Menning

Treyst á vanþekkingu
Í dag verður frumsýnd á Stockfish heimildarmyndin Línudans eftir Ólaf Rögnvaldsson sem hefur sérstakan áhuga á að mynda baráttu fólks og vill að við hugum betur að umhverfinu.

Ágætt að hafa smá kæruleysi í djassinum
Sunna Gunnlaugs djasspíanisti hefur sett á laggirnar nýja tónleikaröð þar sem konur í djassi verða í öndvegi. Sigrún Kristbjörg Jónsdóttir, fiðlu- og básúnuleikari, ríður á vaðið með tríó sitt á þriðjudaginn.

Tekur þátt í Mozart-maraþoni
Meðal þeirra sem spila alla strengjakvintetta Mozarts í fyrsta sinn á Íslandi er Ásdís Valdimarsdóttir víóluleikari. Tilefnið er 60 ára afmæli Kammermúsíkklúbbsins.

Söngverk Karólínu og tónskáldaspjall
Ásgerður Júníusdóttir mezzo-sópran þekkir vel til söngverka Karólínu Eiríksdóttur. Í dag verða síðdegistónleikar í Safnahúsinu við Hverfisgötu, þar flytur hún nokkur þeirra, meðal annars tvö ný.

Guðmundur Andri og Linda tilnefnd til bókmenntaverðlauna Norðurlandaráðs
Tilkynnt hefur verið um tilnefningar til bókmenntaverðlauna Norðurlandaráðs 2017.

Lærði hjá Odd Nerdrum
Sýning Stefáns Boulter, Stjörnuglópar, stendur yfir í Gallerí Gróttu á Eiðistorgi á Seltjarnarnesi.

Þórbergur sá komu tölvupóstsins fyrir
Nýtt leikverk um hugarheim, ritsnilld og ástir Þórbergs Þórðarsonar verður frumsýnt í Tjarnarbíói í kvöld af leikhópnum Edda Productions. Friðrik Friðriksson leikari er í hlutverki meistarans.


Leikgerðir sagna á sviði
Hvernig ferðast skáldsaga frá blaðsíðum bókar yfir á leiksvið? Um það spjallar Melkorka Tekla Ólafsdóttir leiklistarráðunautur í Bókakaffi Gerðubergs annað kvöld.

Lýst upp með listaverkum
Seyðfirðingar fagna komu sólar, eftir þriggja mánaða fjarveru hennar, með hátíðinni List í ljósi sem nýlega hlaut tilnefningu til Eyrarrósarinnar 2017.

Unga kynslóðin tengir við þetta flóð upplýsinga og mynda
Því meira, því fegurra, nefnist sýning á verkum Errós sem verður opnuð í Hafnarhúsi Listasafns Reykjavíkur í dag. Danielle Kvaran sýningarstjóri segir að þar sé verið að skoða ákveðin leiðarstef í verkum listamannsins.

Engin betri menntun fyrir rithöfund en að þýða
Kristof Magnusson, rithöfundur og þýðandi íslenskra bókmennta á þýsku, hlaut á dögunum virt þýðingarverlaun. Hann segir að þýðingar séu stærri hluti af bókmenntaheiminum í Þýskalandi en víða annars staðar í veröldinni.

Það er orðið glæpsamlegt að vera ekki fullkomin
Núnó og Júnía er nýtt leikrit, eftir þær Söru Martí Guðmundsdóttur og Sigrúnu Huld Skúladóttur, sem verður frumsýnt hjá Leikfélagi Akureyrar á laugardaginn en leikfélagið á aldarafmæli um þessar mundir.

Eins sjálfsagt og að fara í sund
Harpa Þórsdóttir, verðandi safnstjóri Listasafns Íslands, segir safnamenningu hafa tekið miklum breytingum á síðustu árum.

Frumsýna myndbandið akkúrat ári eftir tökudag
Birta Rán og Guðný Rós, konurnar á bak við framleiðslufyrirtækið Andvara, frumsýna í dag myndband við atriðið Elsku stelpur sem vann Skrekk árið 2015.

