Goðsögnin Óli Þórðar: Skagaliðið 93 betra en Stjarnan 2014 Tómas Þór Þórðarson skrifar 28. maí 2015 15:00
Ólafur Þórðarson, sjöfaldur Íslandsmeistari með ÍA, er sá næsti sem tekinn verður fyrir í þáttunum Goðsagnir efstu deildar á Stöð 2 Sport. Þátturinn verður frumsýndur á föstudagskvöldið klukkan 21.00. Ólafur spilaði með mörgum góðum Skagaliðum á löngum ferli, en liðið 1993 er vafalítið það besta og af mörgum talið það besta í íslenskri knattspyrnusögu. Skagaliðið 1993 vann deildina með yfirburðum. Það vann 16 leiki, gerði eitt jafntefli og tapaði aðeins einum leik. Markatalan var 62-16. Þá unnu Skagamenn lið FH sem endaði í öðru sæti tvisvar sinnum með markatölunni 10-0. Stjarnan vann Íslandsmótið í fyrra án þess að tapa leik og gerði það í tólf liða deild. Hún vann fimmtán leiki og gerði sjö jafntefli. Eðlilega hafa menn því spurt sig hvort Stjarnan 2014 sé besta lið sögunnar. Stjarnan vann þó ekki bikarinn eins og ÍA gerði 1993 en fór lengra en nokkurt annað íslenskt lið í Evrópukeppni. Aðspurður í tökum á þættinum um hvort liðið sé betra hló Ólafur og sagði: „Þarna er náttúrlega ólíku saman að jafna. Ég er samt ekki í nokkrum vafa um það, að þetta 93-lið á Skaganum er það besta sem spilað hefur í íslensku deildinni.“ Myndbrotið má sjá hér að ofan en þátturinn verður frumsýndur sem fyrr segir á föstudagskvöldið klukkan 21.00 á Stöð 2 Sport.
Pepsi Max-deild karla Mest lesið Uppgjörið: Fram - Haukar 20-25 | Haukar bikarmeistarar í fyrsta sinn í átján ár Handbolti „Fór að hugsa hvað ég væri eiginlega að gera“ Handbolti Hefur Amorim bætt Man United? Enski boltinn „Fjölskyldan spurði hvort ég gæti ekki fundið hlýrra land“ Íslenski boltinn „Þakka Alberti frá dýpstu hjartarótum“ Fótbolti Í beinni: Stjarnan - Fram | Langþráður titill í húfi Handbolti Sló heimsmetið í ellefta sinn sama dag og hann gaf út sitt fyrsta lag Sport Hafa tapað ellefu af tólf úrslitaleikjum en eini sigurinn kom gegn Stjörnunni Handbolti Fólskulegt brot markvarðar Milwall þegar Palace fór áfram Enski boltinn Messi var óánægður hjá PSG Fótbolti Fleiri fréttir Auðun tekur við Þrótti Vogum „Fjölskyldan spurði hvort ég gæti ekki fundið hlýrra land“ Sveinn Margeir mögulega ekkert með Víkingum í sumar Víðir með Vestmannaeyingum í sumar Daði Berg frá Víkingi til Vestra Víkingar skipta um gír Ísfirðingar fá hávaxinn eistneskan framherja Kjartan Kári verður áfram hjá FH eftir að hafa hafnað Val Magnús Orri tekur við formannsstólnum af Páli Atli Sigurjóns framlengir við KR Yngri bróðir Benoný Breka yfirgefur líka KR FH-ingar æfðu á grasi í febrúar Síðhærði Færeyingurinn snýr aftur norður Kemur meiddur til Víkings en þó á miklu betri stað Kveðst viss um eftirsjá Gylfa: „Hefðum unnið mótið í fyrra með hann“ ÍA fær Baldvin frá Fjölni Útlit fyrir að Kjartan fylli skarð Gylfa hjá Val „Held að fólk sé komið með leið á því að lesa um þessi félagsskipti“ Gylfi orðinn Víkingur Valsmenn settu sex gegn Grindavík Breki Baxter kórónaði endurkomu Eyjamanna Blikakonur áfram á fullu skriði í Lengjubikarnum KR-ingar áfram á mikilli sigurgöngu undir stjórn Óskars Hrafns Góður sigur Vestra og Fram tapaði gegn Lengjudeildarliði Samþykktu að taka áminningu af leikmönnum og fjölga útlendingum ÍR heldur áfram að hrella liðin úr Bestu deildinni Arnór Smára hættir sem yfirmaður knattspyrnumála hjá Val Sindri Kristinn á óskalista KA Býst við Grikkjunum betri í kvöld „Þetta er einstakur strákur“ Sjá meira