Sport

Laus úr banni að­eins mánuði eftir að hafa tekið kókaín

Valur Páll Eiríksson skrifar
Kyrgios (t.h.) kyssir kærustu sína.
Kyrgios (t.h.) kyssir kærustu sína. Quinn Rooney/Getty Images

Tenniskappinn Nick Kyrgios er laus úr keppnisbanni eftir að kókaín greindist í sýni hans í lyfjaprófi fyrir um mánuði síðan.

Hinn ástralski Kyrgios var tekinn í lyfjapróf utan keppni í júní og hóf bann þann 4. ágúst. Banninu lýkur því í dag, mánuði síðar.

Hefði Kyrgios mælst með kókaín í blóðinu í keppni hefði hann hætt á fjögurra ára keppnisbann. Hins vegar setti heilindadeild Alþjóðatennissambandsins kappann í þriggja mánaða bann, stytt í einn mánuð að því gefnu að hann færi í meðferð.

Þegar Kyrgios var dæmdur í bannið hafði hann lýst því að það að falla á prófinu væru „gríðarleg mistök“ og lýst því sem „vakningu“ og lofað að „einbeita sér að því að koma mér í lag“.

Kyrgios hefur aðeins tekið þátt í þremur mótum á síðustu tveimur árum. Hann hefur glímt við hné- og úlnliðsmeiðsli, sem bæði kölluðu á aðgerð.

Hann komst í úrslit á Wimbledon-mótinu árið 2022, sem er hans besti árangur á risamóti. Hann tapaði fyrir Novak Djokovic í fjórum settum í úrslitum.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×