Skoðun

Aukin verð­mæta­sköpun með sam­fé­lags­á­byrgð

Eva Magnúsdóttir skrifar
„Ef Sameinuðu þjóðirnar setja markmið fyrir heiminn þá hljóta þau að eiga við um Skaftárhrepp líka. Þó við séum pínulítið samfélag þá berum við jafnmikla ábyrgð og allir aðrir í heiminum.“

Þetta sagði oddviti Skaftárhrepps, Eva Björk Harðardóttir, í viðtali við Morgunblaðið á dögunum. Tilefni þessara orða voru þau að sveitarstjórn Skaftárhrepps hefur mótað stefnu í aðalskipulagi sínu í anda heimsmarkmiða Sameinuðu þjóðanna. Þetta er í fyrsta sinn sem unnið er að gerð aðalskipulags á þennan hátt og innleiðing er framundan.

Sveitarfélagið ætlar að leggja áherslu á sjálfbærni, verndun náttúrunnar, framleiðni í atvinnulífinu með fjölbreyttum tækninýjungum og hvetja til nýsköpunar í þjónustu við ferðamenn auk þess að mæla árangur. Orð eru til alls fyrst og fleiri þurfa að feta í fótspor hins smáa en ábyrga samfélags.

Ég er svo lánsöm að hafa fengið tækifæri til að leiða stefnumótun í sveitarfélaginu í anda heimsmarkmiðanna og hef sjaldan orðið vör við svo mikinn einlægan áhuga og metnað til þess að gera vel fyrir landið okkar. Það er krísa og hún er alþjóðleg – við viljum að börnin okkar erfi landið óskaðað. Nú er kominn tími á aðgerðir og eingöngu með samhentu átaki getum við tekist á við verkefni tengd loftslagsvánni. 

Heimsmarkmið Sameinuðu þjóðanna um sjálfbæra þróun eru ágæt leið til mælinga en þau eru 17 talsins með 169 undirmarkmiðum og ná bæði til alþjóðasamstarfs og innanríkismála á sviði efnahags, félags- sem og umhverfisþátta. Framsýn sveitarfélög eins og Skaftárhreppur sjá mikilvægi þess að sveitarfélög leggi sitt af mörkum til þeirra lífsgæða sem því fylgja. Mikilvægasta verkefni sveitarfélaga sem fá það hlutverk að gæta hinnar dásamlegu náttúru okkar, er varðveisla hennar. Án hennar eru engir ferðamenn og ekkert líf á hinu fallega landi okkar.

Mikilvægt er að sveitarfélög, fyrirtæki og einstaklingar taki höndum saman um að vinna í anda heimsmarkmiðanna þar sem þau eru hjálpartæki við að mæla hvernig hvernig þjóðir hlúa að sjálfbærni og hagsæld til framtíðar. Það skiptir máli að innleiða nýjar áherslur í stefnu með sjálfbæra þróun að leiðarljósi, þar sem umhverfisþættir, félagslegir þættir og stjórnarhættir eru greindir og mældir samhliða fjárhagslegum þáttum. Þannig er hægt að tryggja aukna verðmætasköpun og tryggja velferð samfélagsins til framtíðar.

Hugur þinn hjálpar þér við að finna lausnir vandamálanna og móta stefnuna. Hendur þínar hafa hæfileikana sem þarf til þess að takast á við áskoranirnar nýrra verkefna. Í hjartanu felst oft hin mesta áskorun en jafnframt sú mikilvægasta; að finna von og kjark til þess að halda áfram, og virkja aðra til athafna. Að taka fyrsta skrefið strax er mikilvægt og að mæla árangurinn er nauðsynlegt. Að gera ekkert er ekki í boði.

Höfundur er framkvæmdastjóri og ráðgjafi í samfélagslegri ábyrgð hjá Podium ehf.




Skoðun

Skoðun

Börnin okkar

Halla Karen Kristjánsdóttir,Anna Sigríður Guðnadóttir,Valdimar Birgisson skrifar

Sjá meira


×