Sport

Reyndi að stela nærfatnaði leikmanna
Margir hafa áhyggjur af öryggi knattspyrnukvenna í Frakklandi eftir nýjustu fréttir og það sem gekk á bak við tjöldin á dögunum í leik Dijon og Saint-Étienne í efstu deild kvenna.

Dagskráin í dag: Besta deild kvenna og Ronaldo
Það er að venju flott dagskrá á rásum Stöðvar 2 Sport á þessum þrusuþriðjudegi.

„Munum gefa allt sem við eigum til að enda meðal efstu fimm“
Matz Sels, markvörður Nottingham Forest, sagði að gríðarlega mikilvægt að liðið hafi náð í sigur gegn Tottenham Hotspur eftir tvö töp í röð í ensku úrvalsdeildarinnar. Forest er óvænt í bullandi Meistaradeildarbaráttu þegar fimm umferðir eru eftir.

Þjálfari Nóels Atla rekinn eftir tapið gegn Íslendingaliði Sönderjyske
Segja má að Daníel Leó Grétarsson hafi rekið síðasta naglann í kistu Menno van Dam, þjálfara Álaborgar í efstu deild danska fótboltans. Markið tryggði Sönderjyske sigur á Álaborg um helgina og nú er Van Dam atvinnulaus.

„Bara einn leikur og áfram með smjörið“
Ægir Þór Steinarsson átti sannkallaðan stórleik þegar Stjarnan lagði Grindavík í fyrsta leik liðanna í undanúrslitum Bónus-deildar karla 108-100. Hann var mættur í viðtal við Andra Más Eggertssonar strax eftir leik.

KR sópaði Hamar/Þór og leikur í Bónus deildinni á næstu leiktíð
KR mun leika í Bónus deild kvenna í körfubolta á næstu leiktíð. Þetta varð ljóst eftir sigur liðsins á Hamar/Þór í umspili í kvöld.

Selfoss jafnaði metin
Eftir níu marka tap á Seltjarnarnesi þurftu Selfyssingar að svara fyrir sig í umspilinu um sæti í Olís-deild karla í handbolta á næstu leiktíð. Selfoss vann Gróttu með tveggja marka mun í kvöld og allt orðið jafnt í einvíginu.

Fram einum sigri frá úrslitum
Fram er komið 2-0 yfir gegn FH í rimmu liðanna í undanúrslitum Olís-deildar karla í handbolta.

„Ekki til nokkur einasta króna á Sauðárkróki í kvennafótbolta”
Halldór Jón Sigurðsson, eða Donni eins og hann er jafnan kallaður, þjálfari Tindastóls, segir það svo sannarlega svíða að liðið fari tómhent heim á Sauðárkrók eftir 2-1 tap gegn Þór/KA.

„Stemmningin í húsinu hjálpar“
Benedikt Guðmundsson, þjálfari Tindastóls, var eðlilega sáttur að leikslokum eftir að hans menn fóru illa með Álftanes í fyrsta leik liðanna í undanúrslitum Bónus deildar karla í körfubolta.

„Kemur einn leikmaður sem við getum staðfest í kringum næsta leik”
Þór/KA vann 2-1 sigur á Tindastóli í 2. umferð Bestu deildar kvenna í Boganum á Akureyri í dag. Tindastóll komst snemma yfir en Þór/KA jafnaði í síðari hálfleik og skoraði skrautlegt sigurmark á lokamínútum leiksins.

„Við stóðum af okkur storminn“
Elísa Viðarsdóttir, fyrirliði Vals, tók undir með þjálfara sínum Matthíasi Guðmundssyni eftir sigur liðsins á nýliðum FHL í 2. umferð Bestu deildar kvenna í fótbolta.

Uppgjörið: Stjarnan - Grindavík 108-100 | Stjarnan skrefinu á undan
Stjarnan tók á móti Grindavík í kvöld í fyrsta leik liðanna í undanúrslitum Bónus-deildar karla en fyrir leikinn í kvöld hafði Grindavík ekki unnið sigur á Stjörnunni utan Grindavíkur síðan í febrúar 2018. Á því varð engin breyting í kvöld en Stjarnan fór að lokum með sigur af hólmi, 108-100.

Burnley og Leeds United aftur upp í ensku úrvalsdeildina
Eftir fall úr ensku úrvalsdeild karla í knattspyrnu á síðustu leiktíð þá stoppuðu Burnley og Leeds United stutt við í B-deildinni. Þegar tvær umferðir eru eftir eru bæði lið búin að tryggja sér sæti í úrvalsdeildinni á nýjan leik.

