Greindi sjálfur frá því að hann tæki við Chelsea Sindri Sverrisson skrifar 6. janúar 2026 09:20 Liam Rosenior hefur stýrt liði Strasbourg en er nú nýr stjóri Chelsea. Getty/Ross MacDonald Hinn 41 árs gamli Englendingur Liam Rosenior greindi frá því sjálfur í dag að hann hefði samþykkt að verða næsti stjóri Chelsea, eftir að Enzo Maresca var rekinn á nýársdag.
Uppfært klukkan 10:45 - Chelsea hefur nú staðfest ráðningu Roseniors og er samningur hans við félagið til sex ára, eða til ársins 2032. Rosenior var strax nefndur til sögunnar sem líklegasti arftaki Maresca en hann hefur stýrt liði Strasbourg sem er í eigu sömu eigenda og Chelsea. „Ég get ekki sleppt þessu tækifæri til að koma til svona ótrúlegs félags, með ótrúlegan hóp sem vann heimsmeistaramót félagsliða,“ sagði Rosenior í dag, á blaðamannafundi í Frakklandi. „Ég hef ekki skrifað undir neitt. Allt hefur verið samþykkt og þetta verður eflaust frágengið á næstu klukkutímum. Ég er hér vegna þess að ég ann þessu félagi og fannst réttast að svara ykkar spurningum, augliti til auglitis, áður en ég held áfram,“ sagði Rosenior í Strasbourg í dag. Rosenior stýrði Hull City frá 2022-24 en tók svo við Strasbourg í Frakklandi sumarið 2024, af Patrick Vieira. Undir hans stjórn endaði Strasbourg í 7. sæti frönsku 1. deildarinnar og komst í Sambandsdeild Evrópu þar sem liðið endaði efst í deildarkeppninni, eftir 3-1 sigur gegn Breiðabliki í desember. Næsti leikur Chelsea er Lundúnaslagur við Fulham annað kvöld. Liðið situr í 5. sæti með 31 stig, sautján stigum frá toppliði Arsenal, eftir fjóra leiki í röð án sigurs. Chelsea spilar svo bikarleik við Charlton á laugardagskvöld.
Enski boltinn Chelsea FC Mest lesið Leik lokið: Tindastóll-Álftanes 105-108 | Spennutryllir í Síkinu Körfubolti Sjáðu slagsmálin í Síkinu Körfubolti „Ég hef sjaldan, ef nokkurn tímann, kynnst öðru eins félagi og Víkingi“ Íslenski boltinn Heimir ráðinn til ÍA og kostaði nokkrar milljónir Íslenski boltinn Víkingar láta Einar Guðna fara Íslenski boltinn „Guðjohnsen er stórt nafn í fótboltanum“ Enski boltinn KR - Sindri 107-102 | Hetjuleg barátta dugði skammt Körfubolti Hallgrímur kveður KA Íslenski boltinn HSÍ syrgir einstakan stuðningsmann Handbolti Liverpool slapp við Manchester City Enski boltinn Fleiri fréttir „Ég þarf ekki fullvissu frá neinum“ „Eina liðið sem ég vildi ekki“ Verða án Sesko fram í janúar „Guðjohnsen er stórt nafn í fótboltanum“ Máttu ekki spyrja Haaland út í dóminn og hættu við viðtalið Sonur Wayne Rooney með fernu fyrir átján ára liðið „Ég vissi að Gomez myndi skora“ Liverpool slapp við Manchester City Liverpool áfram eftir vítakeppni Rulli hetja Manchester City í vítakeppninni Sverðin slíðruð og líklegt að Fernandes byrji gegn Chelsea Lygileg tölfræði Andra toppar Haaland og Kane „Tek líklega ekki skrefið til Barcelona frá Blackburn“ Sjóðheitur Orri sagður í sigti Everton Sjáðu Fleetwood slá út Arsenal og Dowman sjá rautt Raddlaus eftir kraftaverk: Sáum Grimsby slá út Man. Utd og vildum gera eins Arsenal úr leik eftir tap gegn D-deildarliði Stöðvaði leik í drjúga stund vegna drónaflugs Sendi Haaland og fleiri í frí Framherjarnir þurfi að stíga upp Æðið vindur upp á sig og Gudjohnsen-merking ókeypis Stuðningsmennirnir fögnuðu Carrick en bauluðu á leikmennina Hver gæti tekið við af Carrick? Þurfti að sauma 50 spor eftir hundaárás Sakar leikmenn Manchester United um ófagmennsku utan vallar Man. United-stuðningsmaðurinn með hárið algjörlega búinn á því „Guð morning!“ Skaut á Liverpool eftir leikinn: „Aðeins eitt lið reyndi að skapa“ „Þetta snýst ekki um mig“ „Við verðum að líta í eigin barm“ Sjá meira