Skoðun

„Góður Garðabær“ – Íbúalýðræði aukið

Sigríður Hulda Jónsdóttir og Almar Guðmundsson skrifar

Garðabær var fyrst íslenskra sveitarfélaga til að setja sér lýðræðisstefnu árið 2010. Alla tíð síðan hefur íbúasamráð skipað veigamikinn sess í störfum bæjarins. Síðastliðin fjögur ár voru til dæmis haldnir 37 opnir íbúa-, samráðs- og kynningarfundir.

Nýverið samþykkti bæjarstjórn tillögu undirritaðra sem miðar að því að efla enn frekar íbúasamráð með því að setja það í formfastari farveg og leita nýrra leiða í samtali við íbúa.

Sterk tengsl við íbúa eru mikilvæg

Grundvallarskylda sveitarstjórna er að taka ákvarðanir með hliðsjón af þörfum og hagsmunum íbúa og sveitarfélagsins í heild eins og fram kemur í nýútkominni handbók um íbúasamráð og þátttöku íbúa sem Samband íslenskra sveitarfélaga gefur út. Sterk tengsl við íbúa sem þekkja eigin nærumhverfi best skapar forsendur fyrir samráðsmenningu og farsælli ákvarðanatöku. Íbúasamráð á að vera fastur liður í stjórnkerfi sveitarfélaga. Rannsóknir bæði hérlendis og erlendis sýna að sveitarstjórnir sem koma sér upp samráðsmenningu njóta meira trausts meðal íbúa og þar ríkir meiri ánægja með stjórnun og þjónustu.

Íbúasamráð og bæjarbragur

Undir heitinu „Góður Garðabær“ mun Garðabær með markvissum hætti skilgreina leiðir til að auka enn frekar íbúasamráð, m.a. með því að íbúar skilgreini sjálfir verkefni og kjósi síðan um hvaða verkefni eiga að hljóta framgang. Þannig verður leitað til bæjarbúa varðandi hugmyndir að nýframkvæmdum og/eða viðhaldsverkefnum með áherslu á öryggi bæjarbúa, hreyfi- og leikmöguleika og aukin lífsgæði í nærumhverfi og hverfum. Einnig verður lögð áhersla á verkefni sem efla bæjarbraginn í heild sinni. Tillagan felur í sér að þegar á næsta ári verði stigið skref í þessa átt með því að verja ákveðinni fjárhæð í málið sem hægt verður að hækka þegar reynsla er komin á vinnulagið og árangur verklagsins verður sýnilegur. Markmiðið er að efla með markvissum hætti lýðræðisleg vinnubrögð í sveitarfélaginu og verja fé til framkvæmda eftir forgangsröðun íbúanna sjálfra.




Skoðun

Skoðun

Börnin okkar

Halla Karen Kristjánsdóttir,Anna Sigríður Guðnadóttir,Valdimar Birgisson skrifar

Sjá meira


×