„Þurfum að fylgja vísindunum í notkun hugvíkkandi efna“ Berghildur Erla Bernharðsdóttir skrifar 10. nóvember 2022 21:01 Gunnar Bjarni Ragnarsson formaður Læknaráðs Landspítala segir mikilvægt að Ísland taki þátt í rannsóknum á ofskynjunarsveppum. Vísir/Egill Formaður læknaráðs Landspítalans er ánægður yfir auknum áhuga á geðheilbrigðismálum sem lýsi sér m.a. í nýrri þingsályktunartillögu um sílósíbín sem finnst í ofskynjunarsveppum. Það sé hins vegar mikilvægt að bíða eftir frekari rannsóknum um efnið. Íslendingar hafi þegar fengið tilboð um að taka þátt í síðasta fasa stórrar rannsóknar á gagnsemi efnisins.
Fyrir um einu og hálfu ári lýstu ýmsir meðferðaraðilar og sérfræðingar því í samtali við fréttastofu að von væri á byltingu í meðferð við kvíða, þunglyndi og jafnvel fíknisjúkdómum með efninu sílósíbín (psilocybin) sem unnið er úr ofskynjunarsveppum. Fréttastofa ræddi við fjölmarga um ofskynjunarsveppi fyrir einu og hálfu ári.Vísir/Kristján Í gær var svo lögð fram þingsályktunartillaga á Alþingi um heimild til rannsókna og notkunar á efninu sílósíbíni í geðlækningaskyni. Gunnar Bjarni Ragnarsson formaður læknaráðs Landspítala er ánægður með þetta skref. „Þessi áhugi á geðheilbrigðismálum er jákvæður. Eins og ég skil frumvarpið er verið að leggja til við heilbrigðsráðherra í samvinnu við heilbrigðisstofnanir að meta hvort það séu einhverjar hindranir í reglugerðum sem myndu hindra notkun þessara lyfja. Og að umgjörð sem þarf til að gefa lyfin sé til staðar ,“ segir hann. Ýmsar rannsóknir hafa verið gerðar síðustu ár sem hafa sýnt jákvæðar niðurstöður þegar efnið er notað.Nú er einkum horft til breska lyfjafyrirtækisins Compass Pathways þar sem þriðji fasi rannsóknar á efninu og umgjörð meðferðar er hafinn. Gunnar Bjarni segir mikilvægt að Íslendingar taki þátt í slíkum rannsóknum. „Mér finnst nauðsynlegt að Íslendingar taki þátt í rannsóknum. Ég veit til þess að það er búið að leita til íslenskra aðila um að taka þátt í rannsókn Compass Pathways eða þessum fasa þrjú,“ segir hann Gunnar segir að margt geti gerst, ekkert fast í hendi með árangur. „Það má minna á að það er bara búið að gera tvo fasa í rannsóknum og þá á eftir að gera þann þriðja. Hann ræður því hvort að lyf séu sett á markað,“ segir hann. Hann segir erfitt að meta hversu langan tíma þetta taki. Gríðarlega mikilvægt sé að rannsóknin sé gerð rétt. „Lyf hafa t.d. aukaverkanir sem þarf að fylgjast með og hver hin rétta umgjörð eigi að vera. Það eru vísbendingar um að upplifun á meðferð hafi áhrif á batann og hún þurfi að vera sem jákvæðust. Ég skil vel að fólk sé óþolinmótt en það er gríðarlega mikilvægt að vanda til verka í þessu,“ segir hann. Varar við að fólk noti efnið án eftirlits Það að það sé þverpólitísk samstaða um þingsályktun um Sílósíbin sýnir kannski hversu mikill áhugi er almennt í samfélaginu á þessum málaflokk. Gunnar varar fólk hins við því að nota slík efni án eftirlits. „Við sjáum mikinn áhuga á þessu. Við vörum hins vegar við því að prófa þetta heima án eftirlits. Það er nauðsynlegt að meðferðaraðili fylgi fólki eftir í gegnum slíka meðferð verði hún tekin í notkun. Aukaverkanir geta verið ófyrirséðar og þá þurfa meðferðaraðilar að taka á því. Ég hvet fólk til að bíða eftir niðurstöðum rannsókna um þessi efni og leita til sinna meðferðaraðila hafi þeir áhuga á að kynna sér þetta frekar. Við þurfum að fylgja vísindunum í notkun hugvíkkandi efna,“ segir hann að lokum.
