Innlent

Stakkaborg lokuð í tvær vikur

Kolbeinn Tumi Daðason skrifar
Þessi risaeðla var einmana í garðinum við Stakkaborg í hádeginu.
Þessi risaeðla var einmana í garðinum við Stakkaborg í hádeginu. Vísir/Vilhelm

Tveir starfsmenn á leikskólanum Stakkaborg í Bólstaðahlið í Reykjavík eru veikir og hefur annar greinst með staðfest smit af kórónuveirunni sem veldur Covid-19 sjúkdómnum. Reiknað er með að leikskólanum verði lokað í tæpar tvær vikur vegna þessa eða til 30. mars.

Jónína Einarsdóttir, leikskólastjóri á Stakkaborg, segir í tölvupósti til foreldra að smitið einskorðist við eina deild og auk þess börn sem voru á leikskólanum eftir klukkan 16:30 síðastliðinn föstudag. Um leið eiga önnur börn sem fengu póst frá skólanum í morgun, sem var áframsending frá Almannavörnum, að vera í sóttkví.

„Við höfum öll áhyggjur, en munum að passa vel upp á alla í kringum okkur og sérstaklega þessi litlu börn sem eru ekki alveg að skilja aðstæður núna. Ég skil vel áhyggjurnar, við erum öll oft hrædd við það sem við þekkjum ekki og þessi veira er eitt af því,“ segir Jónína.

„Það er talað um að einstaklingar geti smitað í 1-2 daga fyrir veikindi en þessi starfsmaður hefur ekki verið með börnum í leikskólanum síðan á föstudaginn í síðustu viku. Ég hvet ykkur sem hafið áhyggjur að leita upplýsinga á covid.is, fara í netspjall í gegnum heilsuveru eða heyra í ykkar heilsugæslulækni.“

Hún segist munu halda foreldrum upplýstum áfram en beðið sé niðurstöðu úr sýnatöku hjá hinum starfsmanninum en sá starfsmaður veiktist í lok mánudags. Því hafi engin börn verið á samvistum við starfsmanninn á þeim tímapunkti.

Sá starfsmaður sem veiktist fyrr sé á góðum batavegi og virðist ætla að ganga hratt yfir.

Nánari upplýsingar á heimasíðu Stakkaborgar.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×