Erlent

Eld­flaugum rignir á­fram yfir Úkraínu á meðan diplómatar ræða um frið

Hólmfríður Gísladóttir skrifar
Rússar halda áfram að skjóta eldflaugum á mikilvæga innviði í Úkraínu og á sama tíma er hart barist í Bakhmut.
Rússar halda áfram að skjóta eldflaugum á mikilvæga innviði í Úkraínu og á sama tíma er hart barist í Bakhmut. AP/Libkos

Mikilvægir innviðir skemmdust í Lviv í vesturhluta Úkraínu í morgun, í loftárásum Rússa. Yfirvöld þar sögðu eld hafa kviknað í kjölfarið en greiðlega virðist hafa gengið að slökkva hann. Íbúar hafa verið hvattir til að leita skjóls ef og þegar loftvarnaflautur fara í gang.

Samkvæmt embættismönnum í Úkraínu voru átta Kalibr-eldflaugar sem skotið var frá skipi Rússa í Svartahafi skotnar niður í morgun en aðrar náðu skotmörkum sínum í norður- og vesturhluta Úkraínu og í Dnipropetrovsk og Kirovograd.

Reuters greindi frá því í morgun að allsherjarþing Sameinuðu þjóðanna muni í næstu viku greiða atkvæði um ályktun sem kveður á um nauðsyn þess að aðilar komist að samkomulagi um varanlegan frið í Úkraínu. Atkvæðagreiðslan er sögð munu fara fram sama dag og ár er liðið frá innrás Rússa.

Í ályktuninni verður þess meðal annars krafist að hersveitir Rússlands hverfi frá Úkraínu.

Emmanuel Macron Frakklandsforseti og Wang Yi, æðsti sendifulltrúi Kína, funduðu í París í gær og ræddu meðal annars áhrif stríðsins á viðkvæm ríki, meðal annars með tilliti til fæðuöryggis. Báðir lýstu yfir sama markmiði um að stuðla að friði en ítarlegar útlistanir á aðgerðum fylgdu ekki.

Hugveitan Institute for the Study of War segir Rússa líklega hafa gengið verulega á mannskap og vopnabirgðir sínar. Sérfræðingar hugveitunnar segja þá illa undir það búna að viðhalda stórsókn í austurhluta Úkraínu og vænta ekki stórtíðinda í fyrirhuguðum ávörpum Vladimir Pútín Rússlandsforseta í næstu viku.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×