Það er langt í frá sjálfsagt að flogið sé til margra áfangastaða í útlöndum frá eins fámennu ríki og Ísland er. Í raun væri eðlilegt að héðan væri flogið til örfárra staða í Evrópu og kannski Bandaríkjunum. Hins vegar verður hægt að komast til 83 áfangastaða með 26 flugfélögum í sumar.

Mikil aukning er á framboði hjá báðum íslensku flugfélögunum. Þannig segir Sonja Arnórsdóttir framkvæmdastjóri sölu- og markaðssviðs Play að félagið bæti við sig þrettán nýjum áfangastöðum í sumar.
„Við erum með þrjátíu og þrjá áfangastaði núna í sumar. Vorum með tuttugu og tvo í fyrra. Við erum að vinna í að opna alla þessa nýju staði með viðeigandi húllumhæ,“ segir Sonja.
Svipað er uppi á teningnum hjá Icelandair. Tómas Ingason framkvæmdastjóri leiðarkerfis- og sölu segir félagið bjóða upp á 47 áfangastaði í sumar. Með aukinni tíðni á marga þeirra og fjóra nýja áfangastaði; Krít, Detroit, Tel Aviv og svo komi Barcelona aftur inn í áætlun félagsins

„Við erum með 29 áfangastaði Evrópu megin og 15 áfangastaði norður Ameríku megin.“
Er þetta ekki það mesta sem Icelandair hefur boðið upp á?
„Þetta er það lang mesta sem við höfum boðið upp á,“ segir Tómas.
Grunnurinn að þessu mikla flugi er auðvitað leiðarkerfið sem Loftleiðir og síðar Icelandair þróuðu með flutningi fólks milli Bandaríkjanna og Evrópu með viðkomu á Íslandi. Einnig sá einstaki loftferðasamningur sem íslensk stjórnvöld náðu við Bandaríkin um og upp úr seinni heimsstyrjöldinni.
Hér sjáum við bara leiðarkerfi Icelandair og Play en 24 önnur flugfélög fljúga til Keflavíkur í sumar. Tengiflugið gerir gæfumuninn fyrir íslensku flugfélögin.

„Þannig að við verðum að geta haft þessa tengifarþega. Það sýndi sig í fyrra þegar Ísland var nánast uppselt með hótel og bílaleigur. Þá var mikilvægt að geta boðið tengifarþegunum fleiri sæti,“ segir Sonja.
Tómas tekur í sama streng og segir tengiflugið vera að gera sig þessa mánuðina og bókunarstaðan í sumar góð eins og hjá Play að sögn Sonju.
„Það er mikil eftirspurn á Atlantshafinu. Mikil eftirspurn sömuleiðis til Íslands frá norður Ameríku. Hvort sem fólk trúir því eða ekki þá erum við hagstæður áfangastaður í dag fyrir norður Ameríkubúa og við njótum góðs af því,“ segir Tómas Ingason og vísar þar til sterkrar stöðu dollarsins gagnvart krónunni þessi misserin.