Hugvíkkandi efni Landspítalinn Alþingi Ríkisstjórn Katrínar Jakobsdóttur Geðheilbrigði Heilbrigðismál Tengdar fréttir Ofskynjunarsveppir engin töfralausn en mikilvæg viðbót 22 þingmenn úr öllum flokkum nema Vinstri grænum hafa lagt fram tillögu á Alþingi um að heimila rannsóknir og tilraunir hér á landi með hugvíkkandi efni sem finnst í sveppum. Flutningsmaður frumvarpsins segir marga nota ofskynjunarsveppi í lækningaskyni og því sé mikilvægt að skapa lagalega umgjörð utan um notkunina. 3. október 2022 11:11 Efni úr ofskynjunarsveppum lofar góðu: „Allt öðruvísi en öll önnur lyf sem við höfum verið að nota við þunglyndi“ Nýjar rannsóknir á notkun virka efnisins í ofskynjunarsveppum í lækningarskyni við þunglyndi lofa mjög góðu að sögn læknis. Það er þó langt í land þar til hægt er að mæla með meðferðinni, enda sé psílósýbín allt öðruvísi en öll önnur lyf sem notuð hafi verið við þunglyndi til þessa. Þingmaður vill að Ísland verði leiðandi í rannsóknum á þessum efnum. 11. september 2022 19:27 Tæpur fjórðungur á þunglyndis-og eða róandi lyfjum, kostnaður tvöfaldast Tæplega fjórðungur fullorðinna Íslendinga fékk þunglyndis- og eða kvíðalyf á síðasta ári. Það er mun hærra hlutfall en í nágrannalöndum okkar. Konur eru tvöfalt líklegri en karlar til að fá slík lyf og eldri borgarar eru hlutfallslega fjölmennasti aldurshópurinn. 7. júní 2021 19:01 Vona að lyf úr ofskynjunarsveppum komist á markað: „Ein meðferð eins og tíu ára sálfræðimeðferð“ Sérfræðingar segja byltingu framundan í meðferð við þunglyndi, kvíða og fíknisjúkdómum með lyfi sem unnið er úr ofskynjunarsveppum. Þau muni jafnvel leysa af hólmi stóran hluta kvíða- og þunglyndislyfja sem 13% landsmanna nota. Formaður Geðlæknafélags Íslands vonar að lyfin komist á markað en það þurfi fleiri rannsóknir. 1. júní 2021 21:56 „Vonandi ekki langt í að hægt verði að nota þessi lyf hér á landi“ Sálfræðingur vonar að ekki þurfi að bíða lengi eftir að meðferð með lyfjum sem eru unnin úr ofskynjunarsveppum verði leyfð hér á landi. Þau hafi reynst afar vel við mörgum geðröskunum. Lyfin opni milli heilastöðva þannig að fólk virðist eiga auðveldara með að vinna úr ýmsum sálrænum vanda. 24. maí 2021 15:00 Segir tímamót framundan í meðferð við þunglyndi, kvíða og ýmsum fíknisjúkdómum Geðlæknir segir að búast megi við byltingu í geðlækningum á næstu árum með lyfjum sem unnin eru úr svokölluðum ofskynjunarsveppum. Rannsóknir hafi sýnt að þau geti gagnast afar vel við þunglyndi, kvíða, áfallastreitu og fíknisjúkdómum. Hópur sérfræðinga skoði að leita til Lyfjastofnunar og ráðherra til að fá að gera rannsóknir á lyfinu hér á landi. 19. maí 2021 14:45 Mest lesið Fjölskylda flugmanns Icelandair vill að lögregla rannsaki andlát hans Innlent Telur fleiri falla á nýju bílprófi Innlent Fjölmiðlafólki vísað úr salnum við myndbirtingu: „Þetta er ósæmilegt og átakanlegt myndefni“ Erlent Mamma bara María þegar mæðgurnar eru saman á vakt Innlent Arnar Þór á leið í nýjan flokk Innlent Senda svifsprengjur fyrir F-16 Erlent „Spurðu svo fyrirtækið þitt af hverju það leggur fé í heimsendakölt“ Innlent Diddy á sjálfsmorðsvakt Erlent Anton Sveinn McKee til liðs við Miðflokkinn Innlent Önnur vopnageymsla í ljósum logum í Rússlandi Erlent Fleiri fréttir Með banvænan sjúkdóm í stöðugri baráttu við Kópavogsbæ Mikill reykur eftir að gleymdist að slökkva á kerti Bið eftir NPA-þjónustu og eftirspurn eftir sæðisgjöfum Arnar Þór á leið í nýjan flokk Anton Sveinn McKee til liðs við Miðflokkinn „Spurðu svo fyrirtækið þitt af hverju það leggur fé í heimsendakölt“ Ekkert sem bendir til þess að sakborningum fjölgi Lífræni dagurinn er í dag Bein útsending: Heilabilun rædd á Alzheimerdegi Ekkert bendi til að sakborningum muni