Skoðun

Um á­hyggjur

Guðmundur Arnar Sigurðsson skrifar

Áhyggjum má skipta í litlar og miklar. Miklar áhyggjur trufla daglegt líf mikið en litlar lítið. Sumir hafa miklar áhyggjur af því sem aðrir hafa litlar áhyggjur af og öfugt. Þar af leiðandi er ekki hægt að gefa sér að ákveðnar áhyggjur séu litlar og aðrar miklar.

Áhyggjur eru stundum eins og biluð plata. Áhyggjur spretta stundum fram eins og gorkúlur. Allar eru þær ágengar. Litlar áhyggjur eru eins og börn sem suða í þér um að fá annan ís, miklar áhyggjur eins og sölumenn dauðans sem hafa hag af að ná til þín. Þær trufla einbeitinguna, þú missir sjónar af því sem er mikilvægt.

Hvað á að gera við áhyggjur?

Sumar áhyggjur geturðu auðveldlega hrist af þér. Þú getur hlegið að þeim og snúið þér aftur að því sem þú varst að fást við. Ef þú upplifir ónotalega tilfinningu í tengslum við áhyggjur þínar, skaltu viðurkenna tilfinninguna og vonandi geturðu svo snúið þér að verkefni þínu. Stundum þarftu samt að gefa þér tíma til að skoða áhyggjurnar og gá hvort þær standist skoðun.

Ef þú hefur áhyggjur af því að þér sé ekki að takast að framkvæma eitthvað eins vel og þú vilt er gott að skrifa á raunsæjan hátt um framgöngu þína. Hvað gengur vel og hvað má betur fara? Gerðu síðan breytingar til batnaðar.

Ef þú komst illa fram við einhvern þá er gott að þú hafir miklar áhyggjur af því hvernig viðkomandi líði. Kannski er best að hafa samband, kannski ekki, það fer eftir aðstæðum. Það mikilvægasta er að einsetja sér að bæta hegðun sína og halda áfram.

Ef þú hefur áhyggjur af því að einhverjum líki ekki við þig, mundu þá að ekki er hægt að stjórna því hvað öðrum finnst um þig. Í einhverjum tilvikum á við að losa um spennu sem hefur myndast á milli þín og viðkomandi með því að ræða málin. Stundum líkar einhverjum illa við þig og þú getur ekkert gert í því. Í mörgum tilvikum eru áhyggjurnar þó uppblásnar og standast ekki skoðun. Fólk er ekki að pæla eins mikið í þér og þú heldur.

Áhyggjur eru stundum mikilvæg áminning um að breyta hegðun, viðvörunarljós eftir hrapaleg mistök, en oftast eru áhyggjur gruggugt baðvatn sem brúnaþung manneskja hrærir í með priki.

Ný hugmynd streymir til þín eins og vatn úr sturtuhaus.

Hvað ætlarðu að gera við nýju hugmyndina? Skrifa sögu?

Höfundur er heimspekikennari í Réttarholtsskóla.




Skoðun

Skoðun

21 blár

Jón Pétur Zimsen skrifar

Sjá meira


×