
Veður

Veður fer batnandi eftir óveður helgarinnar
Veður fer batnandi í dag eftir að mikið hvassviðri og skúrahryðjur herjuðu á landsmenn um liðna helgi. Spáð er suðvestan fimm til tíu metrum á sekúndu og að það dragi smám saman úr skúrunum þannig að lítið sem ekkert eftir af þeim seinnipartinn.

„Það verður stormur um mestallt land“
Fyrsta haustlægðin fer yfir landið í kvöld og gular viðvaranir tóku víða gildi klukkan sjö. Björgunarsveitir hafa verið boðaðar út víða.

Stormur og rigning skella á landið seinni partinn
Landsmenn mega margir búa sig undir mikið hvassviðri og rigningu sem munu skella á landið síðdegis í dag. Gular viðvaranir taka gildi síðar í dag.

Hægviðri í dag en von á fyrstu haustlægðinni á morgun
Veðurstofan gerir ráð fyrir að hægviðri víðast hvar í dag en suðaustan fimm til tíu metrar á sekúndu með suðvesturströndinni. Skýjað verður með köflum, en léttir til norðan- og austanlands er líður á daginn.

Gul viðvörun um helgina
Veðurstofan hefur gefið út gula viðvörun vegna veðurs á stóru hluta landsins á föstudagskvöld og fram eftir degi á laugardaginn. Vissara er fyrir fólk að hugsa að trampólínum í görðum víða um land.

Hiti að fimmtán stigum og hæg breytileg átt
Veðurstofan gerir ráð fyrir suðaustan fimm til tíu metrum á sekúndu með suðurströndinni í dag en annars fremur hægri, breytilegri átt á landinu.

Líkur á síðdegisskúrum sunnanlands
Veðurstofan gerir ráð fyrir að það verði fremur hæg breytileg átt eða hafgola í dag. Bjart verður að mestu en skýjað austantil framan af degi. Um sunnanvert landið eru hins vegar líkur á stöku síðdegisskúrum.

Úrkomusvæði færist austur
Dálítil lægð er nú nærri Reykjanesi og verður vindur á landinu suðlægur í fyrstu, en snýst síðan í norðvestanátt þegar lægðin hreyfist austur á bóginn.

Regnsvæðið farið austur
Regnsvæðið, sem fór austur yfir landið í gærdag og nótt, er í morgunsárið komið yfir Austurland, en heldur síðan áfram austur á bóginn og rofar þá til.

Talsvert úrhelli suðvestanlands
Lægð á hreyfingu norðureftir Grænlandssundi dregur með sér regnsvæði austur yfir landið í dag. Því verður rigning eða súld í öllum landshlutum, um tíma talsvert úrhelli suðvestanlands.

Hitinn farið yfir 25 stig í júní, júlí og ágúst
Hitinn náði 26 stigum á Torfum í Eyjafirði í dag sem þýðir að hiti hefur farið yfir 25 stig alla sumarmánuðina þrjá. Það hefur ekki gerst oft.

Tuttugu og sex stiga hiti í Eyjafirði
Hiti náði 26,1 stigi á Torfum í Eyjafirði í dag. Hiti hefur víða á landinu farið yfir 20 stig.

Hitinn gæti farið í 23 stig en regnsvæði nálgast
Útlit er fyrir að það verði hægur vindur og bjart veður í dag. Þokuloft er nú allvíða á sveimi, en það ætti að bráðna af þegar líður á morguninn.

Víða bjartviðri en von á rigningu um helgina
Veðurstofan gerir ráð fyrir vestlægri eða breytilegri átt, þremur til tíu metrum á sekúndu, og víða bjartviðri. Austanlands verður skýjað en þurrt að kalla.

Víða von á bjartviðri og hiti gæti náð tuttugu stigum
Veðurstofan gerir ráð fyrir hægri, norðlægri eða breytilegri átt í dag, en norðan kalda austast á landinu. Víða er von á bjartviðri, en austantil verður skýja með dálítilli vætu, auk þess sem líkur eru á stökum síðdegisskúrum syðst.

