Pepsi-deildin 2015 hefst á sunnudaginn þegar fjórir leikir fara fram, en í kvöld hefjast Pepsi-mörkin þegar árlegur upphitunarþáttur Pepsi-markanna er sýndur í beinni útsendingu á Stöð 2 Sport.
Þátturinn í kvöld er í opinni dagskrá og er einnig sýndur hér beint á Vísi. Hann má sjá í spilaranum hér að ofan.
Hörður Magnússon stýrir Pepsi-mörkunum eins og undanfarin ár, en sérfræðingar í sumar eru Hjörvar Hafliðason, Arnar Gunnlaugsson og Hjörtur Hjartason. Skagamennirnir tveir síðastnefndu koma nýir inn.
Bein útsending: Upphitunarþáttur Pepsi-markanna

Mest lesið





Skrifar undir fimm ára samning við Liverpool
Enski boltinn

Enn hærra metboð frá Liverpool
Enski boltinn


Keypti aðstoð frá norn til að hjálpa Knicks
Körfubolti

Öll mörkin í Bestu: Stjarnan tætti KR í sig og ÍA valtaði yfir Blika
Íslenski boltinn
