Starfsáætlun tekin úr sambandi í annað sinn á vorþingi Elín Margrét Böðvarsdóttir skrifar 22. júní 2020 11:50 Steingrímur J. Sigfússon tilkynnti um þetta við upphaf þingfundar í morgun. Vísir/Vilhelm
Starfsáætlun Alþingis hefur verið tekin úr sambandi en eldhúsdagsumræður fara þó fram á morgun. Nú er kapp lagt á að ljúka þingstörfum en ólíklegt er að það takist að afgreiða öll þau mál sem stefnt er á að klára fyrir sumarfrí í þessari viku, líkt og starfsáætlun gerði ráð fyrir. Við upphaf þingfundar í morgun tilkynnti Steingrímur J. Sigfússon forseti Alþingis að forsætisnefnd hafi ákveðið í morgun að taka starfsáætlunina úr sambandi. Samkvæmt henni var gert ráð fyrir að þingi yrði frestað frá og með næstkomandi fimmtudegi. Þetta er í annað sinn á þessu vorþingi sem starfsáætlun er tekin úr sambandi en það var líka gert í mars í ljósi kórónuveirufaraldursins. Enn liggur ekki fyrir endanlegt samkomulag milli flokka á Alþingi um frestun þingfunda fyrir sumarfrí og hvaða mál stefnt verður á að klára. Á dagskrá þingfundar í dag eru meðal annars áframhaldandi umræður um samgönguáætlun til næstu fimm og fimmtán ára en þingmenn Miðflokksins hafa verið sakaðir um að halda uppi málþófi vegna andstöðu flokksins við borgarlínu.
Alþingi Mest lesið Gekk nakinn í veg fyrir bíla á Suðurlandsvegi Innlent Fannst 73 árum eftir að hafa verið rænt Erlent Sænsk glæpagengi sendi fólk til Íslands Innlent Skiptast á eldflaugum í massavís Erlent Ánægður með frumvarp sjálfstæðismanna Innlent Tjóðraði móður sína við stól til að drepa eiginmann sinn Erlent Sæðisgjafar tilkynni það fjölskyldu sinni svo ekki verði „slys“ Innlent Alþingismerkið hafi aldrei verið heilagt Innlent Jörðin fær tímabundið annað tungl Erlent Varpa sprengjum á fjölbýlishús í Karkív Erlent Fleiri fréttir Óásættanlegt að vísa NPA-vandanum alfarið til sveitarfélaga Ánægður með frumvarp sjálfstæðismanna Bjarni fundaði með Guterres Tveggja bíla árekstur á Suðurlandsvegi Kom vini sínum til bjargar á fótboltaæfingu og 34. klukkustund Bakgarðshlaups Gekk nakinn í veg fyrir bíla á Suðurlandsvegi Verður Þórsmörk þjóðgarður? Vill burt með rándýr, úrelt og óþarfa stimpilgjöld Vonar að sveitarfélögin leysi úr NPA-vandanum Alþingismerkið hafi aldrei verið heilagt Fjármögnun NPA-samninga og Bakgarðshlaupið í beinni Samgöngusáttmálinn, Yazan og loftlagsmál á Sprengisandi Slegist með vopnum við skemmtistað Mættu í flugbúningi á sveitaböllin og áttu séns Sænsk glæpagengi sendi fólk til Íslands Sæðisgjafar tilkynni það fjölskyldu sinni svo ekki verði „slys“ Lögreglumenn í veikindaleyfi vegna þungra mála Með banvænan sjúkdóm í stöðugri baráttu við Kópavogsbæ Mikill reykur eftir að gleymdist að slökkva á kerti Bið eftir NPA-þjónustu og eftirspurn eftir sæðisgjöfum Arnar Þór á leið í nýjan flokk Anton Sveinn McKee til liðs við Miðflokkinn „Spurðu svo fyrirtækið þitt af hverju það leggur fé í heimsendakölt“ Ekkert sem bendir til þess að sakborningum fjölgi Lífræni dagurinn er í dag Bein útsending: Heilabilun rædd á Alzheimerdegi Ekkert bendi til að sakborningum muni fjölga Telur fleiri falla á nýju bílprófi Maður margra storma íhugar stöðu sína Byssan reyndist leikfang Sjá meira