Logi Bergmann náði í 77 stig þrátt fyrir líklegt Fantasy-slys Ingvi Þór Sæmundsson skrifar 5. janúar 2026 16:30 Logi Bergmann Eiðsson átti góða umferð í Fantasy. vísir/vilhelm Stjörnulið vikunnar var á sínum stað í nýjasta þætti Fantasýnar, hlaðvarps Sýnar um Fantasy-leik ensku úrvalsdeildarinnar. Að þessu sinni fóru strákarnir yfir Fantasy-lið fjölmiðlamannsins Loga Bergmanns Eiðssonar.
Albert Þór Guðmundsson byrjaði á afsaka sig með því að illa hafi gengið hjá viðkomandi Fantasy-stjórum í þeirri umferð þegar liðin þeirra hafi verið tekin fyrir í Stjörnuliði vikunnar. Hann reyndi því að velja einhvern sem gekk vel í nýafstaðinni umferð og Logi varð fyrir valinu. Logi gerði áhugaverðar breytingar á Fantasy-liðinu sínu fyrir umferðina, meðal annars tvær á miðjumönnum Chelsea, Enzo Fernández og Moses Caicedo. „Enzo kom inn fyrir Caicedo en svo fór Enzo út fyrir Casemiro. Ég skil ekki alveg hvað gerðist þar en kannski kom einhver orðrómur um að Enzo væri meiddur sem ég missti af,“ sagði Albert. „Svo var þetta ansi óheppileg sala. [Declan] Rice út fyrir Bruno Guimaraes en samt tók liðið 77 stig,“ bætti Albert við. Nokkuð vel gert Bruno Guimaraes fékk vissulega tíu stig en Rice halaði inn sautján. Hann var stigahæstur í liðinu hans Loga ásamt þriggja marka manninum Igor Thiago hjá Brentford. „Þetta er leiðin að 77 stigum,“ sagði Albert. Róbert Daði Hansson greip þá boltann. „Þetta er nokkuð vel gert. Ég er samt hissa á að [Morgan] Rogers sé á bekknum,“ sagði Róbert. Hefur verið eitthvað slys Félagarnir ræddu aðeins nánar um Chelsea-fléttuna hjá Loga og veltu því fyrir sér hvort um mistök hafi verið að ræða. „Ég er að kíkja á hvenær hann gerði þetta. Hann henti Caicedo út fyrir Enzo og Enzo út fyrir Casemiro. Þetta hefur verið eitthvað slys. Ég held að hann hafi verið að leika sér og óvænt ýtt á staðfesta og kannski ekki áttað sig á því. Þetta getur gerst,“ sagði Albert. Hlusta má á nýjasta þátt Fantasýnar hér fyrir neðan.
Mest lesið „Ég hef sjaldan, ef nokkurn tímann, kynnst öðru eins félagi og Víkingi“ Íslenski boltinn Heimir ráðinn til ÍA og kostaði nokkrar milljónir Íslenski boltinn „Guðjohnsen er stórt nafn í fótboltanum“ Enski boltinn Víkingar láta Einar Guðna fara Íslenski boltinn Tindastóll - Álftanes | Stórliðið mætir á Sauðárkrók Körfubolti Hallgrímur kveður KA Íslenski boltinn HSÍ syrgir einstakan stuðningsmann Handbolti Liverpool slapp við Manchester City Enski boltinn 75 prósent látinna NFL-leikmanna með heilaskaða Sport Var klár í samkeppnina við Ingvar Íslenski boltinn Fleiri fréttir „Ég þarf ekki fullvissu frá neinum“ „Eina liðið sem ég vildi ekki“ Verða án Sesko fram í janúar „Guðjohnsen er stórt nafn í fótboltanum“ Máttu ekki spyrja Haaland út í dóminn og hættu við viðtalið Sonur Wayne Rooney með fernu fyrir átján ára liðið „Ég vissi að Gomez myndi skora“ Liverpool slapp við Manchester City Liverpool áfram eftir vítakeppni Rulli hetja Manchester City í vítakeppninni Sverðin slíðruð og líklegt að Fernandes byrji gegn Chelsea Lygileg tölfræði Andra toppar Haaland og Kane „Tek líklega ekki skrefið til Barcelona frá Blackburn“ Sjóðheitur Orri sagður í sigti Everton Sjáðu Fleetwood slá út Arsenal og Dowman sjá rautt Raddlaus eftir kraftaverk: Sáum Grimsby slá út Man. Utd og vildum gera eins Arsenal úr leik eftir tap gegn D-deildarliði Stöðvaði leik í drjúga stund vegna drónaflugs Sendi Haaland og fleiri í frí Framherjarnir þurfi að stíga upp Æðið vindur upp á sig og Gudjohnsen-merking ókeypis Stuðningsmennirnir fögnuðu Carrick en bauluðu á leikmennina Hver gæti tekið við af Carrick? Þurfti að sauma 50 spor eftir hundaárás Sakar leikmenn Manchester United um ófagmennsku utan vallar Man. United-stuðningsmaðurinn með hárið algjörlega búinn á því „Guð morning!“ Skaut á Liverpool eftir leikinn: „Aðeins eitt lið reyndi að skapa“ „Þetta snýst ekki um mig“ „Við verðum að líta í eigin barm“ Sjá meira