Wolverhampton Wanderers hafði betur gegn Aston Villa í eina leik dagsins í ensku úrvalsdeildinni sem fram fór á Villa Park.
Eina mark leiksins var skorað á 62.mínútu þegar belgíski miðjumaðurinn Leander Dendoncker skoraði eftir undirbúning Jonny.
Úlfarnir fóru með sigrinum upp fyrir Manchester United í 5.sæti deildarinnar á meðan fallið blasir við Aston Villa sem hefur ekki unnið leik í júnímánuði.
Villa er í næstneðsta sæti deildarinnar á markatölu en hefur 27 stig líkt og Bournemouth og West Ham í næstu sætum fyrir ofan.