Hönnunarverðlaunum Íslands 2021 fagnað í Grósku Sylvía Rut Sigfúsdóttir skrifar 2. nóvember 2021 14:30 Aldís Pálsdóttir ljósmyndari fangaði stemninguna á Hönnunarverðlaunum Íslands á föstudag. Aldís Páls Hönnunarverðlaun Íslands 2021 fóru fram í Grósku þann á föstudag við hátíðlega athöfn fyrir fullum sal gesta. Kynnir kvöldsins var Guðrún Sóley Gestsdóttir fjölmiðlakona.
Aldís Pálsdóttir ljósmyndari myndaði viðburðinn og myndaalbúm má finna neðst í fréttinni. Fyrr um daginn fór fram samtal um framtíð byggða á hönnun, hugviti og nýsköpun undir stjórn Hrundar Gunnsteinsdóttur, framkvæmdastjóri Festu - miðstöð um samfélagsábyrgð og sjálfbærni. Hönnunarverðlaunin beina sjónum að því besta í hönnun hér á landi.Aldís Páls Fyrst fór fram Samtal um framtíð byggða á hönnun, hugviti og nýsköpun sem hófst með snörpum erindum um tilnefningar til verðlaunanna í ár ásamt líflegum pallborðsumræðum þar sem sátu Þórdís Kolbrún R. Gylfadóttir, ferðamála-, iðnaðar- og nýsköpunarráðherra, Haraldur Þorleifsson, stofnandi Ueno, Sigurður Hannesson framkvæmdastjóri Samtaka iðnaðarins og Halla Helgadóttir, framkvæmdastjóri Miðstöðvar hönnunar og arkitektúrs. Líflegar umræður sköpuðust í Hörpu á föstudag.Aldís Páls Í ár voru fimm framúrskarandi verkefni á sviði hönnunar og arkitektúrs tilnefnd: made in reykjavík eftir Magneu Einarsdóttur, Hjaltalín - ∞“ eftir grafíska hönnuðinn Sigurð Oddsson, myndhöggvarann Matthías Rúnar Sigurðsson og þrívíddarhönnuðinn Gabríel Benedikt Bachmann, Söluhús við Ægisgarð eftir Yrki arkitekta, Konur sem kjósa eftir Snæfríði Þorsteins, Hildigunni Gunnarsdóttur og Agnar Frey Stefánsson og hönnunarverkefnið Þykjó eftir hönnuðina Sigríði Sunnu Reynisdóttur, Ninnu Þórarinsdóttur, Sigurbjörgu Stefánsdóttir og Erlu Ólafsdóttur. Metnaðarfullur minnisvarði Eins og kom fram hér á Vísi á föstudag voru handhafar Hönnunarverðlauna Íslands 2021 þeir Sigurður Oddsson, Matthías Rúnar Sigurðsson og Gabríel Benedikt Bachmann fyrir verkefnið Hjaltalín - ∞. Þórdís Kolbrún R. Gylfadóttir, ferðamála-, iðnaðar- og nýsköpunarráðherra afhenti þeim verðlaunin. „Myndræn framsetning er óaðfinnanleg. Samspil ljóss og skugga skapar einstaka kyrrð og hlýju. Stund frosin í tíma. Leturval er vel við hæfi og táknróf plötunnar vísar smekklega í gyllta plötu Voyager geimfarsins sem er flöskuskeyti mannkyns út fyrir okkar sólkerfi. Það er mat dómnefndar Hönnunarverðlauna Íslands árið 2021 að hönnun plötuumslags og heildarútfærsla „∞“ sé einstaklega sterkt heildrænt verk og metnaðarfullur minnisvarði um samspil tónlistar og hönnunar til framtíðar.“ Sigurður, Gabríel og Matthías unnu Hönnunarverðlaun Íslands í ár.Aldís Páls Mikilvægur hluti skapandi greina Viðurkenningu fyrir bestu fjárfestingu í hönnun árið 2021 hlýtur fyrirtækið CCP Games. Það var Sigurður Hannesson, framkvæmdastjóri Samtaka Iðnaðarins sem veitti forsvarsmönnum CCP viðurkenninguna. „Tölvuleikjaiðnaðurinn er í dag mjög mikilvægur hluti skapandi greina og vaxandi hugverkaiðnaðar á Íslandi með tuttugu starfandi fyrirtæki sem sérhæfa sig í tölvuleikjagerð. Starfsemi CCP hefur haft ómetanleg áhrif á fagið í heild og lagði á sínum tíma grunn að nýjum vettvangi hönnunar hér á landi sem flestum þykir nú sjálfsagður.