fjölga Telur fleiri falla á nýju bílprófi Maður margra storma íhugar stöðu sína Byssan reyndist leikfang Mamma bara María þegar mæðgurnar eru saman á vakt Hvers vegna að fella ísbirni? Í gæsluvarðhald vegna kókaínsendingar Bræður heiðraðir á 100 ára starfsafmæli: „Einfalt, þægilegt og engin keppni“ Drengnum hafi ekki verið trúað í fyrstu Myndgreiningarkerfi geti hjálpað til við að stoppa af óprúttna aðila Framboð Baldurs þurfti að endurgreiða styrki sem fóru yfir hámark Fjölskylda flugmanns Icelandair vill að lögregla rannsaki andlát hans Áfram í varðhaldi fyrir að ræna og hóta ungmennum Fjölskylda flugmanns vill að lögregla rannsaki andlát hans Sýndi lögreglu löngutöng og var ekinn út af Svanhildur afhenti Biden trúnaðarbréf Loka almenningsbókasafninu og leita til Akureyrar Búið að taka sýni úr ungu birnunni Vinna málið saman og nýta greinargerð vegna fyrri umsóknar Kona réðst að sjö ára dreng við Smáraskóla Stofna námsstyrk á sviði umhverfismála í nafni Ellýjar Sjá meira
Ofskynjunarsveppir engin töfralausn en mikilvæg viðbót 22 þingmenn úr öllum flokkum nema Vinstri grænum hafa lagt fram tillögu á Alþingi um að heimila rannsóknir og tilraunir hér á landi með hugvíkkandi efni sem finnst í sveppum. Flutningsmaður frumvarpsins segir marga nota ofskynjunarsveppi í lækningaskyni og því sé mikilvægt að skapa lagalega umgjörð utan um notkunina. 3. október 2022 11:11
Efni úr ofskynjunarsveppum lofar góðu: „Allt öðruvísi en öll önnur lyf sem við höfum verið að nota við þunglyndi“ Nýjar rannsóknir á notkun virka efnisins í ofskynjunarsveppum í lækningarskyni við þunglyndi lofa mjög góðu að sögn læknis. Það er þó langt í land þar til hægt er að mæla með meðferðinni, enda sé psílósýbín allt öðruvísi en öll önnur lyf sem notuð hafi verið við þunglyndi til þessa. Þingmaður vill að Ísland verði leiðandi í rannsóknum á þessum efnum. 11. september 2022 19:27
Tæpur fjórðungur á þunglyndis-og eða róandi lyfjum, kostnaður tvöfaldast Tæplega fjórðungur fullorðinna Íslendinga fékk þunglyndis- og eða kvíðalyf á síðasta ári. Það er mun hærra hlutfall en í nágrannalöndum okkar. Konur eru tvöfalt líklegri en karlar til að fá slík lyf og eldri borgarar eru hlutfallslega fjölmennasti aldurshópurinn. 7. júní 2021 19:01
Vona að lyf úr ofskynjunarsveppum komist á markað: „Ein meðferð eins og tíu ára sálfræðimeðferð“ Sérfræðingar segja byltingu framundan í meðferð við þunglyndi, kvíða og fíknisjúkdómum með lyfi sem unnið er úr ofskynjunarsveppum. Þau muni jafnvel leysa af hólmi stóran hluta kvíða- og þunglyndislyfja sem 13% landsmanna nota. Formaður Geðlæknafélags Íslands vonar að lyfin komist á markað en það þurfi fleiri rannsóknir. 1. júní 2021 21:56
„Vonandi ekki langt í að hægt verði að nota þessi lyf hér á landi“ Sálfræðingur vonar að ekki þurfi að bíða lengi eftir að meðferð með lyfjum sem eru unnin úr ofskynjunarsveppum verði leyfð hér á landi. Þau hafi reynst afar vel við mörgum geðröskunum. Lyfin opni milli heilastöðva þannig að fólk virðist eiga auðveldara með að vinna úr ýmsum sálrænum vanda. 24. maí 2021 15:00
Segir tímamót framundan í meðferð við þunglyndi, kvíða og ýmsum fíknisjúkdómum Geðlæknir segir að búast megi við byltingu í geðlækningum á næstu árum með lyfjum sem unnin eru úr svokölluðum ofskynjunarsveppum. Rannsóknir hafi sýnt að þau geti gagnast afar vel við þunglyndi, kvíða, áfallastreitu og fíknisjúkdómum. Hópur sérfræðinga skoði að leita til Lyfjastofnunar og ráðherra til að fá að gera rannsóknir á lyfinu hér á landi. 19. maí 2021 14:45
Fjölmiðlafólki vísað úr salnum við myndbirtingu: „Þetta er ósæmilegt og átakanlegt myndefni“ Erlent
Fjölmiðlafólki vísað úr salnum við myndbirtingu: „Þetta er ósæmilegt og átakanlegt myndefni“ Erlent