Veður

Hitamet maí­mánaðar frá 1960 næstum fallið

Magnús Jochum Pálsson skrifar
Nauthólsvík var algjörlega pökkuð af fólki í dag sem baðaði sig í sólinni.
Nauthólsvík var algjörlega pökkuð af fólki í dag sem baðaði sig í sólinni. Vísir/Lýður Valberg

Hæsti hiti í Reykjavík mældist í dag 20,4 stig og vantaði aðeins 0,2 stig til að jafna maí-hitamet frá 14. maí 1960.

Þetta kemur fram í tilkynningu frá Veðurstofunni á Facebook. Reykvíkingar nýttu veðrið sannarlega og þyrptist fólk í Nauthólsvík eins og sést á myndinni hér að ofan.

Hitamet féll ekki um helgina þó hitinn hafi komist nærri því. Hitinn í dag fór hæst í 25,1 stig í Stafholtsey í Borgarfirði og í gær fór hann hæst í 26,4 stig á Egilsstaðaflugvelli.

Á höfuðborgarsvæðinu mældist hiti víða hærri en í sjálfri höfuðborginni, til dæmis fór hitinn í 21, 8 stig í Urriðaholti í Garðabæ. Á borgarjaðrinum fór hitinn í 22,7 stig í Víðidal og í 22,2 stig við Korpu.

Þó kemur fram í tilkynningunni að fyrrnefndar hitatölur séu óyfirfarnar og geti því mögulega breyst lítillega.

Áfram bongó næstu daga

Allmikil hæð suðaustur af Dalatanga stýrir veðrinu áfram að sinni, að því er fram kemur í hugleiðingum veðurfræðings á vef Veðurstofunnar.

Á morgun verði því hægviðri eða hafgola og yfirleitt léttskýjað en líkur á þoku við suður- og vestströndina. Inn til lands gæti hitinn farið vel yfir tuttugu stig.

„Á þriðjudag og miðvikudag er útlit fyrir svipað veður, víða sólríkt og hlýtt, en þokuloft sækir þá líklega einnig að einnig að norðurströndinni og kólnar heldur þar,“ segir í hugleiðingunum.

Líkur eru á rigningu á fimmtudag.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×