Handbolti

Sjáðu rauða spjaldið sem Gísli fiskaði og fékk svo sjálfur

Valur Páll Eiríksson skrifar
Það er gjarnan tekið heldur harkalega á eldfljótum Gísla Þorgeiri.
Það er gjarnan tekið heldur harkalega á eldfljótum Gísla Þorgeiri. Ronny Hartmann/picture alliance via Getty Images

Gísli Þorgeir Kristjánsson var í aðalhlutverki í sigri Magdeburgar á Füchse Berlín í þýsku úrvalsdeildinni í gær. Hann fiskaði rautt spjald og fékk svo eitt sjálfur.

Fredrik Simak var rekinn af velli fyrir að fara illa aftan í Gísla undir lok fyrri hálfleiks. Hann kippti þá aftan í hann og reif í jörðina þegar Gísli var kominn framhjá honum.

Klippa: Gísli Þorgeir fiskar rautt og fær svo rautt

Gísli fékk svo sjálfur rautt spjald seint í leiknum fyrir að fara utan í hornamann Füchse sem var að stökkva inn úr horninu til að skjóta.

Gísli skoraði fimm mörk í leiknum úr sex skotum og lagði upp sex til viðbótar.

Magdeburg vann leikinn 36-32.

Brotin sem verðskulduðu rauð spjöld má sjá í spilaranum.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×