Víða rigning og hiti að fjórtán stigum Atli Ísleifsson skrifar 5. maí 2025 07:13 Hiti verður víðast á bilinu fimm til tíu stig í dag. Þó verður hlýrra fyrir austan. Vísir/Vilhelm Veðurstofan gerir ráð fyrir suðlægri átt í dag, víða kalda vestanlands en golu fyrir austan.
Í hugleiðingum veðurfræðings segir að það verði rigning með köflum sunnan- og vestantil, en úrkomuminna eystra. Hiti verður víða á bilinu fimm til tíu stig í dag, en að 14 stigum austantil þegar best lætur í dag. „Áfram suðlæg átt á morgun og dálítil væta af og til, en þá léttir til um landið norðaustanvert og hlýnar. Bætir heldur í vind annað kvöld. Allhvöss sunnan- og suðvestanátt á miðvikudag og rigning, en bjart með köflum norðaustantil. Dregur úr úrkomu og vind um köldið. Áfram hlýtt í veðri,“ segir í hugleiðingum veðurfræðings. Spákort fyrir klukkan 14 í dag.Veðurstofan Veðurhorfur á landinu næstu daga Á þriðjudag: Sunnan 5-13 m/s og dálítil rigning af og til, en bætir í úrkomu og vind um kvöldið, hiti 6 til 12 stig. Yfirleitt hægari og bjart með köflum fyrir norðan og austan, hiti 10 til 17 stig að deginum. Á miðvikudag: Sunnan og suðvestan 10-18, en hægari um kvöldið. Lengst af rigning sunnan- og vestanlands, en bjart með köflum norðaustantil. Hiti breytist lítið. Á fimmtudag: Vaxandi sunnanátt, 10-15 síðdegis, og rigning eða skúrir, en úrkomulítið á Norðausturlandi. Hiti 4 til 12 stig. Á föstudag: Sunnan og suðvestan 10-18 og víða skúrir eða slydduél, en bjart með köflum um landið norðaustanvert. Kólnar í veðri. Á laugardag: Suðvestlæg átt og víða dálitlar skúrir eða slydduél, einkum vestantil. Hiti 2 til 10 stig, mildast á Norðausturlandi. Á sunnudag: Útlit fyrir suðvestlæga átt, skýjað og stöku skúrir um landið vestanvert, en bjartviðri eystra. Hlýnar í veðri.
Veður Mest lesið „Ef við fáum enga ferðamenn, verðum við að skjóta hundana“ Innlent Reið en þakklát fyrir lífsbjörgina Innlent Ferðamaðurinn fundinn heill á húfi á Suðurlandi Innlent Brotist inn í þrjá gáma og dýr verkfæri tekin ófrjálsri hendi Innlent Stórbruni í Drammen og dularfull staða moskítóflugunnar Innlent Sjötugur maður tapað hundrað og átta milljónum til fjárkúgara Innlent Slasaðist alvarlega við heyskap Innlent Drykkurinn komi úr flösku ráðherra Innlent Mótorhjól og bíll skullu saman Innlent Einbreiðar brýr við Berufjörð og Reyðarfjörð líklega næstar Innlent Fleiri fréttir Skýjað með köflum „Góðar líkur“ á því að margir sjái til sólar Rofar til og allt að tuttugu stig suðvestanlands Vara við allhvössum vindi á Snæfellsnesi Sólin gæti litið við í borginni um helgina Gæti kólnað fyrir austan þegar líður á vikuna Hæð langt suður í hafi dælir hlýju lofti til landsins Bongóblíða um nánast allt land og rofar til í borginni um stund Bjart austantil en skýjað og svalt við vesturströndina Líkur á stöku skúrum fyrir austan Viðvaranir vegna hvassviðris Rigning og hvasst öðrum megin en sól og bjart hinum megin Vegfarendur hvattir til að fylgjast með viðvörunum Verður íslenska hitametið slegið á morgun? Ekki að vænta mikilla breytinga í veðri Mest 27 gráður en Reykvíkingar þurfa að bíða Væta vestantil en hlýjast fyrir austan Gular viðvaranir og allt að tuttugu og sjö stig Gular veðurviðvaranir í kortunum Bjart og allt að tuttugu og fimm stig á Austurlandi Eiga von á allt að 35 metrum á sekundu í hviðum Dregur úr vætu síðdegis og hiti að átján stigum Hitatölurnar hækka fyrir austan Varhugaverðar hviður á Suðurlandi Víða allhvass vindur og úrkomubakki nálgast Spá sautján stiga hita á höfuðborgarsvæðinu Allt að sautján stiga hiti Bjart og hlýtt sunnan heiða Siggi stormur spáir góðu veðri um allt land Hlýjast fyrir austan Sjá meira