna inn í bæinn manns,“ segir körfuboltaþjálfarinn Bryndís Gunnlaugsdóttir.

„Labbaði bara út og horfði ekkert meira“

Morten Szmiedowicz og Guðríður Hanna Sigurðardóttir voru íbúar í Efrahópi 18 og gleyma sjálfsagt aldrei 14. janúar 2024:

„Við vorum í Grindavík aðfaranótt sunnudagsins [14. janúar]. Ég vakna klukkan þrjú um nóttina, við grípum það sem við erum með, og keyrum inn í Reykjavík. Við förum til vinafólks okkar, því við vorum að fara á pílumót. Á þessu móti var risaskjár og þessu var bara varpað á skjáinn. Maður horfði bara á eldgosið koma nær og nær og nær,“ segir Hanna.

„Svo allt í einu í hádeginu er búið að kvikna í húsunum við húsið okkar. Svo bara hægt og rólega dreifir þetta úr sér, og ég man þannig séð ekki mikið meira eftir það. Maður labbaði í gegnum hópinn og það var fullt af fólki að leggja höndina á mann [klappa á öxlina] en ég man ekkert hverjir það voru eða hvað þau sögðu. Ég labbaði bara út og horfði ekkert meira,“ segir Hanna en hægt er að sjá allan þáttinn á á Stöð 2+ á vefnum sjonvarp.stod2.is eða í sjónvarpi.


Tengdar fréttir

„Maður fær bara hnút í magann að koma hingað inn“

Bræðurnir Jóhann Þór og Ólafur Ólafssynir eru allt í öllu í karlaliði Grindavíkur í körfuboltanum. Jóhann þjálfar liðið og Ólafur er fyrirliði liðsins. Þegar Grindvíkingar þurftu að flýja bæinn sinn á síðasta tímabili þá reyndi mjög mikið á þá tvo við að halda liðinu gangandi.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×