Skoðun

Nýtt frumvarp, sömu hugmyndir

Ólafur Þ. Stephensen skrifar
Enn eitt kvótafrumvarpið hefur litið dagsins ljós. Það sem nú hefur verið lagt fram er fjórða atrenna ríkisstjórnarinnar að umfangsmiklum breytingum á stjórnkerfi fiskveiða; Jón Bjarnason lagði fram eitt frumvarp og ein frumvarpsdrög og Steingrímur J. Sigfússon leggur nú fram annað frumvarp sitt um málið.

Ráðherrann hefur látið í það skína að með frumvarpinu sé komið til móts við ýmsa gagnrýni á síðasta frumvarp. Við fyrstu sýn virðast breytingar á því aðallega vera til þess hugsaðar að sefa gagnrýnisraddir í stjórnarflokkunum, sem töldu að ekki væri nógu langt gengið í skemmdarverkum á núverandi fiskveiðistjórnunarkerfi.

Þau þrjú plögg, sem á undan þessu komu, hafa öll fengið sömu gagnrýnina, bæði frá talsmönnum sjávarútvegsins og óháðum sérfræðingum, innlendum og erlendum. Hún felst ekki sízt í því að með öllum frumvörpunum séu veiðiheimildir teknar af fólki sem hefur nýtt þær með hagkvæmum hætti og færðar til óhagkvæmari nota; í byggða-, línuívilnunar-, strandveiði- og leigupotta. Með þessu sé dregið úr skilvirkni og hagkvæmni í fiskveiðistjórnunarkerfinu.

Í nýja frumvarpinu virðist nánast ekkert komið til móts við þessa gagnrýni, nema þá helzt í því að dregið er úr takmörkunum á framsali aflaheimilda. Allt pottasukkið stendur í grundvallaratriðum óhaggað. Gert er ráð fyrir að nýtingarleyfi útgerðarinnar séu til 20 ára, en svo á að stofna nefnd um framhaldið. Þannig er útgerðin enn einu sinni skilin eftir í óvissu um framtíðina og þar með unnið gegn framtíðaruppbyggingu og fjárfestingu í greininni.

Það er hægt að ná sátt um þrjú grundvallaratriði í fiskveiðistjórnuninni; að skýrt sé kveðið á um þjóðareign á auðlindunum í lögum og stjórnarskrá, að aflaheimildirnar feli í sér nýtingarrétt en ekki eignarrétt og að þjóðin fái eðlilegan afrakstur af eign sinni. Með hækkun veiðileyfagjaldsins hefur síðastnefnda atriðið verið tryggt – og sennilega gengið heldur langt í gjaldtökunni. Um hin atriðin er í raun ekki pólitískur ágreiningur. En slíka sátt kýs ríkisstjórnin ekki.

Einmitt til þess að tryggja þjóðinni arð af auðlindinni ættu stjórnvöld nú að kappkosta að viðhalda hagkvæmu og skilvirku fiskveiðistjórnunarkerfi. Þess í stað kjósa þau að láta gagnrýni atvinnugreinarinnar sjálfrar og óháðra sérfræðinga sem vind um eyrun þjóta og grafa undan getu sjávarútvegsins til að standa undir gjaldtökunni. Alls konar delluhugmyndir, sem rötuðu inn í upphaflegt frumvarp Jóns Bjarnasonar, komast bara alls ekki út úr málinu aftur.

Frumvarp atvinnuvegaráðherra er svo seint fram komið að ólíklegt er að það verði að lögum fyrir kosningar. Sem er út af fyrir sig ágætt. Það er því líkast til fremur hugsað sem kosningaplagg. Kjósendur sem vilja sterkan sjávarútveg sem stendur undir raunverulegri verðmætasköpun ættu ekki að láta blekkjast af þessum hugmyndum, sem í raun hafa margoft verið skotnar niður nú þegar.




Skoðun

Skoðun

Börnin okkar

Halla Karen Kristjánsdóttir,Anna Sigríður Guðnadóttir,Valdimar Birgisson skrifar

Sjá meira


×