Fá arftaka til bráðabirgða og bíða til sumars Sindri Sverrisson skrifar 5. janúar 2026 13:16 Darren Fletcher stýrir Manchester United á miðvikudaginn gegn Burnley en svo gæti mögulega nýr bráðabirgðastjóri tekið við, fyrir bikarleikinn við Brighton um næstu helgi. Getty Manchester United mun samkvæmt breska ríkismiðlinum BBC ætla að ráða nýjan þjálfara til bráðabirgða, annan en Darren Fletcher, í stað Rúbens Amorim sem rekinn var í morgun.
Amorim var rekinn eftir að hafa starfað í rúmt ár, eða frá því í nóvember 2024. Í tilkynningu United kom fram að það kæmi í hlut Darrens Fletcher, sem verið hefur aðalþjálfari U18-liðs félagsins, að stýra United gegn Burnley á miðvikudag. Framhaldið er óráðið. Samkvæmt heimildum BBC ætlar United að ráða mann til að stýra liðinu út tímabilið og verður sá maður ekki Fletcher. Í sumar gætu svo álitlegir kostir verið á lausu fyrir United og í grein Independent segir að Oliver Glasner, stjóri bikarmeistara Crystal Palace, sé efstur á blaði hjá eigendum United. Þessi 51 árs gamli Austurríkismaður er með samning við Palace sem rennur út í sumar og er búist við því að hann yfirgefi þá félagið eftir að hafa fært því fyrsta titilinn í sögu þess. Glasner hefur átt í ákveðnu stappi við eigendur Palace, varðandi leikmannakaup, en samkvæmt Independent er samt búist við því að hann vilji klára tímabilið með liðinu og freista þess að stýra því til fyrsta titilsins í Evrópukeppni, með sigri í Sambandsdeildinni. Miðillinn segir að Julian Nagelsmann gæti einnig verið inni í myndinni, vegna sambands við Christopher Vivell sem er yfir leikmannakaupum hjá United. Nagelsmann gæti viljað snúa sér aftur að félagsliðafótbolta eftir HM næsta sumar með Þýskalandi. Kieran McKenna hjá Ipswich og Enzo Maresca, sem rekinn var frá Chelsea á nýársdag, eru einnig nefndir.
Enski boltinn Mest lesið „Allt of margir leikmenn sem þurfa að stíga upp“ Handbolti Isak í hópnum í París Enski boltinn Úti er ævintýri hjá Völsungi Fótbolti Sveindís fyrst til að hljóta verðlaun vestanhafs Fótbolti Goðsögn fallin frá Fótbolti Fimm ensk lið í Meistaradeildinni á næsta ári Enski boltinn Bayern hafði betur í skemmtilegum leik Fótbolti Havertz hetjan í steindauðri skák Fótbolti Keflvíkingur keppti í Squid Game Íslenski boltinn Shaq er að byrja með nýja troðsludeild Körfubolti Fleiri fréttir Isak í hópnum í París Fimm ensk lið í Meistaradeildinni á næsta ári Manchester United nýtir fríið til að fara í æfingaferð til Írlands „Finnur fyrir metnaðinum og möguleikunum“ Sleppur við bann eftir að hafa hrint dómara: „Algjör vanvirðing“ Tekur skóna af hillunni fyrir gamlingjabolta á Englandi Bernardo Silva yfirgefur City: „Allar góðar sögur enda“ Van Dijk segir að Liverpool hafi gefist upp gegn City Hetja Leeds: „Þetta eru töfrar bikarsins“ Fá City eftir að hafa slegið Arsenal út Leeds í undanúrslit í fyrsta sinn í 39 ár eftir ótrúlega dramatík Skytturnar úr leik: Dýrlingarnir sýndu Arsenal enga miskunn Chelsea flaug áfram í undanúrslit Szoboszlai svekktur: „Hugarfarið var ekki nógu gott“ Haaland með þrennu þegar City rúllaði yfir Liverpool Vafasamur vítaspyrnudómur stöðvaði ekki toppliðið Mo Salah fékk ráð frá Steven Gerrard Isak gæti spilað á móti Man City um helgina og Salah er heill Enzo Fernandez verður í agabanni í næstu tveimur leikjum Chelsea Vill vera lengi hjá „stórliðinu“ Tottenham Hraunar yfir Enzo: „Farðu í burtu“ Manchester United ferðast um Norðurlöndin í sumar Isak fær að æfa með liðsfélögunum aftur Onana fær mun hærri laun ef Man. United kemst í Meistaradeildina Chelsea setti nýtt met í taprekstri Nýr stjóri Tottenham ekki velkominn hjá stuðningsmönnunum De Zerbi tekinn við Tottenham Heimsmeistara býðst að aðstoða De Zerbi Starf Howe í hættu De Zerbi opinn fyrir því að taka strax við Tottenham Sjá meira