Skoðun

Á­fram eða aftur­á­bak?

Guðmundur Árni Stefánsson skrifar

Hún er dálítið skrýtin tík þessi pólitík - að minnsta kosti í Hafnarfirði. Hér eru nokkur dæmi um samskipti jafnaðarmanna í bæjarstjórn við svonefndan meirihluta Sjálfstæðisflokks og Framsóknarflokks. Þar sem þeir fyrrnefndu leggja til markviss skref til að auka velferð bæjarbúa, en þeir síðarnefndu þrjóskast við og vilja kyrr kjör.

Aukum velferð - Í reynd

Allflestir eru sammála því að það beri lækka matarkostnað nemenda í leik- og grunnskólum umtalsvert og tryggja þannig að allir geti sótt sér heilsusamlega og nauðsynlega næringu í leik og starfi. Ekki síst eftir 33% óheyrilega hækkun gjaldskrár nýverið. Það er skynsamlegt að hækka frístundastyrk barna og ungmenna verulega. Þátttaka í íþrótta- og tómstundastarfi eykur hreysti og lífsgæði. Um það er ekki deilt.

Almenn samstaða er um að samþætta heimahjúkrun og heimilishjálp og treysta þannig þjónustuna til aldraðra og öryrkja. Allir tala hátt um mikilvægi þess að tryggja jafnt og stöðugt lóðaframboð, þannig megi tryggja hagkvæmt húsnæði fyrir alla og draga úr ójafnvægi á húsnæðismarkaði. Einnig að ráðist verði í byggingu þjónustuíbúða fyrir aldraða og stúdenta.

Flestir skilja mikilvægi þess að bregðast við löngum biðlistum eftir félagslegu húsnæði með því að fjölga slíkum íbúðum. Þegar almennt launafólk býr við háa verðbólgu og ofurvexti, þá sjá langflestir skynsemi í því, að ríki og sveitarfélög stilli í hóf gjaldskrárhækkunum og skattálögum, svo sem í fasteignasköttum. Það var sýn jafnaðarfólks í Hafnarfirðinum. Þannig er komið til móts við almenning og aðila vinnumarkaðarins sem undirbúa sig undir erfiða kjarasamninga á næstu vikum.

Nei nei pólitík

Um þessi mál er almenn sátt og samstaða í orði kveðnu. En ekki í Hafnarfirði - ekki hjá meirihluta Sjálfstæðisflokksins og Framsóknar. Samfylkingin - jafnaðarflokkur Íslands lagði fram skýrar og afdráttarlausar tillögur um þessi mál og miklu fleira í þessum dúr á bæjarstjórnarfundi 4. desember síðastliðinn, þegar fjárhagsáætlun komandi árs var til afgreiðslu. 

Allar voru tillögurnar fullfjármagnaðar með raunhæfum sérstökum tillögum í þá veru. En allt kom fyrir ekki. Meirihluti helmingaskiptaflokkanna í bæjarstjórn Hafnarfjarðar felldi þær allar eða vísaði frá!

Jafnaðarmenn vildu efla velferðina og lækka þjónustugjöld, en hægri flokkarnir fóru í þveröfuga átt.

Áfram eða kyrrstaða

Það er með stundum hægt að skipta stjórnmálaflokkum í tvo hópa: Þeir sem vilja horfa fram á við með skýr markmið að leiðarljósi og svo hinir sem troða marvaðann og spóla í farinu. Þannig er bæjarpólitíkin í Hafnarfirði. 

Jafnaðarmenn sem vilja láta verkin tala og auka velsæld. Og svo helmingaskiptaflokkarnir , D og B, sem vilja bara vera og sitja - meðan sætt er.

Hún er kannski ekki svo skrýtin pólitíkin í Hafnarfirði eftir allt saman! Hún endurspeglar ef til vill bara stjórnmálin eins og þau eru í raun - valkostina milli framsýni og raunsæi og svo kyrrstöðu um völd. Vilja menn áfram eða afturábak?

Höfundur er oddviti Samfylkingarinnar - jafnaðarflokks Íslands í Hafnarfirði.




Skoðun

Skoðun

21 blár

Jón Pétur Zimsen skrifar

Sjá meira


×