„Það er mjög hátt miðað við þau lönd sem við erum að bera okkur saman við, til dæmis í Þýskalandi er það um eitt prósent. Frá 1990 hefur kolefnissporið frá sorpi aukist um fjörutíu á Íslandi á meðan það hefur dregist saman um 70 prósent í Þýskalandi,“ sagði Sigurður í umræðu um þessi mál í Bítinu á Bylgjunni í morgun.
Að mati Sigurðar er plast mjög góð vara ef hún er rétt notuð. Hann sagði það tiltölulega einfalt að endurvinna plast en hjá Pure North Recycling er plast úr heyrúllum endurunnið.
Hægt að nota endurunnið heyrúlluplast til að framleiða plastpoka
Sigurður segir fyrirtækið hafa þróað nýja aðferð við að endurvinna plastið þannig að hægt sé að verka það svo vel að flokkist sem hágæðaplast. Þannig sé til að mynda hægt að nota það til framleiðslu á plastpokunum.
Ávinningurinn fyrir umhverfið af því að flokka og endurvinna plast er óumdeilanlega umtalsverður.
„Fyrir hvert kíló af endurunnu plasti sem þú getur notað spararðu 1,6 lítra af olíu sem hægt er að skilja eftir í jörðinni,“ sagði Sigurður.
Megnið af því plasti sem heimilin flokka og skila í grenndargáma og á endurvinnslustöðvar er flutt úr landi, aðallega til Svíþjóðar í flokkunarstöð sem getur flokkað plast eftir tegundum þegar búið er að blanda því saman.
Tegundirnar af plasti er nefnilega mismunandi og bendir Sigurður til að mynda á að plastið í gosflösku er ekki það sama og í tappanum á flöskunni. Þetta þarf að flokka eftir á þegar fólk skilar því til endurvinnslu.
„En skilaboðin mín eru þau að ef við þurfum ekki að vera að flokka þetta eftir á þá verða til verðmæti,“ sagði Sigurður en hlusta má á viðtalið við hann í heild sinni í spilaranum hér fyrir neðan.