Hiti að 22 stigum og hlýjast sunnanlands
Veðurstofan gerir ráð fyrir norðlægri átt í dag, yfirleitt þremur til tíu metrum á sekúndu. Reikna má með skýjuðu veðri og dálítilli rigningu eða súld austantil en léttskýjuðu vestantil.

Úrkoma á stórum hluta landsins í dag
Lægð er nú stödd norður af Langanesi og færist hún til suðvesturs og með henni úrkoma sem nær yfir stóran hluta landsins í dag. Sömuleiðis kemur yfir svalari loftmassi en verið hefur yfir okkur upp á síðkastið.

Skín við sólu Skagafjörður eða stefnir í snjókomu?
Þeir sem skoðuðu veðurspá fyrir Skagafjörð fyrir morgundaginn hafa rekið upp stór augu þegar þeir sáu að snjókomu var spáð frá klukkan 11 til 17. Að sögn veðurfræðings er biluðum hitamæli sennilega um að kenna.

Hiti yfir tuttugu stig í Reykjavík í fyrsta sinn í sumar
Hitinn fór yfir tuttugu gráður í Reykjavík í dag og er það í fyrsta sinn sem það gerist í sumar. Líkur á tuttugu stiga hita í Reykjavík eru almennt litlar en minnka ört eftir miðjan ágúst. Í Garðabænum náði hitinn 22,3 gráðum.

Víðáttumikil lægð veldur allhvössum vindi syðst á landinu
Víðáttumikil lægð langt suður í hafi veldur austlægum vindi á landinu, sums staðar allhvössum og hviðóttum syðst fram á morgundag.

Úrkomusvæðin fjarlægjast, gestum Menningarnætur til gleði
Spáð er suðvestanátt í dag, fimm til þrettán metrum á sekúndu, með rigningu og súld, einkum vestanlands. Það verður þó þurrt að kalla norðaustantil og styttir víða upp suðvestanlands í kvöld.

Útlit fyrir þokkalega bjarta menningarnótt
Það er útlit fyrir þokkalega bjarta menningarnótt, að sögn veðurfræðings hjá Veðurstofu Íslands. Lægðin sem liggur suður af suðvesturhorni landsins mun láta að sér kveða í næstu viku.

Mikil lægð mun stjórna veðrinu næstu daga
Veðurstofan gerir ráð fyrir suðlægri átt í dag þar sem verður skýjað og væta af og til en þurrt að kalla og bjartara yfir fyrir austan.

Skýjað vestantil og smávæta af og til
Suðvestlæg átt verður ríkjandi í dag og á morgun og verður því skýjað að mestu vestantil á landinu með smávætu af og til.

Hæglætisveður, léttskýjað og hiti að tuttugu stigum
Hæðarhryggur er nú yfir landinu og heldur lægðunum fjarri. Veðurstofan gerir ráð fyrir hæglætisveðri og víða léttskýjuðu, en sums staðar þokubökkum eða súld úti við austurströndina.

Viðrar frábærlega til gleðigöngu
Blíðskaparveður er og verður í höfuðborginni í dag og viðrar frábærlega til gleðigöngu sem fer af stað klukkan tvö frá Hallgrímskirkju.

Rigning með köflum en styttir upp síðdegis
Veðurstofan gerir ráð fyir austan fimm til þrettán metrum á sekúndu í dag, en þrettán til átján metrum syðst. Rigning með köflum sunnan- og suðvestanlands, en styttir upp síðdegis. Skýjað austanlands, en allvíða bjartviðri norðantil á landinu.

Djúp lægð veldur vaxandi austanátt sunnantil
Veðurstofan gerir ráð fyrir norðlægri átt í dag, þremur til átta metrum á sekúndu, en öllu vindasamara austantil. Búast má við léttskýjuðu veðri suðvestantil, en annars skýjað með köflum og lítilsháttar vætu við austurströndina.

Haglél og þrumuveður í Þorlákshöfn
Haglél fellur þessa stundina á Suðurlandi. Í Þorlákshöfn er mikil ofankoma sem er af völdum þrumuveðurs sem gengur nú yfir.

Þægilegur sumarhiti næstu daga en lægð á leiðinni
Spáð er þægilegum sumarhita á landinu næstu daga þar sem nálgast gæti tuttugu stig í innsveitum þegar best lætur.