
Skoðun

Vernd mannlegra innviða á Reykjanesi
Íbúar Grindavíkur eru þessa dagana að ganga í gegnum mikið sálrænt áfall. Það er búið að kippa undan þeim þeirra grunnöryggi. Jörðin hefur bókstaflega rofnað fyrir framan þau. Heimilin þeirra eru að slitna í sundur og sökkva ofan í jörðina.

22 fótboltavellir fullir af bílum
Íbúum höfuðborgarsvæðisins fjölgar hratt. Það sést glögglega á því hvernig umferðin hefur þyngst. Um 70 bílar hafa bæst við umferðina að meðaltali í hverri viku frá 2016, þegar Samgöngustofa hóf að halda utan um bílafjölda eftir sveitarfélögum. Á ársgrundvelli jafngildir þessi fjölgun um 27 km langri bílaröð. Sú röð næði nánast milli Háskóla Íslands og Grundarhverfis á Kjalarnesi.

Firring
Jódís Skúladóttir þingmaður skrifar í Vísi þann 11. nóvember pistil sem ber yfirskriftina "Keisaraskurður án deyfingar". Jódís hefur pistilinn á að minnast á "Þær hryllilegu árásir sem við horfum upp á dag eftir dag" og "fylla okkur viðbjóði og vanmætti”.

Halldór 14.11.2023
Mynd dagsins eftir Halldór Baldursson.

Er árangur af bættu aðgengi að heilbrigðisþjónustu?
Ekki er hægt að leggja næga áherslu á þá staðreynd að aðgengi að nauðsynlegri heilbrigðisþjónustu er grundvöllur heilsu og farsældar. Það er eitt stærsta verkefni stjórnvalda og okkar sem samfélags að ráðstafa kröftum okkar og fjármunum þar sem þeirra er mest þörf og við getum haft sem mest jákvæð áhrif.

Verndum mikilvæga innviði
Einstakir atburðir eiga sér nú stað á Reykjanesi. Skjálftavirkni og yfirvofandi hætta á eldgosi hafa lamað hluta byggðar og hugur allra Íslendinga er með Grindvíkingum sem hafa þurft að yfirgefa heimili sín. Í námunda við mestu jarðhræringarnar eru orku- og veituinnviðir sem þjóna lykilhlutverki á Reykjanesskaganum öllum.

Takk mamma!
Séreignarsparnaður er ein okkar dýrmætasta eign við starfslok og ekki er hún síður dýrmæt þegar við kaupum okkar fyrstu íbúð. Stærsta fjárfesting flestra er húsnæði og getur reynst stórt verkefni að byggja upp nægilegt eigið fé til útborgunar við fyrstu kaup. Þess vegna er mikilvægt að byrja að safna sem allra fyrst.

Gjafsókn, Réttlæti hins sterka
Dómskerfið í landinu er svo dýrt og svo fjárhagslega áhættusamt og umfram allt vilhallt hinum sterka að það að reka einkamál fyrir dómstólum er almenningi yfirleitt ofviða. Það þýðir að mikill meirihluti landsmanna getur varla nýtt sér það til að rétta sinn hlut verði hann fyrir rangindum.

Fram og aftur í verðbólgumistri
Ég held að flestir átti sig á að sú staðreynd að laun hækkuðu um 8,7% frá febrúar 2022 til febrúar 2023 samkvæmt launavísitölu Hagstofunnar segir ekki allt um þróun launa á þessu tímabili. Það skiptir líka máli – og að margra mati meira máli – að raunlaun lækkuðu á þessum tíma um 1,4% vegna þess að verðbólgan var 10,2%. Auðvitað skipta báðar tölurnar máli.

Spennandi framtíð gagnadrifins heilbrigðiskerfis
Áætluð útgjöld til heilbrigðismála nema um 343 milljörðum árið 2023. Heilbrigðiskerfið er stærsti einstaki hluti ríkisútgjalda og þriðjungur útgjalda ríkissjóðs. Við viljum flest að áhersla sé á heilbrigðiskerfið í samneyslunni en við viljum líka að vel sé farið með féð, þjónustan sé góð og við getum verið stolt af heilbrigðiskerfinu okkar.

