Skoðun

Aðgerða er þörf strax!
Hvar eru aðgerðapakkarnir fyrir lántakendur sem eru að sligast undan rányrkjunni í boði ríkisstjórnarinnar og Seðlabankans? Bankarnir mergsjúga heimili og fyrirtæki sem hafa neyðst til að eiga í viðskiptum við þá. Óverjandi eignatilfærsla frá almenningi í útbólgnar fjárhirslur þeirra.

Áskorun til þingmanna - Treystið þjóðinni!
Stjórnarskrárfélagið skorar á þingmenn allra flokka á Alþingi að styðja og setja nafn sitt við framkomið frumvarp til stjórnarskipunarlaga um breytingu á núgildandi stjórnarskrá.

Er heilsa barna okkar ekki mikilvægari en þetta?
Sonur minn er 8 ára. Hann byrjaði í þriðja bekk í Mýrarhúsaskóla á Seltjarnarnesi í haust.

Hvers vegna er munur á niðurstöðum losunarbókhalds Umhverfisstofnunar og Hagstofu Íslands?
Umhverfisstofnun og Hagstofa Íslands halda hvor um sig bókhald um losun gróðurhúsalofttegunda. Umhverfisstofnun tekur saman losun innan landamæra Íslands en Hagstofan frá hagkerfi Íslands.

Djúpir vasar skattgreiðenda
Á haustmánuðum boðaði ríkisstjórnin aðhald í ríkisfjármálum og skýra forgangsröðun verkefna til að nýta fjármuni þjóðarinnar sem best. Því er forvitnilegt að skoða hvernig forgangsröðunin og aðhaldið birtist í meðförum einstaka ráðherra, það er ráðherra fjölmiðla.

Stöðvið barnamorðin strax
Þegar þessar línur eru ritaðar hefur útrýmingarherferð Ísraelshers á Gaza staðið í fjórar vikur. Fjöldi íbúa Gazarstrandarinnar sem fallið hafa fyrir kúlum, sprengjum og eldflaugum hersins er kominn yfir 10 þúsund manns og yfir 4000 börn hafa verið myrt. Þetta er ekki stríð gegn Hamas, þetta er stríð gegn palestínskum börnum.

Upplýsum ferðamenn
Á heimasíðu Bláa lónsins kemur í dag fram að óvissustigi hafi verið lýst yfir vegna jarðhræringa á Reykjanesskaga. Þar kemur einnig fram að allar byggingar á svæðinu eigi að þola jarðskjálfta. Á heimasíðunni er ekkert minnst á hættu á eldgosi.

Hvenær er komið gott?
Árásirnar Ísraels á Palestínu hafa ekki farið framhjá neinum og eru þær það alvarlegar að stærstu hjálparstofnanir Sameinuðu þjóðanna krefjast vopnahlés strax en Ísrael hlustar ekki. Undanfarin mánuð hefur Ísrael myrt yfir 10 þúsund Palestínumenn, þar af næstum helmingur eru börn. Ekkert bendir til þess að Ísrael ætli að láta af árásum sínum og framtíðin er svört fyrir þau 2.2 milljón Palestínumenn sem búa á Gaza. Markmið Ísraela virðist vera eitt og einfalt – útrýma Palestínu.

Hryllingssögur um ofsóknir á hinsegin fólki
Undanfarið höfum við, því miður, orðið vitni að bakslagi þegar kemur að réttindum hinsegin fólks, m.a.s. í okkar heimshluta. Í heiminum öllum telst mér svo til að í einu af hverjum þremur ríkjum teljist hinsegin sambönd enn vera glæpur lögum samkvæmt. Ástandið er mjög slæmt að þessu leyti víða í Afríku og í Mið-Austurlöndum, m.a. þar sem við störfum við þróunarsamvinnu. Hryllingssögur þaðan um ofsóknir á hinsegin fólki láta engan ósnortinn.

