Körfubolti

Kært vegna ras­isma í Garða­bæ

Sindri Sverrisson skrifar
Kært er vegna hrópa sem heyrðust frá áhorfendum í leik KFG og Stjörnunnar á laugardag.
Kært er vegna hrópa sem heyrðust frá áhorfendum í leik KFG og Stjörnunnar á laugardag. Skjáskot/veo

Kæra liggur inni á borði Körfuknattleikssambands Íslands eftir að dómari í leik KFG og Breiðabliks, í leik í 1. deild karla í Garðabæ, var beittur kynþáttaníði.

Þetta hefur mbl.is eftir heimildum en á myndbandi má heyra að kallað er að dómara í leiknum, af áhorfendapöllunum: „Ertu of ská­eygður til að sjá þetta.“ Ekki sést þó á upptökunni hver lét þessi orð falla.

Leikið var í Umhyggjuhöllinni í Garðabæ og heyrast köll áhorfenda að dómurum eftir að Kristján Örn Ómarsson, leikmaður Breiðabliks, ýtti við Atla Hrafni Hjartarsyni, leikmanni Stjörnunnar, sem féll í gólfið. Boltinn var þá hvergi nærri og fór atvikið framhjá dómurum leiksins.

Dómararnir, þeir Einar Valur Gunnarsson og Federick Alfred U Capellan, hafa nú lagt fram kæru samkvæmt frétt mbl.is og beinis kæran að KFG, Knattspyrnufélagi Garðabæjar, sem umsjónaraðila leiksins.

KFG vann leikinn eftir framlengingu, 108-101, og er með 10 stig í 6. sæti deildarinnar en Breiðablik er sæti ofar með 14 stig.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×