Eru þau reið við rangan mann?
Mér var nokkuð brugðið mánudag 6. nóv., er ég las á Vísi.is, reiðiskrif frá formönnum VR, og Hagsmunasamtaka heimilanna (HH), þar sem þau gera kröfu til forsætisráðherra, um að reka Seðlabankastjóra úr starfi. Þegar ég las yfir grein þeirra, gat ég ekki betur séð en að reiði þeirra væri að verulegu leyti byggð á misskilningi hvað varðar meintar valdheimildir Seðlabankastjóra.

Eru lífeyrissjóðir fyrir alla?
19. maí árið 1969 sömdu Alþýðusambandið og Vinnuveitendasamband Íslands um það í kjarasamningum að stofna lífeyrissjóð fyrir verkafólk.Síðan þá hefur mikið vatn runnið til sjávar. Einu sinni voru til 97 lífeyrissjóðir og þótti sjálfsagt en í dag eru viðhorfin önnur og þætti flestum það galið að hafa slíkan fjölda lífeyrissjóða.

Landvernd styður Grindavík
Landvernd, umhverfissamtök sendu í gær sveitarstjóra Grindavíkur eftirfarandi bréf, sem er opið bréf til Grindvíkinga og stjórnvalda. Í bréfinu lýsa samtökin fullum stuðningi við nauðsynlegar framkvæmdir sem tryggja innviði og samfélag á hamfarasvæðum og bjóða fram aðstoð við vinnu í samræmi við markmið Landverndar um að verja og endurreisa náttúru og umhverfi eins og best hæfir náttúrulegum aðstæðum og búsetu í landinu.

Ályktun um vopnahlé samþykkt – en hvað svo?
Eftir mánuð af endurteknum mótmælum, fjölda samstöðufunda og stöðugum þrýstingi frá almenningi á þingfólk, eftir áskoranir frá mannréttindasamtökum og fagfélögum sem og undirskriftalista sem þúsundir Íslendinga settu nafni sitt við, brást Alþingi loksins við þeim þjóðernishreinsunum sem eiga sér nú stað á Gaza og ályktaði þann 9. nóvember s.l. samhljóða um að kalla eftir vopnahléi í árásum Ísraelsríkis á Palestínu.

Afhverju strætó?
Strætó, stundum kallaður bussinn eða Gula limman, brunar um göturnar allan liðlangan daginn. Bílstjórarnir setjast upp í bílana fyrir sólarupprás og eru ekki farnir af götunum fyrr en komið er að háttatíma. Svo ekki sé minnst á sniðuga næturstrætóinn.

Nýtum betur og njótum verðmætanna
Ef metnaðarfull markmið stjórnvalda í loftslagsmálum eiga að nást er mikilvægt að auka hringrás auðlinda hér á landi. Sjálfbær nýting auðlinda verður sífellt mikilvægari. Hringrásarhagkerfið byggir á að lágmarka auðlindanotkun eins og kostur er og viðhalda verðmætum þeirra auðlinda sem eru teknar í notkun eins lengi og mögulegt er.

Sálumessa um spillinguna
„Ég er búinn að fylgjast með þessu í 50 ár. Þetta er ógeðslegt þjóðfélag“.

Um réttinn að vita – erfðafræðileg þekking sem bjargar mannslífum
Íslendingar sitja á einstökum fjársjóði sem er vannýttur en ætti að nýta í þágu þjóðar.

Keisaraskurður án deyfingar
Þær hryllilegu árásir sem við horfum upp á dag eftir dag fylla okkur viðbjóði og vanmætti. Saklausu blóði er úthellt í sjálfhverfum byssuleik valdamikilla karla sem enga ábyrgð taka á gjörðum sínum og skella skollaeyrum við ákalli alþjóðasamfélagsins um vopnahlé. Einn af hörmulegum fylgifiskum stríðsátaka um allan heim er verri hagur kvenna og barna sem oft var ekki beysinn fyrir.