Félagstengsl og einmanaleiki – hver er staðan?
Á hverjum degi heilsa milljarðar manna um allan heim nágrönnum sínum og samstarfsmönnum, senda vinum skilaboð á samfélagsmiðlum og deila hugsunum sínum og tilfinningum með fjölskyldumeðlimum.

Halldór 7.11.2023
Mynd dagsins eftir Halldór Baldursson.

Auknar tekjur og valfrelsi í Árborg
Jafn falleg og haustin geta verið þá eru þau líka annasöm. Síðasti séns að hefja verkefni sem áttu að klárast á árinu, stutt í jólin og skipulag næsta árs hafið.

Skrýtin uppákoma í Hæstarétti, réttlæti hins sterka
Ég lenti í dómsmáli sem ég rak sjálfur að miklu leyti. Þegar það var komið fyrir Hæstarétt fékk ég ábendingu um að ég gæti sótt um að málflutningur yrði skriflegur sem ég gerði. Mér fannst Hæstiréttur taka á því máli á mjög sérkennilegan hátt.

Opið bréf til ríkisstjórnarinnar! Aðgerðir núna
Kæru ráðherrar, Ég er ekki vön því að skrifa ráðamönnum eða vera hávær opinberlega. En það er ekki hægt að horfa á það sem er að gerast í Palestínu og aðhafast ekkert eða að leyfa ykkur að draga Ísland niður í svaðið með fleiri vestrænum ríkjum.

Nýsköpunarlandið Ísland?
Á fjárlögum 2024 er áætlaður niðurskurður um rúmlega milljarð í samkeppnissjóði Vísinda- og tækniráðs, Rannsóknasjóð, Tækniþróunarsjóð og Innviðasjóð. Niðurskurður á Rannsóknasjóði einum og sér nemur tæpum hálfum milljarði, en það samsvarar ársverkum 70 doktorsnema.

Hlutaveikin
Ég hef mjög gaman að jólasögu Þórarins Eldjárns sem heitir Hlutaveikin og er um barn sem hendir sér í jörðina og öskrar af löngun í alls kyns dót fyrir jólin. Boðskapur sögunnar er að jólin snúast um samveru og væntumþykju, ekki dót og óþarfa.

Greiðar og öruggar samgöngur allt árið um kring, hvernig hljómar það?
Víða um land valda stuttir vegkaflar íbúum óþarfa fyrirhöfn og armæðu á ferð þeirra um landið. Þar gildir einu hvort ferðinni er heitið á höfuðborgarsvæðið í leit að þjónustu eða yfir í næsta fjörð til að heimsækja Siggu frænku, vetrarfærð og válynd veður eru þess valdandi að veggöng eru beinlínis eina færa leiðin til að tryggja greiðar og öruggar samgöngur.

Alexandersflugvöllur á Sauðárkróki sem varaflugvöllur
Kostir þess að byggja upp Alexandersflugvöll á Sauðárkróki sem varaflugvöll verða æ ljósari vegna staðsetningar hans og einstakra flugskilyrða. Fyrir skemmstu mælti ég aftur fyrir tillögu þess efnis á alþingi.

Við krefjumst uppsagnar Seðlabankastjóra!
Það sem við rekjum hér á eftir ætti að vekja alvarlegar spurningar um hæfi æðstu stjórnenda Seðlabankans og við teljum ljóst að hvorki Seðlabankinn né Seðlabankastjóri sjálfur, njóti trausts þjóðarinnar lengur.

Ófrjósemi; vegferð von og vonbrigða
Foreldrar. Gildishlaðið orð og að mínu mati hlaðið fallegum gildum. Ég var samt aldrei sérstaklega viss um hvort ég vildi verða foreldri sjálf. Satt að segja hélt ég hreinlega alltaf að ég þyrfti ekkert endilega að ákveða það heldur væri það eitt af hlutverkum eða jafnvel skyldum mínum í lífinu.