Harpa Þórsdóttir nýr safnstjóri Listasafns Íslands
Kristján Þór Júlíusson, mennta-og menningarmálaráðherra, hefur skipað Hörpu Þórsdóttur í embætti safnstjóra Listasafns Íslands til fimm ára, frá 1. mars 2017.

Alltaf þurfa tröllin að hörfa undan mannfólkinu
Handbendi er alþjóðlegt brúðuleikhús sem er starfrækt á Hvammstanga. Í gær frumsýndu þau verkið Tröll í Samkomuhúsinu á Akureyri og í framhaldinu eiga þau eftir að ferðast víða og meðal annars um Bretland.

Sjálfstæðir menn
„Eftilvill er hinn hvíti maður, einsog hann mótast og þjálfast undir áhrifum hins ríkjandi þjóðskipulags á Vesturlöndum, hin ömurlegasta manntegund sem sögur fara af á Jarðríki.“ – Þannig lýsti Halldór Laxness auðvaldssamfélaginu árið 1929 í grein um "vestheimska alheimsku“.

Var alltaf að leika fyrir bangsana
Leikarinn Gói elskaði ævintýri og þjóðsögur þegar hann var barn og reyndi oft að galdra en gekk það illa.


Allir að missa sig yfir þriggja tíma þýskri grínmynd
Þýskir kvikmyndadagar hófust af fullum krafti í gærkvöldi. Ása Baldursdóttir dagskrárstjóri segir að þar verði meðal annars að finna tvær myndir sem eru tilnefndar til Óskarsverðlauna og fleira góðgæti.

Reiðin kraumar í Næturdrottningu
Nemendaópera Söngskólans í Reykjavík flytur Töfraflautuna eftir Mozart í Norðurljósasal Hörpu á sunnudaginn. Harpa Ósk Björnsdóttir fer með hið krefjandi hlutverk Næturdrottningarinnar en samhliða fullu söngnámi stundar Harpa nám í rafmagnsverkfræði.

Rýnir í íslensk örnefni
Helgi Skúli Kjartansson sagnfræðingur flytur fyrirlestur í Odda í dag um Landnámabók og nafnfræði Þórhalls Vilmundarsonar íslenskuprófessors.

Eitt símtal – allur skalinn
Brynhildur Guðjónsdóttir leikstýrir nýrri uppfærslu sinni á Mannsröddinni sem frumsýnd er í Kaldalóni í Hörpu í kvöld.

Auður Ava, Rax og Hildur Knútsdóttir handhafar Íslensku bókmenntaverðlaunanna
Þau Auður Ava Ólafsdóttir, Hildur Knútsdóttir og Ragnar Axelsson hlutu í kvöld Íslensku bókmenntaverðlaunin fyrir árið 2016 en það var Guðni Th. Jóhannesson, forseti Íslands, sem afhenti verðlaunin við hátíðlega athöfn á Bessastöðum sem hófst klukkan 20.

Þessi verkefni eru tilnefnd til Eyrarrósarinnar í ár
Alþýðuhúsið á Siglufirði, tónlistarhátíðin Eistnaflug á Neskaupsstað, List í ljósi á Seyðisfirði, Nes – Listamiðstöð á Skagaströnd, Rúllandi snjóbolti á Djúpavogi og Vesturfarasetrið á Hofsósi eru tilnefndi til Eyrarrósarinnar í ár.

Ragnhildur og Edda gefa út bók um jafnréttismál
„Karlar þurfa líka að blása í jafnréttislúðranna og það er ekki nóg fyrir stjórnendur að aðhyllast jafnréttisstefnu, þeir þurfa að innleiða breytingarnar,“ segir Ragnhildur Steinunn.

Vísindamall sem nær aldrei suðupunkti
Prýðilegasta skemmtun þrátt fyrir gloppótt handrit.

Viljum leggja okkar af mörkum
Styrktarsýning verður á leikverkinu Andaðu í Iðnó annað kvöld. Öll innkoma rennur til Landsbjargar, í minningu Birnu Brjánsdóttur, í tilefni söfnunar Fésbókarsíðunnar Góðu systur.

Klisjukenndur happaendir að mati Jóns Viðars: „Svona efni fær bara einn séns“
Jón Viðar Jónsson gagnrýnandi varð fyrir vonbrigðum með lokaþáttinn af Föngum í gær.