Erlent

Putin með sjónarspil í tilefni ólöglegrar innlimunar

Heimir Már Pétursson skrifar
Hér sést hluti af bílalestinni sem Rússar skutu eldflaugum að í dag og felldu að minnsta kosti tuttugu og þrjá.
Hér sést hluti af bílalestinni sem Rússar skutu eldflaugum að í dag og felldu að minnsta kosti tuttugu og þrjá. AP/Viacheslav Tverdokhlib

Í hádeginu fer fram athöfn í Kreml þar sem Vladimir Putin forseti Rússlands undirritar formlega yfirlýsingu um innlimun fjögurra héraða í Úkraínu í rússneska sambandslýðveldið. Bandaríkjaforseti segir að Bandaríkin muni aldrei viðurkenna þennan gjörning.

Rússneskir þingmenn og leiðtogar leppstjórna Rússa í Luhansk, Donetsk, Zaporizhzhia og Kherson héruðum Úkraínu verða viðstaddur athöfnina í Kreml. Í kvöld verða síðan tónleikar í nágrenni við Rauða torgið í Moskvu til að halda upp á þessa ólöglegu innlimun eftir sýndar kosningar í vikunni. Fregnir eru um að fólki hafi verið greitt fyrir að mæta á tónleikana.

Fólkið í bílalestinni ætlaði að sækja ættingja sína í hertekna hluta Zaporizhzhia og færa fólki þar vistir. Hér liggur kona sem var ein þeirra sem féllu í eldflaugaárás Rússa.AP/Viacheslav Tverdokhlib

Rússar halda enn uppi árásum víðs vegar í þessum héruðum enda hafa þeir ekki lagt þau að fullu undir sig að frátöldu Luhansk. Tuttugu og þrír féllu og tæplega þrjátíu særðust þegar Rússar skutu fjórum eldflaugum á bílalest óbreyttra borgara í Zaporizhzhia sem ætluðu að koma vistum til ættingja á yfirráðasvæði Rússa. Þá særðust níu manns íeldflaugaárás á íbúðarhús í borginni Mykolaiv.

Þúsundir ungra Rússa kveðja nú ástvini sína til að fara á blóðvöllinn í Úkraínu. Zelenskyy forseti Úkraínu hvetur rússneskan almenning til að rísa upp gegn Putin fyrir að senda þá í opinn dauðann.AP/

Volodymyr Zelenskyy forseti Úkraínu segir tilraunir Rússa til innlimunar á úkraísnku landi aðeins þýða eitt, gífurlega eyðileggingu á öllum grunnstoðum mannlegs lífs. Skoraði hann á rússneskan almenning og hermenn að rísa upp gegn Putin sem tæki stríð fram yfir líf þegna sinna með því að senda þá í opinn dauðann í Úkraínu.

„Fimmtíu og átta þúsund og fimm hundruð rússneskir hermenn hafa fallið í Úkraínu. Þeir komu til að drepa okkur en dóu sjálfir. Rússnesk yfirvöld halda þessum fjölda leyndum fyrir ykkur og ljúga því að sex þúsund hafi fallið," sagði Zelenskky.

Joe Biden fordæmir innlimun Rússa á fjórum héuðum í Úkraínu segir að Bandaríkin muni aldrei viðurkenna þennan ólöglega gjörning eftir sýndarkosningar.AP/Susan Walsh

Ólögleg innlimun Rússa hefur verið fordæmd víða um heim. Joe Biden forseti Bandaríkjanna sagði hina svo kölluðu atkvæðagreiðslu úbúa héraðanna fjögurra hafa verið algera sýndarmennsku og úrslitin fyrir fram tilbúin.

„Ég vil að það sé alveg á hreinu að Bandaríkin munu aldrei nokkru sinni viðurkenna kröfu Rússa til landsvæða sem tilheyra fullvalda Úkraínu. Þessar kosningar voru alger sýndargjörningur," sagði Joe Biden.


Tengdar fréttir

23 látnir og 28 særðir eftir árás í Zaporizhzhia

Að minnsta kosti 23 eru látnir og 28 særðir eftir árás á bílalest almennra borgara í Zaporizhzhia. Úkraínumenn segja Rússa hafa staðið að árásinni en Rússar segja Úkraínumenn ábyrga.

Leppstjórar biðja Pútín um innlimun

Leppstjórar Rússlands í Luhansk- og Donetsk-héruðum hafa beðið Vladimír Pútín, forseta Rússlands, um að lýsa yfir innlimun héraðanna og annarra í rússneska sambandsríkið. Búist er við því að Pútín muni lýsa yfir innlimuninni á komandi dögum.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×