Helga Þórisdóttir hefur verið skipuð forstjóri Persónuverndar frá 1. september næstkomandi. Helga hefur gegnt embætti staðgengis forstjóra og sviðsstjóra lögfræðisviðs Lyfjastofnunar.
Í frétt innanríkisráðuneytisins segir að Helga hafi lokið embættisprófi í lögfræði frá Háskóla Íslands árið 1995 og námi í stjórnun frá IESE Business School á Spáni 2015.
„Helga hefur setið margs konar námskeið á sviði lögfræði og stjórnsýslu og stjórnunar. Hún hefur starfað hjá embætti ríkissaksóknara, á nefndasviði Alþingis, hjá EFTA í Brussel og menntamálaráðuneytinu. Frá árinu 2008 hefur Helga starfað hjá Lyfjastofnun, sem sviðsstjóri lögfræðisviðs og staðgengill forstjóra. Árið 2012 til 2013 var hún settur forstjóri Lyfjastofnunar. Helga var meðal sex umsækjenda um embættið sem auglýst var í lok mars.“
Umsækjendur um stöðuna voru:
Alma Tryggvadóttir, lögfræðingur, settur forstjóri Persónuverndar
Helga Þórisdóttir, lögfræðingur, sviðsstjóri lögfræðisviðs Lyfjastofnunar
Hilmar Einarsson, lögfræðingur, sjálfstætt starfandi
Kolbrún Ásta Bjarnadóttir, nemi
Sif Konráðsdóttir, lögfræðingur, Senior Officer á samkeppnis- og ríkisaðstoðarsviði EFTA
Þorsteinn Sigurðsson, menntaður í tölvunarfræði og rafeindavirkjun, afgreiðslumaður
Helga nýr forstjóri Persónuverndar

Tengdar fréttir

Þau vilja verða forstjóri Persónuverndar
Sex sóttu um stöðu forstjóra Persónuverndar en umsóknarfrestur um stöðuna rann út þann 26. apríl. Skipað er í embættið frá 1. ágúst síðastliðinn og er starfið til fimm ára.