Skoðun

Jafnrétti hefur ekki verið náð í Kópavogi

Indriði Ingi Stefánsson, Árni Pétur Árnason, Matthías Hjartarson og Þorgeir Lárus Árnason skrifa

Píratar styðja baráttu kvenna og kvára fyrir jafnrétti og taka undir þau meginmarkmið kvennaverkfalls að kynbundnu og kynferðislegu ofbeldi verði útrýmt og að störf kvenna og kvára verði metin að verðleikum.

Þrátt fyrir að Kópavogsbær skreyti sig með jafnlaunavottun er ekki hægt að fullyrða að jafnrétti hafi verið náð í Kópavogi. Má þar nefna að nú þegar hálft annað ár er liðið frá kosningu nýrrar bæjarstjórnar hundsar meirihluti Sjálfstæðisflokks og Framsóknar ennþá bæði jafnréttis- og sveitarstjórnarlög með því að skipa einungis fólk af öðru kyninu í nefndir og ráð á vegum bæjarstjórnar, þrátt fyrir bæði ítrekaðar athugasemdir af okkar hálfu sem og afskipti Jafnréttisstofu. Lögfræðingur Kópavogsbæjar hefur staðfest það í minnisblaði að skipanin uppfylli ekki kröfur laganna um jöfn kynjahlutföll.

Í sumar stóð meirihluti bæjarstjórnar fyrir umdeildri breytingu á fyrirkomulagi reksturs leikskóla í Kópavogi. Foreldrar eru hvattir til þess að stytta vistunartíma barna sinna og þeir sem ekki gera það þurfa nú að greiða um 40% hærri vistunargjöld en áður. Lítið samráð átti sér stað við foreldra áður en breytingin tók gildi og ekkert jafnréttismat var gert á tillögunni, en ef marka má reynslusögur foreldra undanfarnar vikur kemur breytingin sennilega verr niður á atvinnuþátttöku kvenna en karla.

Við Píratar höfum leitt ýmsar nauðsynlegar breytingar í átt að auknu jafnrétti í bænum. Má þar nefna kynhlutlausa klefa í sundlaugum Kópavogs, samræmt verklag við auglýsingar starfa á vegum bæjarins þar sem gera á ráð fyrir öllum kynjum, og um þessar mundir er í gangi vinna við endurskoðun á reglum um val á íþróttafólki ársins þar sem stendur til að skapað verði rými fyrir kynsegin íþróttafólk við tilnefningarnar.

Kópavogsbær á góða stefnu um einelti, kynferðislega og kynbundna áreitni og ofbeldi meðal starfsfólks bæjarins. Við Píratar höfum nú í hátt í fimm ár talað fyrir því að stefnan verði endurskoðuð með það að markmiði að hún nái ekki eingöngu til starfsfólks bæjarins heldur einnig til kjörinna fulltrúa. Engin slík stefna eða verklag er til staðar þegar kemur að kjörnum fulltrúum, en kynbundið ofbeldi á sér því miður vissulega stað á þeim vettvangi líka.

Það er enn töluvert í land til þess að jafnrétti verði náð, sér í lagi félagslegu jafnrétti. Píratar hvetja bæjarstjórn Kópavogs til þess að ganga fram með góðu fordæmi í jafnréttismálum og vinna að útrýmingu kynbundins og kynferðislegs ofbeldis.

Fyrir hönd stjórnar Pírata í Kópavogi.




Skoðun

Skoðun

Börnin okkar

Halla Karen Kristjánsdóttir,Anna Sigríður Guðnadóttir,Valdimar Birgisson skrifar

Sjá meira


×