Meta: beyond the fees and advertisement
It is 10/11/2023 and as I try to log in to Facebook, I see that they have decided to play along with the rules of European data protection, as evidenced by the picture below:

Yfirgefum bergmálshellana og tölum saman
„Ég segi alltaf færri og færri orð / enda hafði ég lengi á þeim illan bifur,“ segir skáldið Sigfús Daðason í þekktu kvæði.

Að slá blettinn
Orðatiltæki þetta var mjög vinsælt innan stjórnsýslu Ísraels; „að slá blettinn“ og bletturinn er Gaza. Árið 2006 voru haldnar þingkosningar á Vesturbakkanum og á Gaza.

Halldór 11.11.2023
Mynd dagsins eftir Halldór Baldursson.

Fyrirsjáanleiki í rekstri skiptir öllu máli
Stjórnvöld hafa nú loks birt fyrirhugaða breytingu á skattheimtu á ferðaþjónustu í frumvarpi til breytinga á ýmsum lögum vegna fjárlaga fyrir árið 2024. Í frumvarpinu er m.a. lagt til að gistináttaskattur verði frá 1. janúar 2024 lagður á hvern einstakling í stað gistirýmis áður. Þá er einnig lagt til að skatturinn leggist á skemmtiferðaskip í siglingum til og frá og við Ísland, sem hefur ekki verið áður.

Réttur til að vera laust við ofbeldi og áreitni í tengslum vinnu– boltinn er hjá stjórnvöldum
Samþykkt ILO - Alþjóða vinnumálastofnunarinnar, C-190, er fyrsti alþjóðlegi sáttmálinn sem tekur á ofbeldi og áreitni á vinnumarkaði og í atvinnulífinu. Hún var samþykkt á 100 ára afmælisþingi ILO í júní 2019 og tók gildi 25. júní sama ár.

Því eru lyf notuð í fjallgöngum?
Í skrifum og tali hef ég tekið afstöðu í stöku málefnum tengdum fjallamennsku. Nefni hér lyfjanotkun á háum fjöllum í útlöndum. Hæðarveiki er ekki sjúkdómur. Hennar verður vart ofan við 2.700 til 3.000 metra hæð yfir sjó. Dæmi: Í 5.895 m hæð á Kilimanjaro hefur hlutþrýstingur súrefnis lækkað nánast um helming miðað við 21% efnishlutdeild súrefnis í hverjum rúmmetra andrúmsloftsins .

Sorry I don´t speak Danish!
Titill greinarinnar vísar í heiti ráðstefnu sem Norræna félagið boðaði til á dögunum. Þar var velt upp spurningunni um hvaða tungumál verði notuð í norrænu samstarfi í framtíðinni. Ríkisstjórnirnar hafa sett sér það markmið að Norðurlönd verði samþættasta og sjálfbærasta svæði í heimi.

Skammsýni útilokar fólk
Mikill þrýstingur er á yfirvöld sem stýra reglum um byggingar að láta ekki þarfir fólks standa í vegi fyrir uppbyggingu. Sumir vilja kenna algildri hönnun um að verð á húsnæði sé jafn hátt og raun ber vitni.

Hvaða styttu á að fjarlægja næst?
Séra nokkur kom m.a. að stofnun KFUM og KFUK, Knattspyrnufélagsins Vals og sumarbúðanna í Vatnaskógi. Sérann var yfir nírætt þegar hann lést árið 1961. Á meðan sérann var enn á lífi þótti ástæða til að reisa af honum styttu en hún var afhjúpuð árið 1955. Síðan þá hefur styttan verið í miðborg Reykjavíkur.

Hefurðu komið í „Yoda Cave“ og á „Diamond Beach“?
Ferðaþjónustan hefur setið undir nokkurri gagnrýni undanfarið vegna meintra neikvæðra áhrifa á íslenska tungu og ofnotkun ensku í starfsemi sinni. Þeirri gagnrýni hefur verið svarað af minni hálfu og fleiri meðal annars í grein hér á Visir.is, sem heitir „Er ferðaþjónustan að rústa íslenskunni“.