“ Hönnunarverðlaunin fóru fram á föstudag í Grósku.Aldís Páls Endurútgáfa á hönnun Gunnars Lilja D. Alfreðsdóttir, mennta- og menningarmálaráðherra veitti Gunnari Magnússyni, húsgagnahönnuður og innanhússarkitekt Heiðursverðlaun Hönnunarverðlauna Íslands árið 2021. Afkomendur Gunnars tóku á móti verðlaunum fyrir hans hönd, þar sem hann átti ekki heimangengt. „Í gegnum árin hefur Gunnar tekið þátt í fjölda sýninga og unnið til alþjóðlegra verðlauna. Um leið og verk hans endurspegla tíðarandann í norrænni hönnun á seinni hluta síðustu aldar eru höfundareinkenni Gunnars auðþekkjanleg og skapa verkum hans sérstöðu sem glæsilegir fulltrúar blómlegs tímabils í íslenskri húsgagnahönnun.“ Eins og við fjölluðum um hér á Vísi um helgina hafa FÓLK Reykjavík og Gunnar Magnússon undirritað samning um endurútgáfu og einkarétt á útgáfu hönnunar Gunnars og kynningar og markaðssetningar á hönnunarverkum hans og arfleifð næstu árin. FÓLK mun þróa vörur Gunnars til endurútgáfu í samstarfi við Gunnar og fjölskyldu með sjálfbærni og hringrás hráefna að leiðarljósi. Gunnar Magnússon tók við heiðursverðlaununum á heimili sínu.Aldís Páls Við erum öll almannavarnir Undanfarin ár hefur dómnefnd Hönnunarverðlauna Íslands veitt viðurkenningar til fyrirtækja fyrir bestu fjárfestingu í hönnun. Það er þó ekki síður mikilvægt að opinberir aðilar og stofnanir fjárfesti í hönnun innan starfsemi sinnar og í ár þykir dómnefnd verðugt að veita sérstakt hrós fyrir faglega nálgun og fjárfestingu Embættis landlæknis og Almannavarnadeildar Ríkislögreglustjóra við gerð og framkvæmd herferðarinnar „Við erum öll almannavarnir“ og efnisgáttina covid.is. „Á fordæmalausum tímum urðu embættin að bregðast hratt og örugglega við og fengu auglýsingastofuna Hvíta húsið með sér í lið við útfærslu á fræðsluefni, upplýsingaveitu og samhæfðum aðgerðum ætluðum til þess að stemma stigu við uppgangi Covid-19 faraldursins,“ segir um viðurkenninguna. „Fyrir vikið fékk krefjandi og flókið verkefni aðgengilegt og létt yfirbragð; myndskreytingar glæða viðfangsefnin manneskjulegum blæ, viðmótið er auðskilið og leiðbeiningar og annað prentefni fyrir fyrirtæki og aðra starfsemi ávallt uppfært og vandað. Tónninn er hlýr og sveigjanlegur og hvetur til samstöðu, sem var einmitt það sem til þurfti. Heildræn mörkun almannavarna vegna Covid-19 er til fyrirmyndar og fordæmisgefandi fjárfesting í hönnun á vegum hins opinbera. “ Hvíta húsið: Davíð Terrazas (listrænn stjórnandi), Rósa Hrund Kristjánsdóttir (hönnunarstjóri), Ágúst Gunnarsson (vefhönnuður), Viktoria Buzukina (myndhöfundur), Guðrún Jónsdóttir (kvikun), Þorgeir Tryggvason (textagerð) og Eiríkur Guðleifsson (ráðgjafi). Aldís Páls Það besta í hönnun og arkitektúr á Íslandi Hönnunarverðlaunin voru veitt í fyrsta sinn árið 2014 og varpa ljósi á mikilvægi og gæði íslenskrar hönnunar og arkitektúrs. Verðlaunin beina sjónum að því besta sem gert er á sviði hönnunar og arkitektúrs á Íslandi um leið og einstaka hönnuðum eða hópum hönnuða er veitt mikilvæg viðurkenning. Í dómnefnd Hönnunarverðlauna Íslands 2021 sátu: María Kristín Jónsdóttir/Sigríður Sigurjónsdóttir, formenn, Hönnunarsafn Íslands Hildigunnur Sverrisdóttir, arkitekt, LHÍ Þorleifur Gíslason, grafískur hönnuður MH&A Margrét Kristín Sigurðardóttir, SI Katarina Siltavuori, framkvæmdastjóri Archinfo í Finnlandi. MH&A Ragna Fróðadóttir, textíl- og fatahönnuður, og framkvæmdastjóri Edelkoort Inc. MH&A Það er Miðstöð hönnunar og arkitektúrs sem stendur að verðlaununum, í samstarfi við Hönnunarsafn Íslands, Listaháskóla Íslands, Íslandsstofu og Samtök iðnaðarins. Fleiri myndir Aldísar Pálsdóttur frá viðburðinum má finna í albúminu hér fyrir neðan. Aldís PálsAldís PálsAldís PálsAldís PálsAldís PálsAldís PálsAldís PálsAldís PálsAldís PálsAldís PálsAldís PálsAldís PálsAldís PálsAldís PálsAldís PálsAldís PálsAldís PálsAldís PálsAldís PálsAldís PálsAldís PálsAldís PálsAldís PálsAldís PálsAldís PálsAldís PálsAldís PálsAldís PálsAldís PálsAldís PálsAldís PálsAldís Páls
