Skoðun

Aum af­sökunar­beiðni frá Kennara­sam­bandi Ís­lands

Alma Björk Ástþórsdóttir skrifar

Á vefsíðu Kennarasambands Íslands mátti sjá æsifréttamennsku af verstu sort í síðustu viku þar sem greint var frá því að kennara hefðu verið dæmdar milljónir í bætur vegna ólögmætrar uppsagnar í kjölfar þess að hafa löðrungað nemanda.

Í fréttinni var greint frá viðkvæmum persónulegum upplýsingum 14 ára gamallrar stúlku og að auki greint frá staðháttum þó dómstólasýslan sjálf hefði ekki talið við hæfi að greina frá þeim.

Eftir gagnrýnisraddir samfélagsins gerir Kennarasamband Íslands auma tilraun til þess að afsaka þetta framferði sitt.

Sambandið biðst afsökunar á að hafa dregið athyglina að barninu með þessum hætti. Þá fjallar sambandið um það bjargarleysi sem ríkir í skólasamfélaginu og að það geti valdið mistökum í erfiðum málum. Mikilvægt sé að taka ábyrgð og fá tækifæri til þess að gera betur en að sveitarfélagið hafi gert kennaranum ókleift að standa undir þeirri ábyrgð, þar sem honum var fyrirvaralaust sagt upp störfum.

Með öðrum orðum þá þykir kennarasambandinu sem og umræddum héraðsdómara við hæfi að kennari sem ekki hefur þolinmæði til þess að takast á við nemanda í vanlíðan, kennari sem ekki hefur það sem þarf til þess að mæta einstaklingnum þar sem hann er staddur og kennari sem á það til að grípa til ofbeldis, eigi skilið að fá að vinna áfram í umhverfi með einum viðkvæmasta hóp landsins, í ákaflega krefjandi starfsumhverfi skóla án aðgreiningar.

Á meðan Kennarasamband Íslands barðist með þessum kennara gegn sveitarfélaginu og fagnar niðurstöðu dómsins er bent á það í yfirlýsingu UNICEF á Íslandi, Barnaheill – Save the Children á Íslandi og Heimili og skóli – Landssamtök foreldra hvernig dómurinn er áfellisdómur á íslenskt réttarkerfi og baráttuna fyrir réttindum barna. Ofbeldi kennarans var afsakað með einhverjum óskiljanlegum hætti, ekki var litið til Barnasáttmálans né réttinda barnsins yfir höfuð. Ekki var heldur minnst á valdaójafnvægið á milli barnsins og kennarans.

Fyrir ekki svo löngu var sú krafa í þjóðfélaginu að stjórn KSÍ segði af sér fyrir að taka ekki skýlausa afstöðu gegn ofbeldi. Hvernig getur stjórn Kennarasambands Íslands setið óáreitt með þessa afstöðu til ofbeldis?

Höfundur er stofnandi grasrótarhópsins Sagan okkar, sem berst fyrir réttindum barna í skólakerfinu.




Skoðun

Sjá meira


×