Skoðun

Valdefling kvenna – öllum til góðs

Jódís Skúladóttir skrifar

Mér hlotnaðist sá heiður að sækja Þing kvennanefndar Sameinuðu þjóðanna sem sett var í New York í síðustu viku.

Megin þema fundarins að þessu sinni var að hraða árangri er varða kynjajafnrétti og valdeflingu allra kvenna og stúlkna með því að takast á við fátækt og styrkja stofnanir og fjármögnun með kynjaðri heildarsýn.

Fjöldi viðburða var í boði á þinginu en auk þess að sótti ég fundi með þingmönnum Norðurlandanna og kynningar frá hinum ýmsu stofnunum Sameinuðu þjóðanna.

Krafturinn er áþreifanlegur þegar raddir kvenna alls staðar að úr heiminum fá að heyrast. Allar vilja þær sjá réttlátara samfélag þar sem konur koma með beinum hætti að ákvörðunartöku um líf sitt og velferð. Ungmenni frá öllum heimshornum komu saman til að ræða framtíðarsýn sína um að binda enda á fátækt og efla jafnrétti kynjanna.

Kraftmikill viðburður var á vegum BSRB og Stígamóta á þinginu um kröfur Kvennaverkfallsins og samspil vanmats á virði kvennastarfa og ofbeldis. Þær Sonja Ýr Þorbergsdóttir, formaður BSRB, Drífa Snædal, talskona Stígamóta og Freyja Steingrímsdóttir, samskiptastjóri BSRB, fjölluðu um ástæður Kvennaverkfallsins 2023 og fóru yfir aðdraganda þess í máli og myndum. Einnig fjölluðu þær um kynbundið og kynferðislegt ofbeldi á Íslandi og leiðir til að stemma stigu við því. Viðburðurinn var vel sóttur og vakti talsverða athygli.

Bergrún Andradóttir, skrifstofustjóri Samtakanna 78, Tatjana Latinovic, formaður Kvenréttindafélags Íslands og Stella Samúelsdóttir, framkvæmdarstýra UN Women á Íslandi héldu einnig stuttar hugvekjur á viðburðinum.

Kvennaþingið er haldið skugga ólýsanlegra þjáninga sem stríðsátök víða um heim valda.

Það sem situr eftir er sú sára staðreynd að í auknu stríðsbrölti og hervæðingu heimsins eru það fyrst og fremst konur og börn sem líða. Stríð, fátækt, náttúruhamfarir og bakslag mannréttinda, allt bitnar þetta mest á konum. Á sama tíma er konum markvist haldið utan ákvörðunartöku og spurt var á fundinum: Hvar eru konurnar í friðarviðræðum?

Það er staðreynd að karlar leika lykilhlutverk í hinu hörmulega valdatafli sem nærir og hvetur til átaka um allan heim en konur og börn eru þau sem fyrst og fremst líða.

Rödd Íslands er dýrmæt í þessum aðstæðum, jafnrétti og friðarboðskapur eru þau gildi sem við getum lagt til málanna á ófriðartímum þegar mannréttindi eiga undir högg að sækja, ekki síst réttindi kvenna.

Höfundur er þingmaður Vinstrihreyfingarinnar -græns framboðs.




Skoðun

Sjá meira


×