Tíska og hönnun Hönnunarverðlaun Íslands Nýsköpun Samkvæmislífið Tengdar fréttir FÓLK framleiðir hönnun Gunnars Magnússonar FÓLK Reykjavík og Gunnar Magnússon, sem hlaut heiðursverðlaun Hönnunarverðlauna Íslands á föstudag, hafa undirritað samning um endurútgáfu og einkarétt á útgáfu hönnunar Gunnars og kynningar og markaðssetningar á hönnunarverkum hans og arfleifð næstu árin. 31. október 2021 15:01 Sigurður, Matthías og Gabríel hljóta Hönnunarverðlaun Íslands 2021 fyrir Hjaltalín - ∞ Hönnunarverðlaun Íslands 2021 voru afhent með hátíðlegum hætti í Grósku rétt í þessu. 29. október 2021 19:01 Mest lesið „Okkur langar bara til þess að gera þetta allt saman aftur“ Lífið „Maður getur varla beðið um meira“ Lífið „Fóturinn á mér er ekki bólginn af því að ég missti barnið mitt“ Lífið Hætta að prenta Walliams eftir ásakanir um kynferðislegt áreiti Lífið Fresta öðrum tónleikum sínum hérlendis vegna óvænts fráfalls ástvinar Tónlist Örvar og María Elísabet nýtt listapar Lífið Segir af sér eftir að hafa beitt mótmælendur ofbeldi Lífið „Þú ætlar ekki að verða feilaður rappari“ besta mantran Tónlist Fréttatía vikunnar: Danir, pósthólf og Louis Vuitton Lífið Bakaríið í beinni útsendingu Lífið Fleiri fréttir „Okkur langar bara til þess að gera þetta allt saman aftur“ Hætta að prenta Walliams eftir ásakanir um kynferðislegt áreiti Örvar og María Elísabet nýtt listapar Segir af sér eftir að hafa beitt mótmælendur ofbeldi „Maður getur varla beðið um meira“ Bakaríið í beinni útsendingu „Fóturinn á mér er ekki bólginn af því að ég missti barnið mitt“ Fréttatía vikunnar: Danir, pósthólf og Louis Vuitton Macklemore svarað Staðgöngumóðir var það Yfir sjöhundruð manns keypt af Guðna í forsölu Lilja í Cosmo selur aðra perlu Kjartans Korter í fæðingarþunglyndi en fór út að hlaupa viku eftir fæðingu Spurt var um dýr með það harðan skjöld að byssukúlurnar fljúga af þeim Ekkert náð að æfa sig en ætlar að kýla á Bakgarðshlaupið Barnastjarnan orðin tveggja barna móðir Hvað veistu um... fræga menn sem heita Robert? Ísak Bergmann og Agnes Perla eiga von á barni „Bakkus nær ekki þeim verstu af okkur, virðist helst velja þá bestu“ Skorar á Kraft að jafna framlag sitt til neyðaraðstoðar á Gasa Ef þú ert í þessum hópi ættir þú ekki að taka lýsi Karl Th. Birgisson er látinn Lena Dunham orðin mamma með hjálp staðgöngumóður Fóru áttatíu prósent fram úr áætlun Leiðir skilja hjá Siggu Dögg og Sævari Eyjólfs Kampakát yfir kampavíni og kavíar Amanda Seyfried og Thomas Sadoski skilin Hafi ekki sjálfur sparkað Macklemore: „Ég myndi aldrei bregðast aðdáendum“ Hundrað ára virðulegt setur með grænu baði og gufu Bob Mackie er látinn Sjá meira
FÓLK framleiðir hönnun Gunnars Magnússonar FÓLK Reykjavík og Gunnar Magnússon, sem hlaut heiðursverðlaun Hönnunarverðlauna Íslands á föstudag, hafa undirritað samning um endurútgáfu og einkarétt á útgáfu hönnunar Gunnars og kynningar og markaðssetningar á hönnunarverkum hans og arfleifð næstu árin. 31. október 2021 15:01
Sigurður, Matthías og Gabríel hljóta Hönnunarverðlaun Íslands 2021 fyrir Hjaltalín - ∞ Hönnunarverðlaun Íslands 2021 voru afhent með hátíðlegum hætti í Grósku rétt í þessu. 29. október 2021 19:01