Veður

Gefa út gular veðurviðvaranir

Silja Rún Sigurbjörnsdóttir skrifar
Veðurviðvörunin tekur gildi klukkan þrjú í nótt.
Veðurviðvörunin tekur gildi klukkan þrjú í nótt. Vísir/Anton Brink

Veðurstofa Íslands hefur gefið út veðurviðvörun á suðvesturhorninu í nótt og fyrramálið.

Gul veðurviðvörun tekur gildi í Faxaflóa klukkan þrjú í nótt og stendur yfir til klukkan níu á fimmtudagsmorgun. Búist er við suðvestanverðri átt, þrettán til tuttugu metrum á sekúndu og rigningu. Vindhviður gætu náð staðbundið við fjöll yfir þrjátíu metra á sekúndu.

Klukkan fjögur í nótt fer einnig í gildi gul veðurviðvörun á Suðvesturlandi. Búast má við álíka veðurskilyrðum þar. Viðvörunin þar verður í gildi til klukkan átta í fyrramálið.

Varasamt veður verður fyrir ökutæki sem taka á sig mikinn vind.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×