Forest upp í þriðja sætið eftir sigur á Tottenham
Eftir tvö töp í röð vann Nottingham Forest 2-1 útisigur á Tottenham Hotspur í ensku úrvalsdeildinni í knattspyrnu. Sigurinn lyftir Forest upp í 3. sætið á meðan Tottenham er áfram í 16. sæti.

FCK tímabundið á toppinn
FC Kaupmannahöfn lagði AGF 3-1 í síðasta leik dagsins i efstu deild karla í danska fótboltanum. Landsliðsmaðurinn Mikael Neville Anderson lék allan leikinn á miðjunni hjá AGF á meðan markvörðurinn Rúnar Alex Rúnarsson sat á varamannabekk FCK.

Höfðu betur eftir framlengdan leik
Óðinn Þór Ríkharðsson og liðsfélagar hans í Kadetten Schaffhausen unnu dramatískan sigur á Suhr Aarau þegar liðin mættust í fyrsta leik liðinna í undanúrslitum svissneska handboltans.

Uppgjörið: Tindastóll - Álftanes 100-78 | Ótrúlegur sigur Stólanna
Deildarmeistarar Tindastóls fengu Álftanes í heimsókn í fyrsta leik liðanna í undanúrslitum Bónus deildar karla í körfubolta. Fór það svo að heimamenn unnu einkar sannfærandi sigur.

Alfons með sitt fyrsta mark fyrir Birmingham
Hægri bakvörðurinn Alfons Sampsted skoraði sitt fyrsta mark í treyju Birmingham City þegar liðið vann Burton Albion 2-0 á útivelli í ensku C-deildinni á Englandi.

Aldís Ásta og stöllur einum sigri frá úrslitunum
Skara, sem Aldís Ásta Heimisdóttir leikur með, vantar aðeins einn sigur til að komast í úrslitaeinvígið um sænska meistaratitilinn í handbolta.

Uppgjörið: Þór/KA - Tindastóll 2-1 | Endurkoma í Boganum
Eftir að lenda undir snemma leiks kom Þór/KA til baka og vann 2-1 sigur á Tindastóli í Norðurlandaslag Bestu deildar kvenna í knattspyrnu. Akureyringar hafa nú unnið fyrstu tvo deildarleiki sína á tímabilinu.

Uppgjörið: FHL - Valur 0-2 | Valskonur sóttu þrjú stig austur
Valur vann sinn fyrsta leik í úrvalsdeild kvenna í knattspyrnu á þessari leiktíð þegar liðið vann FHL í Fjarðabyggðarhöllinni í dag. Valur sótti í byrjun og uppskar mörkin snemma en leikurinn jafnaðist þegar á leið.

Guðrún og Katla með stoðsendingar í Íslendingaslag
Tvær íslenskar stoðsendingar litu dagsins ljós í Íslendingaslag Rosengård og Kristianstad í sænsku úrvalsdeildinni í fótbolta í dag.

Valur og KR unnu Scania Cup
Áttundi flokkur stúlkna hjá Val og tíundi flokkur drengja unnu Scania Cup í Svíþjóð um páskana.

Lewandowski frá næstu vikurnar og missir af stórleikjum
Robert Lewandowski, framherji Barcelona, missir af bikarúrslitaleiknum gegn Real Madrid um næstu helgi vegna meiðsla.

Enn eitt jafnteflið hjá Lyngby
Sævar Atli Magnússon lék allan leikinn fyrir Lyngby sem gerði 1-1 jafntefli við Viborg í úrslitakeppni dönsku úrvalsdeildarinnar í fótbolta í dag.

Fimmtán ára bjargaði stigi fyrir Brøndby
Brøndby gerði 1-1 jafntefli við OB í úrslitakeppni dönsku úrvalsdeildarinnar í fótbolta í dag.

„Vonandi fáum við fulla stúku í dag“
Söguleg stund mun eiga sér stað síðar í dag þegar FHL tekur á móti Val. Verður það í fyrsta sinn sem úrvalsdeildar fótboltaleikur fer fram á Austurlandi síðan 1994, fimm árum áður en elsti leikmaður liðsins fæddist.

Fjörutíu mínútna hlé eftir að peningi var kastað í dómara
Gera þurfti fjörutíu mínútna hlé á leik Saint-Étienne og Lyon í frönsku úrvalsdeildinni í fótbolta eftir að peningi var kastað í aðstoðardómara.

„Þetta var hræðilegt og 2025 verður sársaukafullt“
Sjöfaldi heimsmeistarinn Lewis Hamilton sagði að kappaksturinn í Sádí-Arabíu hefði verið hræðilegur hjá sér og árið 2025 yrði erfitt.