
Mannréttindi brotin á eldri borgurum!
Ígildi eignaupptöku
Kjaranefnd Félags eldri borgara í Reykjavík og nágrenni kannar nú hvort það sé ekki brot á lögum og stjórnarskrá að skerða lífeyri aldraðra frá almannatryggingum vegna greiðslna til þeirra úr lífeyrissjóði. Sá eftirlaunamaður, sem hefur 50-100 þúsund krónur á mánuði úr lífeyrissjóði, sætir skerðingu TR, sem samsvarar í kringum helmingi greiðslunnar úr lífeyrissjóði. Sá sem hefur 100 þúsund krónur úr lífeyrissjóði á mánuði sætir 48 þúsund króna skerðingu og sá, sem hefur 50 þúsund krónur úr lífeyrissjóði sætir 32 þúsund króna skerðingu.
Mörgum finnst þetta eins og eignaupptaka. Það er verið að refsa mönnum fyrir að hafa greitt alla sína starfsævi í lífeyrissjóð. Sá eftirlaunamaður, sem aldrei hefur greitt í lífeyrissjóð, sætir ekki neinni skerðingu á lífeyri sínum frá almannatryggingum. Það verður að stöðva þessa skerðingu lífeyris aldraðra hjá TR. Það er ekki unnt að sætta sig lengur við þetta ranglæti. Góðar líkur eru á því að farið verði í mál við ríkið til þess að fá þessu ranglæti hnekkt.
Brotið á þeim sem fara á hjúkrunarheimili
En mannréttindabrotin gegn öldruðum eru fleiri. Þegar ellilífeyrisþegar fara á hjúkrunarheimili vegna heilsubrests er lífeyrir þeirra frá almannatryggingum gerður upptækur! Þetta er því gert án leyfis viðkomandi eldri borgara. Lífeyririnn frá almannatryggingum rennur til greiðslu kostnaðar við dvölina á hjúkrunarheimilinu. Og síðan er ellilífeyrisþeganum skammtaður vasapeningur, rúmar 50 þúsund krónur á mánuði. Þetta fyrirkomulag tíðkast ekki annars staðar á Norðurlöndunum. Þar halda ellilífeyrisþegar sínum lífeyri frá almannatryggingum og greiða síðan sjálfir af honum það, sem þeir eiga að greiða til hjúkrunarheimilis. Þannig halda þeir reisn sinni.
Fyrirkomulaginu hér þarf að breyta strax og taka upp sama fyrirkomulag og á Norðurlöndum. Núverandi skipan er niðurlægjandi fyrir ellilífeyrisþega.
Mismunun á sjúkrahúsum og á vinnumarkaði
Rannsókn leiðir í ljós, að biðtími aldraðra eftir meðferð á sjúkrastofnunum er lengri en þeirra, sem yngri eru. Eldri borgarar eru látnir sæta afgangi á sjúkrahúsunum. Það er mannréttindabrot. Og hið sama á við á vinnumarkaðnum. Þar missa eldri borgarar vinnuna á undan þeim yngri og öldruðum gengur illa að fá vinnu á ný. Þeir yngri ganga fyrir. Þetta er mannréttindabrot. Mismunun er bönnuð samkvæmt alþjóðlegum mannréttindasáttmálum og samkvæmt jafnræðisreglu stjórnarskrárinnar.
Þannig, að það er sama hvar borið er niður: Það er alls staðar verið að fremja mannréttindabrot á öldruðum. En en að mínu mati er grófasta mannréttindabrotið það, að skera lífeyri aldraðra svo mikið niður, að hann dugi ekki til framfærslu. Það er til skammar fyrir íslenskt þjóðfélag, sem vill kalla sig velferðarþjóðfélag.
Skoðun

Ísafjarðarbær í Bestu deild
Sigríður júlía Brynleifsdóttir,Gylfi Ólafsson skrifar

Þjóðarmorð í beinni
Arnar Eggert Thoroddsen skrifar

Allt þetta máttu eiga ef þú tilbiður mig
Birgir Dýrfjörð skrifar

Atvinnufrelsi!
Lilja Rafney Magnúsdóttir skrifar

Að mása eða fara í golf
Jón Pétur Zimsen skrifar

Leiðréttum kerfisbundið misrétti
Jónína Brynjólfsdóttir skrifar

Leikjanámskeið fyrir fullorðna við Austurvöll
Þórður Snær Júlíusson skrifar

Sparnaðarráð fyrir ferðalagið
Svandís Edda Jónudóttir skrifar

Sál hvers samfélags birtist skýrast í því hvernig það annast börnin sín
Diljá Ámundadóttir Zoëga skrifar

Kaldar kveðjur frá Íslandi - á meðan Hörmungarnar halda áfram
Hjálmtýr Heiðdal,Yousef Ingi Tamimi,Magnús Magnússon skrifar

Samráðsdagar á Kjalarnesi
Ævar Harðarson skrifar

Skýr og lausnamiðuð afstaða Framsóknar til veiðigjalda
Ingibjörg Isaksen skrifar

Að mása sig hása til að tefja
Ása Berglind Hjálmarsdóttir skrifar

Sjónarspil í Istanbul
Gunnar Pálsson skrifar

Að vilja meira og meira, meira í dag en í gær
Harpa Fönn Sigurjónsdóttir skrifar

Sjálfboðaliðinn er hornsteinninn
Hannes S. Jónsson skrifar

Kallað eftir málefnalegri umræðu um kröfur um íslenskukunnáttu
Eiríkur Rögnvaldsson skrifar

Gangast við mistökum
Júlíus Birgir Jóhannsson skrifar

Um styttingu vinnuvikunnar í leikskólum Reykjavíkurborgar, ákall um leiðréttingu
Anna Margrét Ólafsdóttir,Hafdís Svansdóttir,Jónína Einarsdóttir skrifar

Ríkisstjórnin ræðst gegn ferðaþjónustu bænda
Lilja Rannveig Sigurgeirsdóttir skrifar

Að apa eða skapa
Rósa Dögg Ægisdóttir skrifar

Að reyna að „tímasetja“ markaðinn - er það góð strategía?
Baldvin Ingi Sigurðsson skrifar

Lífsnauðsynlegt aðgengi
Bryndís Haraldsdóttir skrifar

Hvers vegna var Úlfar rekinn?
Hjörtur J. Guðmundsson skrifar

Eru forsætisráðherra og ríkisstjórn hrædd við vilja fólksins; lýðræðið?
Ole Anton Bieltvedt skrifar

Þegar við ætluðum að hitta Farage - Á Ísland að ganga í ESB?
Sveinn Ólafsson skrifar

Sama steypan
Ingólfur Sverrisson skrifar

Ofbeldi gagnvart eldra fólki
Kolbrún Áslaugar Baldursdóttir skrifar

Að taka ekki mark á sjálfum sér
Kristinn Karl Brynjarsson skrifar

Betri borg
Alexandra Briem skrifar