Skoðun

Jólaboðið 1977

Davíð Stefánsson skrifar
Ein af stærri fréttum síðustu viku var skráning Marel í kauphöllinni í Amsterdam. Undir forystu stjórnenda með skýra sýn og með stuðningi fjárfesta er hátæknifyrirtækið orðið leiðandi á alþjóðavísu í matvælaiðnaði. Hjá félaginu starfa sex þúsund manns í 30 löndum við að þjónusta viðskiptamenn í 180 ríkjum. Markaðsvirði fyrirtækisins er um 420 milljarðar króna.

Aldrei ætti að vanmeta gildi góðra jólaboða. Sagt er að viðskiptahugmyndin að baki Marel hafi fæðst í einu slíku árið 1977. Vísindamenn og frumkvöðlar þróuðu fyrstu rafeindavogina fyrir íslenskan fiskiðnað í húsakynnum Raunvísindastofnunar Háskóla Íslands. Marel var síðan formlega stofnað árið 1983 þegar aðilar úr sjávarútvegi komu til liðs við frumkvöðlana í háskólanum.

Ástæða er til að minna á rætur Marel í íslensku vísindasamfélagi. Saga Marel sýnir mikilvægi vísinda og háskóla í framþróun atvinnulífsins. Hún undirstrikar nauðsyn þess að við hlúum vel að nýsköpun og sprotafyrirtækjum. Þar er að finna hreyfiafl nýrra framleiðsluhátta með uppbroti ríkjandi hugmynda og sífelldri sköpun og endurmati. Það krefst þolinmæði og skilnings á því að margar hugmyndir munu ekki ganga upp. En þær fáu sem að endingu ganga upp verða forsenda aukinnar hagsældar. Með þetta í huga er ástæða til bjartsýni þegar horft er til þeirra mörgu sprota- og hátæknifyrirtækja sem starfa hér á landi.

Ef við Íslendingar viljum viðhalda óbreyttum lífsgæðum verðum við að auka útflutningsverðmæti okkar um milljarð á viku næstu tuttugu árin. Það verður einungis gert með því að skapa athafnalífi umhverfi vaxtar og samkeppnishæfni. Þá þarf hófsemi í umfangi og afskiptum ríkisins, en einnig meiri stuðning við frumkvöðla, sterkt vísindasamfélag og öfluga háskóla.

Ísland býr sem betur fer við opna markaði. Forskot á aðra kemur með fjölþjóðlegu hugviti og samvinnu. Sú umgjörð sem við búum atvinnulífinu í harðri alþjóðasamkeppni skiptir því öllu máli. Þar hallar verulega á íslensk fyrirtæki vegna óstöðugleika þess örgjaldmiðils sem krónan er. Rekstrarforsendur breytast sífellt við það að krónan styrkist eða veikist. Samkeppnishæfni til lengri tíma veikist.

Á sameiginlegum markaði Evrópu skiptir miklu að hafa tekjur og gjöld í sama gjaldmiðli. Miðað við það óhagræði sem er af krónunni er merkilegt að sjá hvað atvinnulífið og samfélagið hefur þó spjarað sig.

Það var fróðlegt að hlusta á Árna Odd Þórðarson, forstjóra Marel, á síðasta Iðnþingi. Þar spurði hann hvernig í ósköpunum lítil íslensk iðnfyrirtæki gætu starfað í núverandi vaxtaumhverfi. Marel fjármagnaði sig á 1-2% vöxtum. Smærri iðnfyrirtæki á Íslandi eru í samkeppni við þetta vaxtastig. Að auki þurfi íslensk fyrirtæki að greiða hærri laun vegna hárra vaxta hér á landi til að fólk sé jafnsett öðrum í Evrópu. Slíkt gengur varla til lengdar.

Leggjum við hlustir í jólaboðum framtíðarinnar.




Skoðun

Skoðun

21 blár

Jón Pétur Zimsen skrifar

Sjá meira


×