Skoðun

Viljum við spilla meiru?

Tryggvi Felixson skrifar
Í anddyri Norræna hússins má nú sjá sýningu á fjölmörgum ljósmyndum af náttúruperlum sem þegar hafa verið eyðilagðar eða eru í bráðri hættu vegna fyrirhugaðra virkjanaframkvæmda. Er næsta víst að margir eiga erfitt með að trúa eigin augum, þegar þeir sjá þau svæði sem eru nú í hættu. Viljum við virkilega spilla þeim? Þeim má enn bjarga. En þá þarf að stöðva þau öfl og sérhagsmuni sem vilja halda áfram á virkjunarbraut.

Sýningin heitir „Enginn veit hvað átt hefur fyrr en misst hefur“. Tilefnið er 50 ára afmæli Landverndar en sýningin er haldin í samstarfi við Ólaf Sveinsson kvikmyndagerðarmann, sem jafnframt er sýningarstjóri, og stóran hóp ljósmyndara.

Í Landvernd eru í dag yfir 6.000 félagar og um 40 aðildarfélög. Það er traust undirstaða sem byggt verður á til að efla náttúru- og umhverfisvernd á næstu árum. Ekki veitir af.

Auk ljósmynda er stór snertiskjár í anddyri Norræna hússins með Náttúrukorti Framtíðarlandsins sem veitir yfirsýn yfir þau svæði á Íslandi þar sem virkjanir hafa verið byggðar, fyrirhugað er að nýta til orkuframleiðslu eða nýta á annan hátt ásamt ítarlegum upplýsingum. Á stóru tjaldi í ráðstefnu-, tónleika- og bíósal Norræna hússins eru sýndar fjórar stuttar kvikmyndir, þrjár eftir Ólaf Sveinsson sem hann gerði sérstaklega fyrir sýninguna og eru tengdar baráttunni gegn Kárahnjúkavirkjun, þar af ein um Ómar Ragnarsson. Sú fjórða fjallar um fyrirhugaða Hvalárvirkjun á Ströndum.

Í barnabókasafni í kjallara Norræna hússins þar sem gengið er í gegnum bókasafnið sjálft hefur verið hengdur upp fjöldi mynda af dýrum sem lifa villt í náttúru Íslands. Myndirnar eru heillandi og höfða ekkert síður til fullorðinna en barna og verða vonandi til að opna augu fleiri fyrir þeirri fegurð sem býr í fánu landsins og horfa á náttúruna, jafnt lifandi sem dauða, sem eina heild.

Átökin um nýtingu auðlinda Íslands hafa staðið í áratugi og virðast engan enda ætla að taka. Mikil verðmæti hafa glatast vegna virkjana og ef við spornum ekki við glatast enn meira. Verðmætur náttúruarfur komandi kynslóða er í hættu.

Framleiðsla rafmagns er nú þegar fimmfalt meiri en þarf til að mæta almennri eftirspurn. Þrátt fyrir það renna út sífellt fleiri rannsóknarleyfi fyrir virkjanir stórar sem smáar. Á sama tíma virðist sem þær stofnanir sem eiga að fylgja eftir lögum um vernd náttúru og víðerna vanti úrræði til að koma í veg fyrir frekari eyðileggingu á náttúru landsins.

Stjórnvöld eru eins og þríhöfða þurs; einn segist leggja áherslu á náttúruvernd, annar vill efla ferðaþjónustu sem byggir tilveru sína á náttúruarfi þjóðarinnar en sá þriðji veitir orkufrekum, mengandi fyrirtækjum rausnarlega fyrirgreiðslu.

Sýningin stendur til 17. nóvember er opin alla daga frá kl. 10.00 til 17.00.

Höfundur er formaður Landverndar




Skoðun

Skoðun

Börnin okkar

Halla Karen Kristjánsdóttir,Anna Sigríður Guðnadóttir,Valdimar Birgisson skrifar

Sjá meira


×