Bjarni er nú meiri karlinn
Hafið þið heyrt söguna um Bjössa á KFC sem varð uppvís að því að leyfa pabba sínum að kíkja ofan í peningakassann og fékk að velja refsingu sína sjálfur? Hann axlaði ábyrgð með því að færa sig yfir á djúpsteikingarpottinn. Ekki hætta. Bara færa sig. Og það fyrsta sem hann gerði þar? Setti dauða rottu í pottinn til að ganga í augun á jafnöldrum sínum.

Lokaprófastressið - Hvað er hægt að gera við námskvíða?
Nú nálgast lok annar í skólum landsins og það getur reynst mörgum kvíðavekjandi vegna komandi lokaprófa. Það er eðlilegt að finna fyrir kvíða í þessum aðstæðum þar sem próf og verkefni eru hönnuð til þess að meta frammistöðu nemenda. Hæfilegur kvíði getur verið hvetjandi á meðan of mikill kvíði getur bitnað á frammistöðu nemenda og valdið vanlíðan í skólastofunni.

Gleymum því ekki að þetta er kaldrifjað „manndráp“
Er þetta dómafordæmið sem við viljum hafa þegar það er framið hrottalegt og miskunnarlaustmorð hér á landi, hvert erum við eiginlega að stefna í málefnum ungra afbrotamanna hér á landi?

Óskað eftir endurflutningi ráðherra
Á gömlum plötum er oft bestu lögin sem verða sífellt betri við hverja hlustun. Stundum nær tónlistin til nýrra hlustenda sem sumir endurflytja og verða þá nýjir boðberar gömlu laganna. Við hjá Sjúkraliðafélaginu erum eins og gömul plata. Ítrekað flytjum við sama boðskapinn sem er að verða eins og gamall slagari, sem er; „AÐGERÐIR GEGN KYNBUNDNUM LAUNAMUN“.

Ég skil ekki
Við lifum á tímum upplýsinga. Ef við kærum okkur um getum við kynnt okkur sögu Palestínu, tilurð Ísraelsríkis og allt það sem hefur gerst síðan. Við fáum upplýsingar í rauntíma um hvað er að gerast á þessu svæði akkúrat núna.

Opið bréf til ríkisstjórnarinnar: ákall um aðgerðir vegna ástandsins á Gaza
Kæra ríkisstjórn, Þegar þetta er skrifað hafa rúmlega 9.000 Palestínumenn á Gaza látist í árásum Ísraela á Gaza. Þar af eru fleiri en 3.700 börn.

Halldór 05.11.2023
Mynd dagsins eftir Halldór Baldursson.

Í guðanna bænum hættum að gengisfella hugtök!
Af hverju köllum við ekki hlutina réttum nöfnum í dag? Eins og það að rafbyssuvæða fyrir lögguna og stunda njósnir. Lengi vel var það kallað forvirkar rannsóknar heimildir en nú er komið nýtt orðskrípi yfir þetta tvennt og þetta er kallað afbrotaforvarnir. Við eigum góð orð yfir þetta á íslensku, annars vegar njósnir og hitt er vopnvæðing.

Lokum Bláa lóninu
Þann 9. desember 2019 hófst sprengigos á eyjunni Whakaari úti fyrir ströndum Nýja Sjálands. Gosið kom nokkuð á óvart og var töluvert af ferðamönnum á eyjunni. Fólkið á svæðinu hafði enga undankomuleið og alls létust 22 á eyjunni þennan dag.

Krafa þjóðarinnar?
Fullyrðingar heyrast gjarnan úr röðum þeirra sem vilja skipta lýðveldisstjórnarskránni út fyrir aðra þess efnis að um háværa kröfu þjóðarinnar sé að ræða. Fátt ef eitthvað er þó til marks um það að svo sé í raun. Þvert á móti bendir flest til þess að mikill meirihluti þjóðarinnar hafi sáralítinn áhuga á málinu. Raunar svo lítinn að umræddir einstaklingar finna sig reglulega knúna til þess að minna þjóðina á meinta kröfu hennar.